Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Kjartan Kjartansson skrifar 10. apríl 2026 14:59 Frá Dundee í Skotlandi þar sem harmleikurinn átti sér stað. Vísir/Getty Dómstóll í Skotlandi dæmdi þarlendan karlmann í átta ára fangelsi fyrir manndráp vegna sjálfsvígs eiginkonu hans. Þetta er í fyrsta skipti sem maður sem beitir maka sinn ofbeldi er gerður ábyrgur fyrir sjálfsvígi.
Karlmaðurinn beitti eiginkonu sína bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi í hjónabandi sem varði í eitt og hálft ár. Konan stökk fram af brú yfir hraðbraut í Dundee í júlí árið 2023 skömmu eftir að maðurinn hótaði henni því að aka yfir hana. Saksóknarar lögðu fram sönnunargögn um ofbeldið sem maðurinn beitti konuna við réttarhöldin. Sögðu þeir hann hafa vísvitandi notfært sé veikleika hennar til þess að stjórna henni. Á meðal gagna málsins voru smáskilaboð sem konan sendi systur sinni sem hvatti hana til þess að yfirgefa eiginmanninn fjórum mánuðum áður en hún lést, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. „Hvernig get ég farið frá honum ef hann segist ætla að drepa sig án mín,“ skrifaði konan í skilaboðunum. Hjónin voru skilin að skiptum þegar konan svipti sig lífi. Þau sáust hins vegar saman á upptökum öryggismyndavéla daginn sem hún lést. Maðurinn sást meðal annars aka bíl sínum hratt að henni á bílastæði en sveigja frá á síðustu stundu. Hann sneri síðan við, keyrði aftur í átt að henni áður en hann bremsaði. Konan fór skömmu síðar að brú í nágrenninu og fleygði sér fram af henni og lenti á hraðbraut fyrir neðan. Maðurinn var dæmdur sekur um að hafa valdið dauða konunnar og ofbeldisverk gegn henni.
Skotland Erlend sakamál Kynbundið ofbeldi Bretland Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira