Frá þekkingu til verðmæta – hvar slitna tengslin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar 15. apríl 2026 14:02 Þekking er forsenda framfara. Hlutfall háskólamenntaðra á vinnumarkaði hefur vaxið jafnt og þétt síðustu áratugi og kynslóðin sem nú kemur inn á vinnumarkaðinn er sú menntaðasta í sögu þjóðarinnar. Samt blasir við ákveðið misræmi: menntunin skilar sér ekki endilega að fullu í framleiðni og verðmætasköpun. Þetta er ekki aðeins fræðileg athugasemd. Hún snertir beint lífskjör, framtíðarhagvöxt og það hvort samfélagið fái raunverulegan ábata af þeirri miklu fjárfestingu sem felst í menntun. Ný greining BHM sýnir að vandinn er ekki skortur á menntun, heldur veik tenging milli þekkingar og atvinnulífs. Vöxtur sem byggir á fleiri höndum, ekki meiri verðmætum Undanfarin ár hefur hagvöxtur á Íslandi að stórum hluta byggst á auknu vinnuframlagi – fleiri störfum fremur en aukinni verðmætasköpun á hverja vinnustund. Slíkur vöxtur getur skilað árangri til skamms tíma, en hann á sér skýr takmörk. Þegar atvinnuþátttaka er há, þjóðin eldist og vinnutími styttist, verður sífellt erfiðara að bæta lífskjör nema með aukinni framleiðni. Þar kemur menntun inn – eða ætti að koma inn. Menntun á að gera vinnuaflið hæfara til að skapa meiri verðmæti, þróa nýjar lausnir og byggja upp fyrirtæki sem geta vaxið. Ef það gerist ekki, er ljóst að eitthvað í kerfinu er að bregðast. Þekkingin skilar sér ekki í störfin og verðmætin Greining BHM sýnir að Ísland stendur vel að vígi að mörgu leyti: menntunarstig er hátt, stafrænir innviðir eru öflugir og opinber stuðningur við nýsköpun er til staðar. Þrátt fyrir það skilar þekking og rannsóknarstarfsemi sér síður í nýjum vörum, fyrirtækjum og störfum en í samanburðarlöndum – ekki síst á Norðurlöndum. Tengsl háskóla og atvinnulífs eru veik, hlutfall rannsakenda innan fyrirtækja er lægra en hjá samanburðarþjóðum og nýsköpun nær sjaldan að verða burðarás verðmætasköpunar. Afleiðingin er sú að keðjan frá menntun til verðmæta slitnar og þekkingin nýtist ekki til fulls. European innovation scoreboard og Global Innovation Index draga sömu ályktun. Sama mynstur má greina hjá nýsköpunarfyrirtækjum. Samkvæmt skýrslunni Nýsköpunarlandið Ísland standa sprotafyrirtæki oft snemma frammi fyrir áskorunum í umhverfi sínu, einkum er þá um að ræða bil milli opinberra styrkja og markaðstengdrar fjárfestingar. Áskorunin felst síður í algjörum skorti á fjármagni en í skorti á samfellu og samhæfingu í stuðnings- og fjármögnunarkerfinu. Í kjölfarið ná færri hugmyndir að vaxa upp í starfsemi sem skilar sér í sérfræðistörfum og breiðum framleiðnivexti.Þetta hefur einnig áhrif á menntaval. Hlutfall útskrifta í STEM-greinum (vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði) er lægra á Íslandi en í flestum samanburðarlöndum, á meðan útskriftir í öðrum greinum eru hlutfallslega fleiri. Greining BHM undirstrikar að lausnin felist fyrst og fremst í réttu hvatakerfi: störfum sem borga sig, skýrri tengingu menntunar og launa og atvinnulífi sem kallar raunverulega eftir sérhæfðri þekkingu. Launastefna og vinnumarkaðsumhverfi skipta þar máli. Ef ábati langrar menntunar veikist, dofnar hvati til sérhæfingar – og þá veikjast forsendur framleiðniaukningar til lengri tíma. Hvað þarf að gera? Niðurstaðan er skýr: stilla þarf hagkerfið betur til að nýta þekkingu. Það gerist ekki af sjálfu sér, það krefst markvissrar stefnu og virkrar samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs um hvernig þekking á að verða að verðmætasköpun. Það felur meðal annars í sér: sterkari tengsl háskóla og atvinnulífs, fleiri rannsóknir og þróunarverkefni innan fyrirtækja, betri brú milli styrkja, fjárfestinga og vaxtar nýsköpunarfyrirtækja, og umhverfi sem leyfir afkastamestu fyrirtækjunum að vaxa og dafna. Þetta er ekki ný hugsun. Í nýrri atvinnustefnu stjórnvalda er lögð áhersla á aukna framleiðni, verðmætasköpun, nýsköpun og betri nýtingu mannauðs. Greining BHM er gagnleg að því leyti að hún sýnir hvar hættan liggur: ef markmiðin ná ekki að breytast í raunverulegar tengingar í framkvæmd, verður árangurinn takmarkaður. Menntun hefur verið lykilforsenda framfara. Spurningin sem við þurfum að svara í sameiningu er hvernig tryggja megi að hún umbreytist í verðmætasköpun og raunverulegan efnahagslegan ábata fyrir samfélagið. Höfundue er formaður BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Skóla- og menntamál Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar