Vill að tæp milljón Sýrlendinga yfirgefi Þýskaland Kjartan Kjartansson skrifar 31. mars 2026 10:16 Friedrich Merz, kanslari Þýskslands, (t.h.) með Ahmed al-Sharaa, forseta Sýrlands, í Berlín í gær. Vísir/EPA Kanslari Þýskalands vill að tæp milljón Sýrlendinga yfirgefi landið á næstu þremur árum. Hann áskilur sér þó rétt til þess að halda hámenntuðu fólki eins og læknum og hjúkrunarfræðingum.
Ummælin lét Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, falla á sameiginlegum blaðamannafundi með Ahmed al-Sharaa, forseta Sýrlands, í gær. Um áttatíu prósent Sýrlendinga ættu að snúa til landsins sem þeir flúðu fyrir áratug vegna hatramms borgarastríðs. Rúmar 1,2 milljónir manna af sýrlenskum uppruna voru skráðar í Þýskalandi í lok árs 2024, að sögn evrópska dagblaðsins Politico. Miðað við það vill Merz að tæp milljón manna yfirgefi landið til 2029. „Borgarastríðinu er lokið og nú er í kenningunni tækifæri til að snúa aftur til Sýrlands og við viljum gera það mögulegt saman,“ sagði Merz við hlið sýrlenska forsetans sem var þar til fyrir skemmstu eftirlýstur af Bandaríkjastjórn. Þjóðverjar tóku við miklum fjölda sýrlenskra flóttamanna eftir að borgarastríðið í Sýrlandi hófst árið 2011, sérstaklega í mikilli bylgju flóttamanna sem dreif yfir Evrópu frá 2015 til 2016. Kristilegur demókrataflokkur Merz setti innflytjendamál á oddinn í kosningabaráttu í fyrra undir þrýstingi frá hægri frá Valkosti fyrir Þýskaland sem aðhyllist harðlínustefnu í málaflokknum. Merz heldur því meðal annars fram að það sé gott fyrir Sýrland að Þjóðverjar sendi flóttafólkið til baka þar sem það muni leggja grunn að efnahagslegri endurreisn landsins og uppbyggingu.
Þýskaland Sýrland Flóttamenn Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira