Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2026 22:21 Andri Júlíusson er óvænt hættur sem þjálfari hjá ÍA og Kára á Akranesi. @andrijull Andri Júlíusson er óvænt hættur sem þjálfari hjá Knattspyrnufélagi ÍA og Kára en hann útskýrir af hverju í pistli á samfélagsmiðlum. Hann segist þar hafa gert mistök á æfingu fimmta flokks ÍA og í framhaldinu hafi formaður Barna- og unglingaráðs viljað reka hann úr klúbbnum.
Andri fer yfir málavexti í pistli á fésbókinni en segir að allir sem hann talaði við, meðþjálfarar í klúbbnum, foreldrar og framkvæmdastjórar IA og KFÍA, hafi stutt hann í málinu en einhverjir, sem sitja á skrifstofunni og hafa aldrei sparkað í boltann vildu hann í burtu. „Fyrir rúmlega mánuði gerði ég mistök á 5. flokks æfingu þar sem kom upp leiðinlegt atvik þar sem drengur meiddi annan og ég átti óvart þátt í því. Ég brást strax við og talaði við báða drengina og allir skildu sáttir að lokum. Ég bauðst til að hringja í foreldra en yfirþjálfarinn tók því. Ég var gamall sem leikmaður en ungur sem þjálfari,“ skrifaði Andri. „Þetta atvik sat í mér í nokkra daga en eftir viku kom skellurinn. Þrátt fyrir að hafa náð sáttum við drenginn og föður drengsins var ég boðaður á fund af stjórn ÍA, formaður Barna- og unglingaráðs vildi mig greinilega út úr klúbbnum,“ skrifaði Andri sem segist hafa sagt af sér sem þjálfari hjá ÍA og Kára. Hann var þar í afreksþjálfun auk þess að þjálfa 8. flokk, 6. flokk, 5. flokk, 2. flokk og Kára. „Eftir að hafa verið alla yngri flokka, (Íslandsmeistari, bikarmeistari), leikmaður (192 leikir, 73 mörk, í liði sem hefur náð bestum árangri í deild síðan 2003), þjálfari (bikarmeistari tvö ár í röð), gengið í mögulega öll störf innan klúbbsins, allt frá því að mála völlinn, græja búninga, aðstoðarþjálfari, hengja upp fána og fleira, eiginlega allt nema vera aðalþjálfari ÍA-liðsins. Pabbi spilaði fyrir ÍA og bróðir minn líka ásamt því að hafa þjálfað. Öll börnin mín eru í ÍA og elska það. Var mér kastað eins og hverri annarri kúkableyju þá er vissulega ÍA-hjartað mitt og fjölskyldu minnar mölbrotið,“ skrifaði Andri. „Þegar einum dyrum er skellt í bakið á manni opnast vonandi aðrar og ég fæ tækifæri til að búa til annan Ísak eða Hákon annars staðar og þegar önnur stjórn stýrir ÍA mun ég koma til baka og klára hringinn og þjálfa aðallið ÍA og uppfylla drauminn,“ skrifaði Andri en það má sjá allan pistil hans hér fyrir neðan.
ÍA Fótbolti Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka Sjá meira