Sport

Ólympíumeistari ó­vænt hættur því líkaminn sagði stopp

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Axelsen er einn besti badminton spilari heims.
Axelsen er einn besti badminton spilari heims. Liu Nan/VCG via Getty Images

Ríkjandi Ólympíumeistarinn í badminton, hinn danski Viktor Axelsen, hefur neyðst til að leggja spaðann á hilluna vegna þrálátra meiðsla.

Axelsen vann gullverðlaun á síðustu tveimur Ólympíuleikum og hefur einnig orðið heimsmeistari tvisvar. Hann tilkynnti um ákvörðunina í morgun með sorg í hjarta.

„Ég er hættur í badminton. Eða öllu heldur hefur líkaminn sagt mér að hætta. Þetta er sorglegt en svona er staðan, því miður,“ sagði Axelsen við DR.

Axelsen hefur ekkert getað æft eða keppt síðustu sex mánuði.

„Ég hef verið að hugsa um að hætta í langan tíma. Þetta er skrítið, en ég er aðeins farinn að venjast hugmyndinni, þannig að það er fínt að taka ákvörðunina og koma þessu frá mér. Ég hef verið að berjast gegn því sem líkaminn segir mér að gera í langan tíma.“

Meiðslin eru af völdum taugaklemmu í hryggnum og hafa hrjáð Axelsen í rúmlega ár. Hann gekkst undir aðgerð fyrir um hálfu ári en hefur ekki losnað við sársaukann. Á eina mótinu sem hann keppti eftir aðgerðina þjáðist hann mikið.

„Sem íþróttamaður venstu því að spila í gegnum sársauka, en sársaukinn sem orsakast af taugaklemmu er svo slæmur að þú getur ekki hundsað hann. Þetta er virkilega vont.

Ég get ekki hreyft mig almennilega, hvað þá æft íþróttir. Þetta er sársauki sem er ekki hægt að hundsa, ég get það ekki allavega.

Það sorglegasta er að ég er enn með metnaðinn til að spila og verða betra. Ég sakna þess að spila og elska íþróttina ennþá, þó ég hafi náð flestum mínum markmiðum. Það er erfitt að fara gegn því sem þú vilt gera en svona hefur þetta verið allt mitt líf,“ sagði Axelsen í viðtalinu við DR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×