Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 28. apríl 2026 16:47 Hinn grunaði var leiddur fyrir héraðsdómara í Wiener Neustadt í dag. AP Austurríkismaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk á tónleikum Taylor Swift í Vínarborg í ágúst 2024. Upp komst um samsærið áður en tónleikarnir áttu að fara fram.
Maðurinn, þekktur sem Beran A, var leiddur fyrir dómara í borginni Wiener Neustadt í dag. Þar játaði hann einnig að hafa verið meðlimur hryðjuverkasamtaka en neitaði í öðrum ákæruliðum, meðal annars um aðild að skipulagningu á hryðjuverki í borginni Mecca í Sádi-Arabíu. Beran var handtekinn daginn áður en fyrstu af þremur tónleikum Taylor Swift á Eras-tónleikaferðalaginu áttu að fara fram í Vín í ágúst 2024. Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara fannst nærri fullbúin sprengja við húsleit á heimili hans. Öllum þrennum tónleikunum var í framhaldinu aflýst en reiknað var með tæplega tvö hundruð þúsund gestum á tónleikana þrjá. Svekktir aðdáendur Taylor Swift brugðu þá á það ráð að hópast saman á götum borgarinnar og syngja saman helstu slagara tónlistarkonunnar. Beran var ákærður fyrir hryðjuverk og fyrir að dreifa áróðri Íslamska ríkisins á netinu. Þá var hann ákærður fyrir að framleiða sprengiefni og tilraun til að versla sér vopn ólöglega. Beran var leiddur fyrir dómara ásamt öðrum karlmanni, sem nefndur er Arda K í fréttum af málinu. Þeir eru báðir sakaðir um aðild að Íslamska ríkinu. Beran og Arda eru báðir 21 árs og voru því tæplega tvítugir þegar þeir eiga að hafa skipulagt hryðjuverkið. Fyrirhugað er að aðalmeðferð í málinu ljúki um miðjan maí.
Austurríki Tónlist Erlend sakamál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira