„Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar 3. apríl 2026 09:31 Í tveimur greinum hér á Vísi var fjallað um Fjallræðu Jesú, í þeirri fyrri um sæluboðin og í þeirri seinni um andstöðurnar, en í þessari grein er umfjöllunarefnið bæn í kennslu Jesú og bænin „Faðir vor“. Eitt af metnaðarfyllri verkefnum síðari ára á sviði trúarbragðafræða er safn bænatexta úr fornöld sem stefnt er að komi út á næsta ári—Prayer in the Ancient World. Safninu er ritstýrt af bandarískum fræðimönnum en að verkefninu kemur fræðafólk frá háskólum um allan heim, sérfræðingum í hinum forna heimi. Rannsóknarverkefnið safnar fornum bænatextum án tillits til innihalds og hafnar m.a. þeim skilgreiningum að töfrar og kukl sé hægt að aðgreina frá eiginlegum bænatextum. Bæn er samkvæmt verkefninu skilgreind sem hver sú tilraun til að orða óskir við æðri máttarvöld, hverju nafni sem þau nefnast. Það sem gerir verkefnið svo heillandi, er annarsvegar hversu mikið er varðveitt úr fornöld, en elstu textar okkar úr hinum forna heimi eru einmitt bænatextar, og hinsvegar hversu fjölbreyttir bænatextar eru að formgerð. Bæn er manninum eðlislæg og hefur fylgt manninum frá upphafi heimilda okkar um siðmenningu. Nútíma rannsóknir á bænalífi einstaklinga hafa leitt í ljós fjölþætt jákvæð áhrif á heilsu og velferð einstaklinga sem eiga bænalíf, með því annarsvegar að skoða sálfræðilega þætti á borð við hamingju, seiglu og tilgang í lífi trúaðra og hinsvegar eiginlega líkamlega heilsu. Nýja testamentið er fullt af hvatningu til bæna en eiginlegar bænir eru þó fágætar, og frá Jesú er einungis varðveitt ein formföst bæn sem hann kenndi fylgjendum sínum að fara með. Í Fjallræðunni kennir Jesús að biðja skuli í einrúmi, ekki „í samkundum“ eða „á gatnamótum til þess að menn sjái“ það, til að forðast sýndarmennsku. Þá kennir hann bænina sem flestir kunna, „faðir vor“, en sömu bæn í aðeins annarri mynd er að finna í sambærilegri ræðu í Lúkasarguðspjalli, sem kölluð er Slétturæðan. Um þessa bæn er það fyrst að segja að ávarpið er látlaust af bæn að vera. Í bænasafninu, sem getið var hér að ofan, er að finna ótal bænir sem orðaðar eru hátíðlega til að draga fram þann stöðumun sem er á gyði og þeim sem biður. Seifur var sem dæmi iðulega ávarpaður sem faðir, meðal annars í Hómerskviðum, en ákall til hans var yfirleitt upphafið. Með ávarpinu: „Faðir Seifur, þú sem ríkir á Ídafjalli, þú hinn vegsamlegasti og mesti!“, hefst bæn í Illíonskviðu í þýðingu Sveinbjörns Egilssonar. Í Fjallræðunni er ávarpið, „faðir okkar—πατὴρ ὑμῶν“ og í Slétturæðu Lúkasarguðspjalls, einfaldlega „faðir“. Vor, er þérun, og merkir „það sem tilheyrir oss“, en á þeim tungumálum þar sem þérun er notuð, gegnir hún því hlutverki að skapa fjarlægð á milli þeirra sem talast við. Gríska hefur leiðir til þess að skapa slíka fjarlægð, en πατὴρ ὑμῶν miðlar nánd, ekki fjarlægð. Í þýsku skiptir þérun miklu máli, en í þýskum þýðingum er Guð hér ekki þéraður, ekki frekar en barn mundi þéra föður sinn. „Til komi þitt ríki“ er ákall um að það ríki sem kennsla Jesú miðlar, konungsríki Guðs, verði að veruleika „svo á jörðu sem á himni“, en í því ríki er valdskipulagi heimsins snúið á hvolf. Hin ríku og valdamiklu eru ítrekað áminnt í kennslu Jesú, en hin fátæku upphafin og blessuð, ofbeldi er fordæmt í öllum sínum myndum og elskan er hið æðsta boðorðið. „Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni“. Boðskapur guðsríkisins er róttækastur í samhengi eigna, og þegar kemur að Faðir vorinu í Fjallræðunni hefur Jesús þegar kennt okkur að gefa „þeim sem biður þig og snú[a] ekki baki við þeim sem vill fá lán hjá þér.“ Í kjölfar bænarinnar, lærum við síðan að safna „ekki fjársjóðum á jörðu, ... heldur fjársjóðum á himni ..., [því] [e]nginn getur þjónað tveimur herrum ... Guði og mammón.“ „Gef oss í dag vort daglegt brauð,“ er ákall um að Guð veiti okkur það sem við þörfnumst til daglegs viðurværis—en síðan erum við hvött til að jafna út reikningana í skuldabókhaldinu. Flest skiljum við, „Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum“, sem brýningu um að fyrirgefa þeim sem hafa gert á okkar hlut, en orðfærið er sótt beint í hagfræði samtímans. Í Lúkasarguðspjalli segir bænin, „fyrirgef oss vorar syndir“, „ἁμαρτία“, en það hugtak á grísku þýðir bókstaflega að geiga, að ætla sér markmið sem síðan geigar. Bæði Guðspjöllin segja hinsvegar að við eigum að fyrirgefa vorum skuldunautum, „ὀφείλοντι ἡμῖν“, bókstaflega að við eigum að afskrifa það fé sem aðrir skulda okkar. Hagkerfi heimsins mundu líklega fljótt hrynja ef öll lán hyrfu á augabragði, en kennsla Jesú gagnrýnir einmitt hagkerfi síns samtíma og segir það ósamræmanlegt vilja Guðs. Gagnvart þeim sem kunna að spyrja: „Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast?“ segir hann: „leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.“ Dularfyllsta setning bænarinnar er, „eigi leið þú oss í freistni“, en þar virðist gefið í skyn að Guð geti leitt okkur í freistni. Hljómi orðalagið umdeilt í okkar eyrum, á það sama við um hina frumkristnu hreyfingu og í Jakobsbréfi, sem jafnframt er að finna í Nýja testamentinu, virðist bréfshöfundur bregðast við þessari setningu. Þar segir, „Enginn má segja er hann verður fyrir freistingu: ,Guð freistar mín.‘ ... sjálfur freistar hann einskis manns.“ ... en sæll er „sá sem stenst freistingu ... Guð mun veita ... kórónu lífsins ... þeim er elska hann.“ Bæn Jesú bætir við, „heldur frelsa oss frá illu“. Í þessari bæn er fólgið allt sem segja þarf við Guð, enda veit hann „hvers þér þurfið áður en þér biðjið hann“, en erindið er róttækara en virðist við fyrstu sýn. Sýn Jesú er um heim þar sem elskan er við völd og bænin er ákall um að breyta heiminum í þá átt. Þá sýn ræktum við í einrúmi, í gegnum persónulegt samband við Guð, og iðkum opinberlega með því að lifa í verki gullnu regluna ... „Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þetta er lögmálið og spámennirnir.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurvin Lárus Jónsson Trúmál Mest lesið Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson Skoðun Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Flott að fá það á hreint, Þorgerður Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson skrifar Skoðun Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Horn í síðu fyrirtækjareksturs Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Fæðuöryggi byrjar hér heima Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á heimilisleysi á Íslandi? Bjartur Hrafn Jóhannsson skrifar Skoðun Flott að fá það á hreint, Þorgerður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður við borgarstjórn Reykjavíkur Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Búum við í Norður-Kóreu? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Fyrirframgreiðsla fyrir mannkosti Kári Stefánsson skrifar Skoðun Ekki okkar verðbólga Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Vangaveltur blóðmerabónda Heiðar Þór Sigurjónsson skrifar Skoðun Virðisaukaskattur er frábært fyrirbæri! Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Lífshlaupið - sterkari og heilbrigðari þjóð Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Dauðarefsing gegn börnum Yousef Tamimi skrifar Skoðun Þarf íþróttamaður að vera áhrifavaldur til að ná árangri? Egill Gunnarsson skrifar Skoðun Fjárfestum í verðmætasköpun Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson skrifar Sjá meira
Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson skrifar
Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun