Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Agnar Már Másson skrifar 12. apríl 2026 20:43 „Það er bara hvergi hægt að finna stæði lengur hér í bænum,“ segir Ari hneykslaður er hann ekur niður göngugötu á nagladekkjum. Skjáskot/TikTok Í samfélagsmiðlagjörningi ekur Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, niður Austurstræti þar sem hann furðar sig á því að þar séu engin bílastæði. Austurstræti hefur verið göngugata síðan í september og því er ólöglegt að aka bíl niður götuna, sem Miðflokksmaðurinn gerir þó.
Austurstrætið allt hefur verið göngugata síðan í september 2025, en breytingin er hluti af nýju skipulagi Kvosarinnar sem samþykkt var 2020. Því er öll akandi umferð um götuna bönnuð að undanskildum viðbragðsaðilum og hreyfihömluðu fólki, auk þess sem vörulosun er heimil á tilteknum tímum. Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar eru dæmi um að ökumenn hafi verið sektaðir fyrir akstur niður Austurstræti en þar eru nú vegmerkingar sem sýna að akstur um götuna sé ekki leyfður. Vegmerkingarnar við Pósthússtræti virðast þó hafa farið fram hjá Ara, sem er nýlega fluttur í miðbæinn, er hann ók niður götuna á dögunum til að taka upp myndskeið fyrir samfélagsmiðla þar sem hann hneykslast á bílastæðaleysinu við götuna. „Það er bara hvergi hægt að finna stæði lengur hér í bænum,“ segir hann hneykslaður er hann ekur niður göngugötuna. „Ég hef aldrei séð þig í Miðbænum“ Myndskeiðið hefur vakið allnokkra athygli og fengið rúmlega þúsund læk hvort tveggja á Facebook og TikTok. Auk þess hefur á þriðja hundrað lagt orð í belg í athugasemdum undir færslunni á Facebook, ýmist til þess að taka undir með Ara eða gagnrýna hann. Í hinum síðarnefnda hópi er Egill Helgason fjölmiðlamaður, sem segist aldrei eiga í vandræðum með að fá stæði í miðbænum þrátt fyrir að sækja bæinn heim nær daglega. „Hins vegar er vandamál þegar menn keyra á nöglum eins og heyra má í myndbandinu. Og - ég hef aldrei séð þig í Miðbænum þar sem ég bjó í 23 ár svo það er erfitt að skilja þessar skyndilegu áhyggjur,“ skrifar Egill Helgason. Egill Helgason tjáir sig undir færslu Ara.Vísir/Vilhelm Ari bregst við þessum athugasemdum Egils og segist vissulega hafa búið í miðbænum á 10. áratugnum. Hvað nagladekkin varðar viðurkennir Ari að komið sé að dekkjaskiptum, en að hann eigi þó vissulega stundum einnig erindi í efri byggðir borgarinnar „þar sem snjór er lítið mokaður nema af hjólastígum og mikill klaki,“ skrifar Ari. „Síðast snjóbylur fyrir viku síðan. En tekið til greina.“ Áttuðu sig ekki á því að Austurstræti væri göngugata Í samtali við fréttastofu segir Ari að hvorki hann né tökuteymið hafi áttað sig á því að um göngugötu væri að ræða. „Ekkert af okkur sem vorum að vinna þetta heimildarvídjó um stöðu þessara mála í miðborginni áttuðum okkur á því,“ segir hann. Hann segir að myndbandið hafi að mestu vakið jákvæð viðbrögð, en það hafi fengið yfir 140.000 áhorf á Facebook, Instagram og TikTok. „Auðvitað hafa verið svo tíðar breytingar á ýmsu varðandi umferðina í miðborginni að það hefur ruglað fólk í ríminu og þar á meðal mig,“ heldur hann áfram. Vilja aftur umferð um Laugaveg „Til dæmis bara eins og hefur verið á Laugaveginum. Fólk var nú lengi að átta sig á því hvar ætti að keyra niður Laugaveginn og hvar ætti að keyra upp Laugaveginn eftir að það var farið að rugla með það,“ segir hann og vísar til þess þegar lokað var fyrir umferð að hluta á Laugavegi. Ari telur að Reykjavík hafi tekið burt of mörg stæði frá borgarbúum síðustu ár, hvort sem sé við Austurstræti, Laugavegi eða Skólavörðustíg. Þá bendir hann á að miklar breytingar hafi orðið í bænum að undanförnu, til dæmis hafi rótgrónar verslanir horfið úr bænum, og kennir hann bílastæðaskorti þar að hluta til um. Þá hafi veitingamenn einnig kvartað. Hann telur það hafa verið mistök að loka fyrir umferð að hluta á Laugavegi. Vill Miðflokkurinn þá að opnað verði aftur fyrir umferð um Laugaveginn? „Já, ég myndi vilja gera það. Það væri langfarsælast ef það væri einstefna frá Hlemmi og niður á Lækjargötu.“ Frétt hefur verið uppfærð með viðbrögðum Ara.
Miðflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bílastæði Göngugötur Nagladekk Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira