„Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. apríl 2026 15:03 Hildur Antonsdóttir og Birta Georgsdóttir árita varning fyrir unga Þróttara. ksí Glódís Perla Viggósdóttir segir að það hafi gefið leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta mikið að hitta stuðningsmenn þess fyrir leikina mikilvægu gegn Úkraínu og Englandi í undankeppni HM 2027.
Á laugardaginn var opin æfing hjá íslenska liðinu og eftir hana gafst stuðningsmönnum þess tækifæri til að hitta landsliðskonurnar og fá eiginhandaráritanir. „Það var frábært að svona margir komu að fylgjast með æfingunni og hitta okkur undir stúkunni. Það var ótrúlega gaman að sjá hversu margir komu og höfðu áhuga á að hitta okkur og sjá hvað við vorum að gera. Ég vona að það verði eins á morgun [í dag] og fólk komi og fylgist með. Ég held að það sé spáð ágætu veðri en vonandi getum við komið saman og gert þetta að góðum degi öll saman á Laugardalsvelli,“ sagði Glódís á blaðamannafundi í gær. Klippa: Glódís um unga stuðningsmenn Fyrirliðinn segir að það gefi landsliðskonunum mikið að hitta unga stuðningsmenn og þær njóti þess ekki síður að vera í samskiptum við þá. „Það er oft litið á þetta sem svo að við séum að gefa svaka mikið af okkur en það gleymist að við fáum oft fullt út úr þessu líka. Það er ótrúlega gaman að sjá unga iðkendur koma og vilja hitta okkur. Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga, vilja læra af okkur og sjá hvað við erum að gera,“ sagði Glódís. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnusamband Íslands (@footballiceland) „Það er frábært að sjá hversu miklar fyrirmyndir við sem lið erum orðnar. Það er frábært að geta gefið til baka og gefið í báðar áttir. Þetta gefur okkur orku.“ Glódís leikur sinn 145. landsleik í kvöld og jafnar þar með leikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Hún lék sinn fyrsta landsleik 2012 og hefur varla misst af leik með landsliðinu síðan þá. Glódís hefur verið fyrirliði íslenska liðsins undanfarin ár. Ísland og Úkraína eru bæði án stiga í riðli 3 í undankeppni HM. Evrópumeistarar Englands og heimsmeistarar Spánar eru með sex stig hvort lið. Leikur Íslands og Úkraínu hefst klukkan 18:30 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Landslið kvenna í handbolta HM 2027 í Brasilíu Tengdar fréttir Svona var blaðamannafundur KSÍ Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ fyrir leik Íslands og Úkraínu í undankeppni HM 2027 í fótbolta kvenna. 13. apríl 2026 12:18 Sænskan gengur hægt en allt annað upp á tíu „Þetta er heiður og það er gaman að vera hérna,“ segir Linda Líf Boama, sem er í fyrsta sinn í landsliðshópi kvenna í fótbolta. Hún hefur farið vel af stað í atvinnumennsku og var verðlaunuð með landsliðssæti. 11. apríl 2026 15:30 „Þetta er svolítið ýkt þarna úti“ Sveindís Jane Jónsdóttir nýtur þess að kíkja á leiki hjá körfuboltaliðum Keflavíkur við komuna til Íslands. Hún nýtur rigningarinnar ekki eins vel, orðin vön Kaliforníusólinni en hún hefur farið frábærlega af stað á nýju tímabili vestanhafs. 10. apríl 2026 08:00 Þakklát fyrir það sem hún hefur eftir erfið veikindi „Það er mjög gaman að hitta stelpurnar og fá að knúsa fólkið sitt,“ segir landsliðskonan Katla Tryggvadóttir sem býr sig undir leiki Íslands við Úkraínu og England í næstu viku. Hún fagnar því að komast í hópinn eftir erfið veikindi sem héldu henni frá síðustu leikjum. 9. apríl 2026 15:45 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira
Svona var blaðamannafundur KSÍ Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ fyrir leik Íslands og Úkraínu í undankeppni HM 2027 í fótbolta kvenna. 13. apríl 2026 12:18
Sænskan gengur hægt en allt annað upp á tíu „Þetta er heiður og það er gaman að vera hérna,“ segir Linda Líf Boama, sem er í fyrsta sinn í landsliðshópi kvenna í fótbolta. Hún hefur farið vel af stað í atvinnumennsku og var verðlaunuð með landsliðssæti. 11. apríl 2026 15:30
„Þetta er svolítið ýkt þarna úti“ Sveindís Jane Jónsdóttir nýtur þess að kíkja á leiki hjá körfuboltaliðum Keflavíkur við komuna til Íslands. Hún nýtur rigningarinnar ekki eins vel, orðin vön Kaliforníusólinni en hún hefur farið frábærlega af stað á nýju tímabili vestanhafs. 10. apríl 2026 08:00
Þakklát fyrir það sem hún hefur eftir erfið veikindi „Það er mjög gaman að hitta stelpurnar og fá að knúsa fólkið sitt,“ segir landsliðskonan Katla Tryggvadóttir sem býr sig undir leiki Íslands við Úkraínu og England í næstu viku. Hún fagnar því að komast í hópinn eftir erfið veikindi sem héldu henni frá síðustu leikjum. 9. apríl 2026 15:45