Tónlist

Sau­tján þúsund miðar seldir á Kaleo

Freyja Þórisdóttir skrifar
Tónleikarnir bera yfirskriftina Bergmál og auk Kaleo munu þar koma tónlistarmenn á borð við Stuðmenn, Mugison, KK, GDRN, Emilíönu Torrini, Júníus Meyvant, Helga Björns, Hjálma og ýmsir fleiri.
Tónleikarnir bera yfirskriftina Bergmál og auk Kaleo munu þar koma tónlistarmenn á borð við Stuðmenn, Mugison, KK, GDRN, Emilíönu Torrini, Júníus Meyvant, Helga Björns, Hjálma og ýmsir fleiri. Vísir/Viktor Freyr

Það er nánast uppselt á stórtónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Í tilkynningu sem Jakob Frímann tónleikahaldari sendi frá sér kemur fram að af þeim tuttugu þúsund miðum sem séu í boði hafi sautján þúsund þegar verið seldir.

Almenn miðasala á tónleikana, sem ber yfirskriftina Bergmál, hófst klukkan 10 í gærmorgun og segir Jakob að bæði hún og forsalan hafi farið fram úr öllum væntingum. Alls voru sex þúsund miðar í boði á svokölluðu forsöluverði en þeir seldust að sögn Jakobs upp á einungis örfáum sekúndum.

„Við höfum sjaldan séð viðlíka viðtökur. Eftirspurnin fór langt fram úr björtustu vonum og staðfestir að Bergmál er orðinn einn mest spennandi tónlistarviðburður sumarsins,“ segir Jakob í tilkynningunni.

Notast er við miðasölukerfið moment.is og einnig er miðasala á vefsíðunni keytoiceland.is en Jakob segir að „þrátt fyrir gríðarlegt álag hafi miðasalan gengið afar vel.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.