Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026

Fréttamynd

Lög­reglan þakkar öllum sem komu að verk­efninu

Tónlistarhátíðin Bergmál fór fram á Þingvöllum um liðna helgi en undirbúningur hátíðarinnar hefur verið mikið ræddur síðastliðnar vikur. Tekist hefur verið á um hvort að skipulag hafi verið með sem bestum hætti en meðal þeirra sem telja svo vera er starfshópur Lögreglunnar á Suðurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna

Vel virðist hafa farið á með Jökli Júlíussyni, nýrri kærustu hans og forsetahjónunum, frú Höllu Tómasdóttur og Birni Skúlasyni á Þingvöllum í gær. Mbl greindi frá því á föstudagskvöld að Jökull hefði eignast nýja vinkonu, brasilíska íþróttafréttakonu og fyrirsætu að nafni Bruna Ludmila.

Lífið
Fréttamynd

Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls

Skikkja, eða ponsjó, Jökuls Júlíussonar úr Kaleo vakti sannarlega athygli á tónleikum á Þingvöllum í gær. Konan sem prjónaði skikkjuna segist strax í dag hafa fengið fjölda fyrirspurna vegna hönnunarinnar en hún segist hvorki selja flíkur né uppskriftir. Skikkjan er nú komin í eigu Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Hafi ræst úr málum eftir mar­traðir um 1994

Þjóðgarðsverði líst vel á fyrsta frágang á Þingvöllum en hann skellti sér á svæðið í morgun eftir stórtónleika Kaleo í þjóðgarðinum í gær. Hann segir gesti heilt yfir hafa verið til fyrirmyndar þó aðeins hafi borið á meira rusli undir lok hátíðarinnar í gærkvöldi, ræst hafi úr umferðarmálum eftir teppu sem hafi minnt marga á sögufræga umferðarteppu 1994. Hann biðlar til ferðaþjónustuaðila að keyra með gát um svæðið næstu daga á meðan frágangi stendur.

Innlent
Fréttamynd

„Gekk kannski ekkert endi­lega hratt alltaf“

„Þetta gekk í rauninni allt saman mjög vel í öllum aðalatriðum,“ segir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, um tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum sem haldin var í gær. Miklar umferðartafir urðu engu að síður í kringum hátíðina, en við því var að búast að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Veggur af fólki mætti svöngum tón­leika­gestum

Fréttastofu bárust ábendingar frá tónleikagestum á Þingvöllum um miklar tafir á tónleikasvæðinu vegna margmennis. Vonsvikinn gestur segir sviðið of lítið, áhorfendasvæðið rúmi ekki mannfjöldann og ekki sé nægt pláss í kringum matarvagnana. Tónlistarhátíðin Bergmál fór þar fram í dag en búist var við tuttugu þúsund gestum. 

Innlent
Fréttamynd

Rútum ekið í for­gangs­akstri fram fyrir bílaröðina

„Það er sól í heiði og allir í brosandi góðu skapi,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mikill umferðarþungi hefur verið á leiðinni að Þingvöllum í dag vegna tónlistarhátíðarinnar Bergmáls.

Innlent
Fréttamynd

Svona er stemningin á Þing­völlum í dag

Það er líf og fjör á Þingvöllum í dag þar sem fram fara stórtónleikar Kaleo. Búist er við tuttugu þúsund manns á svæðið en Viktor Freyr Arnarson ljósmyndari Vísis var á svæðinu í dag og fangaði stemninguna.

Lífið
Fréttamynd

Bíll við bíl að Þing­völlum og um­ferð hreyfist hægt

Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending frá Berg­máli á Þing­völlum

Bergmál á Þingvöllum nær alla leið heim í stofu þar sem tónlistarhátíðinni verður útvarpað á Bylgjunni í dag. Hlusta má á útsendinguna í spilaranum hér að neðan en útsendingu lýkur klukkan 16:00 á Bylgjunni.

Tónlist
Fréttamynd

Undrast „leiðin­lega“ Ís­lendinga

Umboðsmenn og tónleikahaldarar eru margir hverjir gáttaðir á umræðunni í kringum tónleikana Bergmál sem haldnir verða á Þingvöllum um helgina. Það sé fullkomlega eðlilegt að ekki megi taka með sér eigin veitingar eða stóla á tónleika. Einn spyr hvort engin takmörk séu fyrir leiðindum þjóðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Að fólk skilji garðhús­gagna­búslóðirnar eftir heima

Tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram á Þingvöllum um næstu helgi og bera yfirskriftina Bergmál. Umræða hafði skapast undanfarna daga á spjallþráðum Facebook-hópa eftir að í ljós kom að stólar, regnhlífar og veitingar yrðu ekki leyfð á svæðinu. Jakob Frímann tónleikahaldari segir enga ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu þó ekki sé gert ráð fyrir því að fólk flytji heilu garðhúsgagnabúslóðirnar með sér.

Neytendur
Fréttamynd

Þing­vellir stærsta verk­efni Kaleo frá upp­hafi

Kaleo snýr aftur heim í sumar eftir að hafa spilað á stórum sviðum víða um heim og orðið ein þekktasta íslenska rokksveit síðari ára. Hljómsveitin segir tónleikana Bergmál á Þingvöllum í sumar þó vera í sérflokki.

Lífið
Fréttamynd

„Við teljum að þetta verði sögu­legir tón­leikar“

Söngvarinn Jökull Júlíusson í Kaleo segir það langþráðan draum að spila á Þingvöllum, einum fallegasta stað landsins. Tónleikarnir Bergmál verði sögulegir og staðsetningin því vel við hæfi. Eftir Þingvelli heldur sveitin til Bandaríkjanna þar sem Kaleo kemur fram á Heimsmeistaramótinu í fótbolta og fer síðan á tónleikaferðalag um Norður-Ameríku.

Tónlist
Fréttamynd

Sau­tján þúsund miðar seldir á Kaleo

Nánast uppselt er á stórtónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Í tilkynningu sem Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari sendi frá sér kemur fram að af þeim tuttugu þúsund miðum sem séu í boði hafi sautján þúsund þegar verið seldir.

Tónlist
Fréttamynd

Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu

Forsala á stórtónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar hófst klukkan tíu í morgun og seldust miðarnir sex þúsund upp á innan við mínútu. Tónleikarnir fara fram 20. júní og mun fjöldi íslenskra tónlistarmanna koma þar fram.

Tónlist
Fréttamynd

Stór­tón­leikarnir verða fyrir neðan Öxar­ár­foss

Gert er ráð fyrir að tuttugu þúsund gestir sæki tónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Tónleikarnir fara fram á grasflötum fyrir neðan Öxarárfoss og þjóðgarðsvörður segir heilan her fólks munu gæta þess að náttúran beri engan skaða af. Hann kannast ekki við tónleikaumsóknir frá Coldplay eða U2.

Innlent