Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Kjartan Kjartansson skrifar 20. apríl 2026 07:37 Rumen Radev stofnaði nýjan flokk til þess að rjúfa vanhelg tengsl stjórnmála og skipulagðrar glæpastarfsemi í Búkgaríu. Flokkurinn vann afgerandi sigur í þingkosningum í gær og hlaut um þrjátíu prósentustigum fleiri atkvæði en næsta framboð. Vísir/EPA Rumen Rudev, fyrrverandi forseti Búlgaríu, vann stórsigur á ríkjandi flokkum sem hann sakaði um að reka mafíuríki í þingkosningum þar í landi í gær. Radev er sagður hallur undir Rússa, sérstaklega hvað varðar innrás þeirra í Úkraínu.
Nýstofnaður Framsóknarflokkur Búlgaríu undir forystu Radev virðist ætla að ná meirihluta á búlgarska þinginu út á 44 prósent atkvæða. Hann gersigraði hefðbundna valdaflokka. Ríkisstjórnarflokkarnir tveir fengu saman innan við fimmtung atkvæða, að því er kemur fram í evrópska blaðinu Politico. Kosningabarátta Rudev byggði á loforðum um að hann myndi uppræta spillingu og slíta tengsl stjórnmála og skipulagðrar glæpastarfsemi. Lýsti hann kosningaúrslitunum sem sigri vonarinnar á vantrausti og frelsis á óttanum. Radev segist sjá fyrir sér að geta tekið höndum saman við kosningabandalag frjályndra evrópusinnaðra flokka sem fékk næstflest atkvæði um breytingar á réttarkerfinu sem er sagt gerspillt. Ósennilega næsti Orbán í ESB Stefna Radev gagnvart Rússlandi og Úkraínu þó ekki öllum í Evrópu. Hann hefur verið andsnúinn því að senda vopn til Úkraínumanna, vill að þeir semji um frið og hefur lýst Krímskaga, sem Rússar innlimuðu ólöglega árið 2014, sem rússnesku landi. Ólíklegt er þó talið að Radev leysi Viktor Orbán, fráfarandi forsætisráðherra Ungverjalands, af hólmi sem bandamaður Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í Evrópu. Orbán, sem tapaði kosningum í síðustu viku eftir sextán ár á valdastóli, kom í veg fyrir stuðningsaðgerðir Evrópusambandsins vegna Úkraínu. Búlgarar, sem eru snauðasta þjóð Evrópusambandsins, eru háðari fjárveitingum frá Evrópusambandinu en Ungverjaland. Leiðtogar landsins hafa fram að þessu forðast að vera til vandræða á vettvangi þess á sama hátt og Orbán gekkst upp í.
Búlgaría Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Evrópusambandið Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira