Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Samúel Karl Ólason skrifar 21. apríl 2026 20:17 Sheila Cherfilus-McCormick sagði af sér þingmennsku í dag. Hún er þriðji þingmaðurinn sem gerir það á rúmri viku og einn til viðbótar stendur frammi fyrir áköllum um að segja af sér eða vera vikið af þingi. Hægra megin á myndinni eru þeir Cory Mills, Tony Gonzales og Eric Swalwell. AP og Getty Sheila Cherfilus-McCormick, þingkona Demókrataflokksins frá Flórída, sagði af sér í dag. Það gerði hún rétt áður en fundur siðferðisnefndar fulltrúadeildarinnar um mál hennar hófst en þar stóð til að ákveða refsingu hennar vegna ýmissa brota hennar varðandi kosningasjóði og annað.
Hún stóð frammi fyrir því að vera vísað af þingi þar sem hún naut takmarkaðs stuðnings innan eigin flokks. Nokkrir sviptivindar hafa blásið á þinginu vestanhafs en Cherfilus-McCormick er þriðji þingmaðurinn sem segir af sér á rúmri viku. Áður höfðu þeir Eric Swalwell og Tony Gonzales sagt af sér og stendur einn þingmaður til viðbótar frammi fyrir áköllum um að hann segi af sér eða verði vísað af þingi. Swalwell var þingmaður Demókrataflokksins frá Kaliforníu og var í framboði til ríkisstjóra þar til hann var sakaður um ýmis og alvarleg kynferðisbrot af nokkrum konum. Þó hann hafi sagt af sér segir hann ásakanirnar gegn sér rangar. Tony Gonzales, sem er Repúblikani, viðurkenndi í síðasta mánuði að hafa haldið við aðstoðarkonu sína sem svipti sig svo lífi með því að kveikja í sér. Þó hann hafi játað að brjóta gegn reglum þingsins ætlaði hann sér að klára kjörtímabilið. Sjá einnig: Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Hávær áköll voru frá þingmönnum beggja flokka um að vísa mönnunum tveimur úr þingi en Gonzales hafði staðið frammi fyrir slíkum köllum töluvert lengur. Ekki var vilji til þess meðal Repúblikana þar sem meirihluti þeirra í fulltrúadeildinni er mjög naumur. Ásakanirnar gegn Swalwell breyttu stöðunni töluvert og stóðu þeir báðir frammi fyrir því að vera vísað af þingi en ákváðu að segja af sér í staðinn. Það hefur einungis sex sinnum gerst í sögu Bandaríkjanna að þingmönnum hafi verið vísað af þingi en til þess þarf atkvæði tveggja af hverjum þremur þingmönnum. Það gerðist síðast í desember 2023 þegar þingmanninum George Santos var sparkað af þingi vegna lyga hans og fjársvika, svo eitthvað sé nefnt. Sjá einnig: Lygna þingmanninum sparkað af þingi Annar þingmaður Repúblikanaflokksins stendur frammi fyrir áköllum um að hann segi af sér. Það er Cory Mills, frá Flórída, en hann hefur verið sakaður um ýmis kynferðisbrot og brot á reglum um kosningasjóði. Mills neitar einni sök en þingkonan Nancy Mace, sem er einnig úr Repúblikanaflokknum, lagði í dag fram tillögu um að vísa honum af þingi. Hún bendir á að Mills sé sakaður um að hafa gengið í skrokk á konum og að hann hafi leitað aðstoðar Pam Bondi, fyrrverandi dómsmálaráðherra, þegar hann var yfirheyrður af lögreglu. Hún segir hann einnig hafa áreitt konur á netinu, sagt ósatt um herþjónustu sína og nýtt sér stöðu sína sem þingmaður til að hagnast. Mills segir á móti að tillaga hennar sé pólitískt sjónarspil sem hún sé að reyna að hagnast á. Hey @RepNancyMace @NancyMace you irresponsibly claimed to have “overwhelming evidence to expel me”. Why won’t you call your resolution you filed to the floor for a vote? Is it because you didn’t think you would get called out? What will be the excuse you use to hide the fact…— Cory Mills (@CoryMillsFL) April 21, 2026 Mike Jonson, þingforseti og leiðtogi Repúblikanaflokksins í fulltrúadeildinni, sagðist í dag ekki hlynntur því að þingmenn hans væru að reyna að vísa hvorum öðrum af þingi. Slíkt þyrfti að fara hefðbundið ferli. Segir ásakanir um fjölda brota vera nornaveiðar Cherfilus-McCormick heldur því fram að ásakanirnar gegn sér séu nornaveiðar. Siðferðisnefnd fulltrúadeildarinnar hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að þingkonan hefði framið að minnsta kosti 25 brot á reglum þingsins og siðferðisviðmiðum, þar á meðal eru brot á reglum um kosningasjóði. Þá stendur Cherfilus-McCormick einnig frammi fyrir ákærum á alríkissviðinu fyrir að stela fimm milljónum dala af opinberum peningum sem ætlaðir voru til viðbragða við náttúruhamförum. Þá peninga eru hún meðal annars sökuð um að hafa notað til að kaupa demantshring og til kosningabaráttu hennar. Um er að ræða peninga sem fjölskyldufyrirtæki hennar fékk ofgreidda vegna faraldurs Covid. Hún hefur neitað sök fyrir dómi og segist heldur ekki hafa brotið gegn reglum þingsins.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira