Stöldrum við Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar 31. mars 2026 21:02 Nú í dymbilviku undirbúa kristnir menn páskahátíðina sem framundan er. Hún er margvísleg og má vera alls konar. Sum okkar fara í frí, á skíði, til Tene eða aldrei suður og hlusta á tónlist. En það þurfa líka margir að vinna um þessa hátíð og sinna mikilvægum störfum sem halda samfélaginu gangandi. En af hverju höldum við pàskahàtið ? Á páskum minnumst við píslargöngu Krist og sigri lífsins yfir dauðanum. Við vitum að Kristur var krossfestur á föstudaginn langa en á páskadag var hann upprisinn. Á páskum borðum við flest okkar páskaegg, sem hafa í raun ekkert með páskahátíðina að gera. Margir hafa gaman af því að lesa málsháttinn sem leynist í mörgum súkkulaði eggjum og líta kannski á hann sem vísbendingu um það sem framundan er. Nýverið hef ég dvalið í Japan þar sem jarðskjàlftar eru tíðir líkt og hér. Þar er einungis eitt prósent þjóðarinnar sem er kristin. Búddismi og Sjintóismi eru helstu trúarbröð Japana en Sjintóismi er fjölgyðistrú og andatrú þar sem sem yfirnáttúrulegum verum eru færðar fórnir matur og drykkur í sjintóhofum. Í hofunum má kaupa spádóma á litlum blöðum sem sumir eru góðir en aðrir misgóðir og þá eru þeir brenndir og þeim eytt. Hreinlæti og hreinsunarathafnir eru mikilvægar í sjintóisma en lítil áhersla er lögð á siðaboðskap eða líf eftir dauðann. Búddismi er trúarstefna og heimspekikenning en Budda þýðir sá upplýsti. Buddar eru ekki almáttugir í stíl við Guð kristinna, múslíma eða gyðinga. Buddismi skilgreinir lífið sem þjáningu og siðfræði þeirra byggir á virðingu fyrir öllu lifandi og látlausum lífstíl með huglægri ástundun og sjáfsaga í hugleiðslu með kærleika og vísdómi að leiðarljósi. Japanir taka jöfnum höndum þátt í athöfnum sem tengjast báðum trúarbrögðunum sem endurspeglar viðhorf þeirra að ein trú útiloki ekki aðra. Þannig er fæðingu barna og giftingum fagnað í sjintóhofum með sínum fallegu Tori hliðum en látinna minnst í Budda musterum þar sem ilmur af reykelsi umlykur Budda styttu. Vírðing fyrir öðrum skoðunum og trúarbrögðum er eitthvað sem fleiri þjóðir mættu tileinka sér. Þá væri heimurinn á betri stað í dag ef við bara gætum skilið ólíka siði og trúarbrögð. Í minni bernsku var það siður hjá ömmusystur minni að hlusta á lestur Passíusálmana á föstunni einn sàlm á dag á hverju kvöldi í útvarpinu. Margir hafa eflaust fengið þessa sálma í fermingargjöf í fínni bók en líklega ekki allir lesið þá. Hallgrímur Péturson orti þessa mögnuðu sálma eftir að hann missti dóttur sína Steinunni en legstein hennar er að finna í Hvalsneskirkju en þar þjónaði hann og er það einstök kirkja í mínum huga. Líklegt er að hann hafi samið eitthvað af sálmunum 50 á Suðurnesjum. Hallgrímur færði Ragnheiði Brynjólfsdóttur biskupsdóttur í Skálholti fyrsta eintakið af sàlmunum. Í Passíusálmunum fer hann ekki bara með píslargöngu Krists í bundnu máli, heldur fjallar um sinn eigin vanmátt og veikleika auk þess að gefa lýðnum von og trú og ráðleggingar um hvernig við megum breyta betur. Það er hverjum manni hollt að kannast við uppruna sinn og siði og rækta sína trú. Sú trú má vera alls konar en við eigum að virða okkar hefðir og kunna skil á þeim. Þess vegna munum við hjónin nú á löngum föstudegi lesa sálma séra Hallgríms Péturssonar í Fríkirkjunni í Reykjavík og þannig leita sjálf innàvið og staldra við. Oft hefur verið þörf á en aldrei sem nú að biðja um betri tíð og frið í heimi sem nú virðist vera á heljarþröm með stríðsþyrsta einræðisherra sem virða ekki landamæri, trúarbrögð eða siði annarra ríkja. Stöldrum við og slökum á þegar við íhugum sálma Hallgríms á löngum föstudegi. Lesturinn hefst kl. 11 og öllum er frjálst að líta við og íhuga með okkur og staldra við í bæn um frið. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Páskar Trúmál Ebba Margrét Magnúsdóttir Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar