Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó Magnús Jochum Pálsson skrifar 31. mars 2026 09:00 Matthías Tryggvi Haraldsson og Maríanna Clara Lúthersdóttir eru bæði að hætta í stöðum sínum í leikhúsunum. Melkorka Gunborg tekur við af Matthíasi en er óvíst hver tekur við af Maríönnu. Mannabreytingar standa yfir í stóru leikhúsunum tveimur hérlendis. Matthías Tryggvi Haraldsson er hættur sem dramatúrg í Þjóðleikhúsinu og er búið að finna arftaka hans. Þá verður Maríanna Clara Lúthersdóttir ekki áfram dramatúrg Borgarleikhússins en það er hluti af stærri skipulagsbreytingu.
Þetta kom fram í nýjasta þætti hlaðvarpsins Menningarvaktarinnar þar sem leikhúsgagnrýnandinn Símon Birgisson fékk til sín Magnús Jochum Pálsson og Val Grettisson. Ræddu þeir um sýningarnar Mömmó í Borgarleikhúsinu og Gæðablóð í Þjóðleikhúsinu, Óskarsverðlaunin fyrr í mánuðinum og nýja íslensku ævintýramyndina Undir ísnum. Þá vakti Símon sérstaka athygli á mannabreytingum hjá stóru leikhúsunum tveimur. Fer á sinn gamla heimavöll „Hatarinn er hættur í Þjóðleikhúsinu,“ sagði Símon í þættinum en íslenska þjóðin þekkir Matthías Tryggva best sem söngvarara Hatara sem náði góðum árangri með laginu „Hatrið mun sigra“ í Eurovision árið 2019. Matthías sagði skilið við rokkstjörnulífið 2023 þegar hann var ráðinn sem listrænn ráðunautur við Þjóðleikhúsið og tók þar við keflinu af leikskáldinu Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur. Klemens Hannigan og Matthías Tryggvi Haraldsson þegar þeir voru saman í Hatara.Vísir/Getty „Þetta er áhugavert. Þjóðleikhúsið hefur átt gott mót og Matthías á eflaust sinn þátt í því,” sagði Valur Grettisson í þættinum. „Ég er reyndar ekki alveg sammála því að Þjóðleikhúsið hafi átt ótrúlega gott mót,” svaraði Símon og bætti við: „Þeir áttu núna tvær góðar sýningar, Ormstungu og Óresteiu. Fram af því var ekki mikið að frétta, hvorki á þessu leikári eða því síðasta og talvert af floppum.” Samkvæmt heimildum fréttastofu mun Melkorka Gunborg Briansdóttir taka við stöðu Matthíasar en hún hefur áður verið aðstoðarleikstjóri í Óresteiu og Ást Fedru. Melkorka er menntuð í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og sem sviðshöfundur frá Listaháskóla Íslands. Melkorka Gunborg Briansdóttir og Kristín Þorsteinsdóttir.Owen Fiene Blaðamaður sló á þráðinn til Matthíasar Tryggva til að forvitnast um þessi tíðindi. Staðfesti hann bæði brottför sína og að Melkorka myndi taka við keflinu. „Ég elska þetta starf og þetta er ekkert einföld ákvörðun að segja því upp,“ sagði Matthías Tryggvi í samtali við fréttastofu. „Ég fer á minn heimavöll sem er að fást við sjálfstæða listsköpun. Ég er búinn að læra mjög mikið að þjónusta listina með þessum hætti hér og langar að gera það með þeim hætti sem ég þekkti áður, sem er að vera sjálfstætt starfandi listamaður,“ bætti hann við og sagði heilmikið vera í pípunum hvað listina varðaði. Nýr dramatúrg nýs leikhússtjóra En það er ekki bara Matthías sem er að söðla um því í Menningarvaktinni kom fram að dramatúrg Borgarleikhússins, Maríanna Clara Lúthersdóttir yrði ekki áfram í þeirri stöðu. Maríanna var ráðinn dramatúrg leikhússins árið 2020 þegar Hrafnhildur Hagalín færði sig yfir í Þjóðleikhúsið. „Ég er spenntur fyrir næsta leikári hjá Agli. Þetta verður fyrsta leikárið sem hann er algjörlega að stýra,“ sagði Valur. Maríanna Clara Lúthersdóttir.Aðsend „Ég hef miklar væntingar. Hann er náttúrulega ótrúlega öflugur maður og held að það verði áhugavert að sjá og kannski er þetta hluti af því. Verður spennandi að sjá hver verður næsti dramatúrg hjá honum,“ bætti hann við. Fréttastofa heyrði hljóðið í Agli Heiðari Antoni Pálssyni Borgarleikhússtjóra sem staðfesti fregnirnar og sagði að um væri að ræða hluta af stærri breytingum þar sem verið væri að styrkja framleiðslu og forframleiðslu í Borgarleikhúsinu. Maríanna Clara yrði þó áfram í ákveðnum verkefnum og væri að vinna að leikgerð og þýðingu fyrir leikhúsið. Eftir að samtali Símonar lauk við Val og Magnús þá kom tónlistarsérfræðingurinn Trausti í tónlistarhorn þáttarins og ræddi við Símon um nýjustu plötu GDRN og Tómasar R. Einarssonar. Hægt er að hlusta á Menningarvaktina í heild sinni á hlaðvarpi Tals og öllum helstu streymisveitum.
Menning Menningarvaktin Þjóðleikhúsið Borgarleikhúsið Tímamót Tengdar fréttir „Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ Finnur Bjarnason, óperustjóri nýrrar þjóðaróperu, skilur gagnrýni á ráðningu sína en telur sig þó ekki hafa haft forskot á aðra umsækjendur vegna stöðu sinnar. Mikilvægast sé að vera með hreina samvisku. Samvinna við Þjóðleikhússtjóra hafi gengið vel og trúir hann að muni ganga vel áfram. 18. mars 2026 07:00 „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Tvær nýjar íslenskar kvikmyndir fjalla um söguhetju sem glímir við geðröskun, Dimmalimm og Röskun. Menningarvaktin sammæltist um að Röskun væri skemmtileg hrollvekja sem er þó ekki gallalaus meðan Dimmalimm minnti á skólaverkefni án handrits. Leikhúsgagnrýnanda Vísis þykir sorglegt að sjá feril Stefaníu Berndsen á þessum stað. 27. febrúar 2026 07:01 Bestu og verstu leiksýningar síðasta leikárs Hvaða leiksýningar á síðasta leikári voru bestar og hverjar voru verstar? Hvernig endaði jólabókaflóðið og hefur vinsældarlistinn einhverja þýðingu? Hvernig tókst til við ráðningu nýs óperustjóra þjóðaróperunnar, eða óperu undir hatti Þjóðleikhússins? 16. janúar 2026 15:37 Mest lesið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Tónlist Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó Lífið Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Lífið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuviðvörun Lífið „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Lífið samstarf Feiminn í æsku en fann sig í tískunni Tíska og hönnun „Að vera ættleidd er ein stærsta gjöf sem ég og fjölskyldan mín höfum fengið“ Lífið Céline Dion snýr aftur á stóra sviðið: „Ég elska ykkur öll og sé ykkur bráðlega“ Lífið Fleiri fréttir Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó Céline Dion snýr aftur á stóra sviðið: „Ég elska ykkur öll og sé ykkur bráðlega“ Hildur Guðnadóttir hátíðarlistamaður 2026 Í bataferli frá fíkninni Ótrúleg saga Rose Dugdale „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuviðvörun „Það sést ekki á mér að ég sé að upplifa þetta“ Þórbergur og Laxness í ruslinu „Talan á vigtinni hefur sagt mér alltof mikið í gegnum tíðina“ „Að vera ættleidd er ein stærsta gjöf sem ég og fjölskyldan mín höfum fengið“ Krakkatía vikunnar: Nói, bófi og starfsmaðurinn Snjói Áhrifavaldurinn Clavicular handtekinn Back to the Future-leikari látinn Fréttatía vikunnar: Raðvændiskaupandi og baráttan við verðbólgudrauginn Birnir á plötu ársins Laufey Lín söngkona ársins Engdust um af sársauka í túrverkjaherminum Aðalsteinn Lúther: „Þetta er ekki einhver trúarofsi tengdur guðfræðinámi“ Kanóna frá Írlandi gestur í fyrsta hlaðvarpsþættinum Fall Vals í Afríku ætlar að reynast dýrkeypt Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Ágúst tekur við brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum Baldur og Einar komnir með hnausþykkt hár eftir hárígræðsluna Kaleo efnir til tónleikaveislu á Þingvöllum í júní Lætur skemmdaverk á vegglistinni ekki stöðva sig og heldur út Seldu skuldlaust hótel og fóru að leika sér Sjá meira
„Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ Finnur Bjarnason, óperustjóri nýrrar þjóðaróperu, skilur gagnrýni á ráðningu sína en telur sig þó ekki hafa haft forskot á aðra umsækjendur vegna stöðu sinnar. Mikilvægast sé að vera með hreina samvisku. Samvinna við Þjóðleikhússtjóra hafi gengið vel og trúir hann að muni ganga vel áfram. 18. mars 2026 07:00
„Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Tvær nýjar íslenskar kvikmyndir fjalla um söguhetju sem glímir við geðröskun, Dimmalimm og Röskun. Menningarvaktin sammæltist um að Röskun væri skemmtileg hrollvekja sem er þó ekki gallalaus meðan Dimmalimm minnti á skólaverkefni án handrits. Leikhúsgagnrýnanda Vísis þykir sorglegt að sjá feril Stefaníu Berndsen á þessum stað. 27. febrúar 2026 07:01
Bestu og verstu leiksýningar síðasta leikárs Hvaða leiksýningar á síðasta leikári voru bestar og hverjar voru verstar? Hvernig endaði jólabókaflóðið og hefur vinsældarlistinn einhverja þýðingu? Hvernig tókst til við ráðningu nýs óperustjóra þjóðaróperunnar, eða óperu undir hatti Þjóðleikhússins? 16. janúar 2026 15:37