Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar 21. apríl 2026 14:33 Mér leikur forvitni á að vita hvort frambjóðendur þeirra flokka sem bjóða fram krafta sína í komandi sveitarstjórnarkosningum í Ísafjarðarbæ (af því ég hefi lögheimili þar) hafi áhuga á málefninu íslenska sem annað mál og raunar bara íslensku máli yfirhöfuð. Raunverulegan áhuga, ekki bara yfirborðskenndan kosningaáhuga. Ég hefi nefnilega í gegnum tíðina ekki orðið var við raunverulegan slíkan áhuga og er ég eldri en tvævetur og hefi fengist við téð mál lengi. Mér leikur og forvitni á að vita hvort og þá ekki síst hvað þið hyggist gera til að stuðla að betri máltileinkun innan sveitarfélagsins og hvort það sé t.d. ásættanlegt að starfsfólk í þjónustustörfum fyrir Ísafjarðarbæ kunni ekki íslensku (t.d. í Sundhöllinni eða upp á skíðasvæði), hvort það sé ásættanlegt að krakkar innflytjenda sem fæddir eru á Íslandi og fari í gegnum skólakerfið hér í Ísafjarðarbæ þurfi að taka íslensku sem annað mál þegar upp í framhaldsskóla er komið? Sumir þessara krakka telja sig ekki skilja íslensku og beita frekar slælegri ensku en íslensku í daglegum samskiptum. Mér finnst þetta ekkert minna en skandall! Reyndar spyr ég einnig hvort það sé ásættanlegt að krakkar sem hingað komi og byrji í Grunnskólanum á Ísafirði nái sumir hverjir ekki upp samskiptafærni í íslensku eftir t.a.m. 6-8 mánuði eða jafnvel tvö ár? Um það eru dæmi og um þetta hefi ég sannlega skrifað áður. Kannski næ ég eyrum fólks núna þó ekki nema rétt fyrir kosningar. Auðvitað veit ég að svarið er að það sé ekki ásættanlegt. En hvað ætlið þið að gera í því, og í Guðanna bænum ekki benda á málstefnu sem enginn fylgir. Hún væri flott væri henni fylgt. Það er deginum ljósara að engin markviss stefna er við lýði hvað þetta mál áhrærir, það er ekkert plan sem lýtur að máltileinkun eða gerir einhvers konar (sanngjarnar) kröfur um íslenskunotkun. Ætlar því þinn flokkur að taka þetta mál föstum tökum og hvernig? Ég myndi s.s. vilja fara þess á leit við alla flokkanna og það fólk sem veita þeim forstöðu í komandi kosningum að þeir leitist við að sannfæra það fólk sem hefir áhyggjur af stöðu íslenskunar, og þá ekki síst íslensku sem annars máls, um að þeirra flokkur ætli sér að vera betri en hinn hvað þetta mál varðar. Hvað þetta mál okkar allra sem hér búum varðar! Mitt atkvæði er alltént í húfi. Höfundur er kennari í Íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ísafjarðarbær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Íslensk tunga Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar