Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Sunna Sæmundsdóttir skrifar 18. apríl 2026 17:03 Þór Sigfússon, stofnandi og framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans. Framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans segir nýsköpunarfyrirtæki í alvarlegri stöðu eftir að hafa fengið synjun um endurgreiðslu á kostnaði sem fylgir rannsóknum og þróun. Hann kennir auknu skrifræði um og hvetur stjórnvöld til þess að einfalda fyrirkomulagið og standa við gefin fyrirheit um stuðning.
Fréttastofa greindi frá því í vikunni að húðvörufyrirtækið Bioeffect hafi stefnt Rannsóknamiðstöð Íslands, eða Rannís, vegna synjunar á umsókn félagsins um framlengingu skattafrádráttar vegna rannsókna og þróunar. Fregnir hafa borist af því að fjölmörg nýsköpunarfyrirtæki hafi átt erfitt með að sækja endurgreiðslur til Rannís, sem þar til fyrir skömmu voru auðsóttar. Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri nýsköpunarmiðstöðvarinnar Íslenska sjávarklasans, segist heyra af því að staðan sé að hafa alvarleg áhrif á fyrirtæki og að um töluverðan hóp þeirra sé að ræða. „Við höfum orðið mjög vör við þetta hjá Sjávarklasanum og í þessu frumkvöðlaumhverfi og þetta er auðvitað mjög alvarlegt. Þetta eru oft fyrirtæki sem þurfa ekki á meiri óstöðugleika að halda,“ segir Þór. Mörg þessara fyrirtækja séu að ryðja brautir fyrir Ísland og fyrirtæki hafi ekki lagt eins mikið fjármagn í þróunar- og rannsóknarvinnu í áratugi. Þurfi að standa við gefin orð „Þetta eru fyrirtæki sem mörg hver blómstra síðar meir og búa til gríðarlega fjármuni og verðmæti fyrir íslenskt samfélag. En þetta er nýtt fyrir Ísland og það er kannski það sem er flókið í þessu núna, það er eins og það sé ekki skilningur á því hversu brýnt það er að við séum að fylgja þessum fyrirtækjum eftir með því að standa við þau orð sem gefin voru um að endurgreiðsla skyldi eiga sér stað með hliðsjón af þeim skilyrðum sem sett voru. Og þessi fyrirtæki telja sig langflest eða öll vera að uppfylla þessi skilyrði sem sett eru.“ Sviðstjóri hjá Samtökum iðnaðarins kallaði í vikunni eftir því að stjórnvöld drægju úr óvissu og benti á að tækni- og hugverkafyrirtæki hefðu á síðasta ári skilað þjóðarbúinu meiri útflutningstekjum en sjávarútvegurinn. Þór segist engar haldbærar skýringar hafa heyrt á breyttri framkvæmd. „Ég bara óttast að í þessu eins og svo mörgu öðru sé skrifræðið að aukast á Íslandi og við þurfum að passa upp á það.“ „Ég held að stjórnvöld þurfi bara að setjast aðeins niður með þessum stofnunum og spá í það hvernig hægt sé að einfalda þetta og gera þetta þannig úr garði að það sé sómi að fyrir alla,“ segir Þór Sigurfússon, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans.
Nýsköpun Tengdar fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Húðvörufyrirtækið Bioeffect hefur stefnt Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, vegna synjunar á umsókn félagsins um framlengingu skattafrádráttar vegna rannsókna og þróunar. Fjölmörg nýsköpunarfyrirtæki hafa átt erfitt með að sækja endurgreiðslur til Rannís, sem þar til fyrir skömmu voru auðsóttar. 16. apríl 2026 16:23 Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Húðvörufyrirtækið Bioeffect hefur stefnt Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, vegna synjunar á umsókn félagsins um framlengingu skattafrádráttar vegna rannsókna og þróunar. Fjölmörg nýsköpunarfyrirtæki hafa átt erfitt með að sækja endurgreiðslur til Rannís, sem þar til fyrir skömmu voru auðsóttar. 16. apríl 2026 16:23