„Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 31. mars 2026 19:32 Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, verður oddviti Flokks fólksins í Reykjavík. vísir/vilhelm Nýr oddviti Flokks fólksins í Reykjavík segir að ekki sé hægt að bendla hann við flokkaflakk eftir að hafa skipt um flokk fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann segir mestu máli skipta að mikilvæg málefni hljóti hljómgrunn. Það sé gott að fá annað tækifæri eftir að hafa afplánað 16 ár í fangelsi.
Flokkur fólksins boðaði til blaðamannafundar í Tjarnarbíói klukkan eitt í dag þar sem efstu frambjóðendur á lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar voru kynntir ásamt stefnumálum flokksins. Formaður kjördæmisráðs Flokks fólksins í Reykjavík bauð gesti velkomna og kynnti þá fimm frambjóðendur sem eru í fararbroddi og svipti hulunni af nýjum oddvita. „Eins og formaður flokksins segir svo oft. Áfram veginn, björt og brosandi, takk fyrir,“ sagði Guðmundur Ingi Þóroddsson sem uppskar lófaklapp í sal en svipmyndir frá blaðamannafundinum má sjá í spilaranum hér að neðan. Flakkar ekki á milli heldur fylgir málefnunum Guðmundur gegnir formennsku í félagi Afstöðu, réttindafélags fanga og fyrrverandi fanga, og hefur áður starfað fyrir velferðarsvið Reykjavíkurborgar að málefnum viðkvæmra hópa. Auk þess er hann sérlegur sendiherra, Mental Health Ambassador, á vegum EU Promens. Hann telur reynslu sína munu koma að góðum notum. Spurður hvaða mál verði helst á oddinum hjá Flokki fólksins segir hann: „Lífsgæði fólks í borginni. Við erum með húsnæðismálin númer eitt, tvö og þrjú og málefni eldra fólks. Málefni barna með fjölþættan vanda og reyna að stöðva það þegar fólki vantar stuðning og er að falla á milli kerfa.“ Greint hefur verið frá því að Guðmundur sóttist fyrst eftir þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann átti einnig í viðræðum við Vor til vinstri um mögulegt samstarf í kosningunum. „Ég hef verið í stjórnmálum í tólf ár og þetta er í fyrsta skipti sem ég færi mig, þannig ég get ekki sagt að ég flakki á milli. Ég fylgi málefnunum, þar sem þau eiga best heima og fá mestan hljómgrunn. Ég fæ meiri hljómgrunn til að vinna að málefnum jaðarsetrahópa og minnihlutahópa innan Flokks fólksins. Ég hef lengi unnið að þessum málefnum og staðið með þeim.“ Hann kveðst hafa rætt málin með Flokki fólksins í nokkrar vikur. Gott að fá annað tækifæri Guðmundur hefur tvisvar hlotið tólf ára dóm fyrir stórfelld fíkniefnasmygl. Hann segir það jákvætt skref fyrir réttindabaráttu fyrrverandi fanga að vera nú sé einn slíkur að leiða flokk í kosningabaráttu. „Jú vissulega. Það er alltaf gott þegar annað tækifæri er gefið í lífinu en ég stend ekki hér út af minni fortíð sem ég hef þurft að bera ábyrgð á. Ég stend hér út af því hvað ég hef verið að gera eftir það. Það er það sem skiptir máli og það er minn stærsti styrkleiki.“ Telurðu að þetta geti reynst hvatning fyrir fyrrverandi fanga? „Algjörlega og það er þess vegna sem ég er að þessu.“ Er fleira í þínum bakgrunni sem þú telur að muni koma að góðum notum í borgarstjórn? „Alveg klárlega. Öll fortíð er góð,“ segir hann og kveðst spenntur fyrir komandi baráttu. Guðmundur útilokar ekki samstarf við neinn flokk þegar það kemur að því að mynda meirihluta í borginni að svo stöddu. „Ég útiloka engan og við getum myndað samstarf með öllum flokkum sem eru tilbúnir að taka á málefnum Flokks fólksins.“ Stefnumálin kynnt Í tilkynningu segir að Flokkur fólksins leggi áherslu á að einfalda stjórnkerfið og að forgangsraða fjármunum fyrst og fremst í grunnþjónustu við íbúa. Helstu stefnumál eru eftirfarandi: Nauðsynlegt er að taka heildstætt á málefnum eldra fólks með því að fækka fólki markvisst á biðlistum, efla heimaþjónustu og styðja við fjölbreyttari búsetuúrræði. Auk þess verður að stuðla almennt að aukinni virkni og bættum lífskjörum eldra fólks. Ráðist verður í stórfellda uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og smærri íbúðum í samstarfi við óhagnaðardrifin félög. Flokkur fólksins mun stemma stigu við lóðabraski og vinda ofan af ofurþéttingu byggðar með því að útvíkka vaxtamörk borgarinnar. Greiða verður fyrir samgöngum og betra umferðarflæði fyrir alla ferðamáta í borginni. Tryggja þarf að samgöngukerfið virki fyrir alla borgarbúa. Taka verður eðlilegt tillit til þeirra fjölmörgu sem reiða sig á einkabílinn dagsdaglega. Leikskólamálin verða tekin föstum tökum með það að aðalmarkmiði að stytta biðlista verulega. Við viljum skoða mun fjölbreyttari og skilvirkari leiðir til að fjölga plássum og koma betur til móts við þarfir barnafjölskyldna á meðan beðið er eftir varanlegu plássi. Grunnskólakerfið verður eflt með ríka áherslu á gæði menntunar, aukna lestrarkennslu, einstaklingsmiðaðan stuðning og vellíðan barna. Nauðsynlegt er að setja snemmtækan og heildstæðan stuðning við börn og ungmenni sem glíma við fjölþættan vanda í algeran forgang. Leggja þarf ríka áherslu á að þættir innan velferðarkerfisins vinni mun betur saman sem ein heild svo engin fjölskylda upplifi sig týnda í kerfinu.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkur fólksins Reykjavík Borgarstjórn Fangelsismál Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira