Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Kristján Már Unnarsson skrifar 22. apríl 2026 20:20 Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Sigurjón Ólason Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kalla eftir samtali við ríkið um mótvægisaðgerðir, eins og að undirbúa gerð varnargarða, vegna nýrrar skýrslu Veðurstofu um hættu á hraunrennsli yfir hluta byggðarinnar. Bæjarstjórinn telur ekki ástæðu til að falla frá áætlunum um ný hverfi á hraunasvæðum.
Í kvöldfréttum Sýnar var sýnt frá Völlunum í Hafnarfirði og iðnaðarsvæðinu í Kapelluhrauni en þau eru sögð berskjölduð fyrir hraunflæði. Þau standa á ungum hraunum sem runnu eftir landnám, en Kapelluhraun er frá 12. öld og Hellnahraun frá 10. öld. Meginniðurstaða Veðurstofunnar er í raun ekki flókin. Þar sem hraun hefur runnið, þar má búast við að hraun geti runnið aftur. Horft yfir Vallahverfi. Hraunið, sem stór hluti hverfisins er byggður á, Hellnahraun, rann eftir landnám.Sigurjón Ólason Bæjarstjórinn kveðst fagna skýrslunum. „Hér er um að ræða langtímaáhættumat en ekki spá. Þannig að þetta er auðvitað eitthvað sem er til lengri tíma en gefur okkur færi til þess að skoða alla innviði hjá okkur, skipulag og framtíðarskipulag,“ segir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Bæjaryfirvöld efndu í morgun til fundar um hraunvárskýrslurnar með fulltrúum allra framboða. En verður samstaða um þessi mál innan bæjarstjórnar? „Það er lykilatriði í þessu máli upp á öryggi íbúa. Því mér finnst öryggi íbúa ekki eiga að vera pólitískt mál. Hér þarf samstöðu og þess vegna vorum við með þennan fund með öllum framboðum til þess að allir séu á sömu blaðsíðu með réttar upplýsingar til að geta komið réttum skilaboðum út til almennings,“ svarar bæjarstjórinn. Fimm líklegustu hraunrennslisleiðir í átt að byggðinni á Reykjavíkursvæðinu. Farvegir 1 og 2 stefna inn í Hafnarfjörð.Veðurstofan Næstu skref voru rædd á fundi bæjarstjórnar í dag. „Við þurfum vissulega að fara í og köllum eftir samtali auðvitað við ríkið um mótvægisaðgerðir, sem þarf að fara í. Við þurfum að herma slíka varnargarða. Það þarf að setja þá inn í líkön og sjá hvernig þeir geta best komið í sveitarfélaginu okkar, þannig að það verði alveg ljóst hvar þeir ættu þá að rísa þegar upp kemur eldgos.“ Bæjarstjórinn sér þó ekki fyrir sér að fallið verði frá áætlunum um ný hverfi á hraunasvæðum, eins og heyra má hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: -Þurfið þið að endurskoða það? „Ég tel ekki að við þurfum að endurskoða það. Við erum þegar komin með þá áætlun á skipulagi. Við þurfum hins vegar að skoða hvernig við bregðumst við ef til atburða kemur, til lengri tíma. Þannig að við erum komin með skýrsluna núna í hendur til þess einmitt að skoða og meta hvernig við getum brugðist við hvað mótvægisaðgerðir varðar. Og hvað við gerum til að endurskoða það skipulag sem fyrir er og er til framtíðar.“ Séð yfir iðnaðarsvæðið í Kapelluhrauni. Hraunið rann á 12. öld.Sigurjón Ólason -En geta skýrslur af þessu tagi leitt til þess að fasteignaverð á umræddum svæðum gæti lækkað? „Slík umræða hefur auðvitað komið. En ég vona auðvitað að svo verði ekki. Af því að þessi skýrsla er einmitt til þess gerð og fallin að við grípum til aðgerða til að tryggja innviði og öryggi íbúa í Hafnarfirði,“ svarar bæjarstjórinn Valdimar Víðisson. Helstu atriðum úr áhættumati Veðurstofu var lýst í sjónvarpsfrétt Sýnar í gærkvöldi:
Hafnarfjörður Almannavarnir Eldgos á Reykjanesskaga Skipulag Eldgos og jarðhræringar Varnargarðar á Reykjanesskaga Tengdar fréttir Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Hildigunnur Thorsteinsson veðurstofustjóri segir nýjar skýrslur um hættusvæði vegna hraunrennslis kalla á umræðu um það hvort setja þurfi skýrari reglur um hvar megi skipuleggja byggð. 22. apríl 2026 13:50 Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30 Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. 21. apríl 2026 22:10 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halla ein án fasts nefndarsætis eftir Framsóknarkapal Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Sjá meira
Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Hildigunnur Thorsteinsson veðurstofustjóri segir nýjar skýrslur um hættusvæði vegna hraunrennslis kalla á umræðu um það hvort setja þurfi skýrari reglur um hvar megi skipuleggja byggð. 22. apríl 2026 13:50
Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30
Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. 21. apríl 2026 22:10