Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Jakob Bjarnar skrifar 1. apríl 2026 09:01 Ótrúlegt er til þess að hugsa að Bubbi sé að verða sjötugur en hann er alltaf mættur í „gymmið“ klukkan sex og hlakkar til hvers tíma eins og barn á jólum. vísir/vilhelm „Allir velkomnir, þetta verður þriggja tíma opin hljómsveitaræfing og haltu kjafti,“ segir Bubbi Morthens tónlistarmaður. Það hvín í honum – hann er hress. Bubbi verður með opna hljómsveitaræfingu í Laugardalshöll í dag klukkan 11.
Athugasemd ritstjórnar: Um var að ræða aprílgabb Vísis árið 2026. Bubbi verður sjötugur 6. júní, eins og alþjóð þekkir, og þá, líkt og áður þegar hann hefur átt merkisafmæli, blæs hann til stórtónleika. Fyrst er það opin æfing og gefst fólki, þeim sem ekki náðu sér í miða, kostur á að sjá hvað verður á boðstólum. „Við ætlum að byrja klukkan 11. Við vorum í gærkvöldi að gera allt klárt. Við fengum ekki að koma inn með allt dótið fyrr en á miðnætti. Þá var „soundtest“. Við erum ekki með kerfið sem verður notað í Höllinni og ekki sviðið heldur en við erum með gott hljóðkerfi frá Exton. Þó að þetta sé æfing verður gott sound því Diddi hljóðmaður verður með okkur. Allir velkomnir. Við verðum þarna til klukkan þrjú.“ Helstu mistökin eru jafnframt helstu sigrarnir Ótrúlegt er til þess að hugsa að Bubbi sé að verða sjötugur enda æfir hann eins og enginn sé morgundagurinn, alltaf mættur í „gymmið“ klukkan sex og hann segist hlakka til hvers tíma eins og barn á jólum. Hann segist ætla að verða hundrað ára. „Ég er sjötugur og enn á topplistum á Spotify. Ef ég væri fótboltamaður væri ég enn inni á vellinum að spila. Ótrúlegt. En þetta er árangur af mikilli vinnu.“ Þó Bubbi þekki höllina vel, og kom þar meðal annars fram á sögufrægum tónleikum með Utangarðsmönnum, þegar þeir hituðu upp fyrir Clash þá á hátindi ferils síns 1980, vill hann láta á Höllina reyna með nýja hljómsveit nú.vísir/vilhelm Bubbi segist „secret-a“ þetta, eins og sagt er. „Ég sé þetta fyrir mér. Og helstu sigrar mínir felast í ósigrunum. Ég veit að þetta er þversögn en engu að síður sannleikur. Eins og Dylan segir: „She knows there's no success like failure and that failure's no success at all“. Að sjá hlutina fyrir sér er mikilvægt og þá að sjá ekki mistök heldur láta hlutina ganga upp. Ég held að það sé rosalega mikilvægt og kannski mikilvægast af öllu, ef maður hugsar þetta.“ Er að fara að veiða lax í Noregi En hvað er þetta með opna æfingu á þessu stigi máls? Það eru tveir mánuðir í tónleikana? „Sko, það seldist upp á báða tónleikana á korteri. Þetta er með ólíkindum. Að einn einstaklingur geti fyllt Laugardalshöllina. Þetta var í desember en tónleikarnir eru 5. og 6. júní. Ég hefði getað verið með uppseldar fjórar Laugardalshallir ef út í það væri farið. En ég er að fara til Noregs að veiða lax 7. júní og ég tími ekki að sleppa því,“ segir Bubbi og gloprar út úr sér leyndarmáli. Hann bítur í tunguna á sér en gerir sér grein fyrir því að það verður ekki aftur tekið þegar hann er að ræða við pressuna. Bubbi segir að um leið og þeir erum komin með fólk fyrir framan sig komi sannleikurinn alltaf í ljós.vísir/vilhelm „Sko, um leið og við erum komin með fólk fyrir framan okkur kemur sannleikurinn alltaf í ljós. Þá ertu farinn að hlusta með eyrum fólksins. Það er galdurinn við opna hljómsveitaæfingu. Við heyrum strax hvað mun virka. Við erum með slatta af nýjum lögum sem við viljum prufa, af nýju plötunni sem er að koma út í endaðan apríl eða í byrjun maí.“ Þrír tímar af Bubba Tvö lög eru þegar komin út og Bubbi segir að hljómsveitin muni prufa fleiri. „Við ætlum að prufa fleiri, það er slatti af nýju efni. Svo þykir okkur gaman að geta leyft fólki að upplifa svona. Þetta verður þriggja tíma æfing. Þetta verða 36 lög, til að geta haft tíu uppklappslög. Fólk er að fara að sjá þrjá tíma af Bubba.“ Æfingar eru þegar hafnar fyrir tónleikana miklu og fyrir löngu. Bubbi segir þá snúast um virðingu fyrir sjálfum sér og ekki síður virðingu fyrir fólki sem kemur á tónleikana. Hljómsveitin kom nýverið fram í þætti Gísla Marteins, Vikunni, lék undir hjá Bubba og Frikka Dór, og virðist vera orðin verulega þétt. Bubbi er með valinn mann í hverju rúmi. „Þetta eru Halldór Fjallabróðir, Baldvin Hlynsson, Gummi Péturs, Elísabet Ormslev, Stefanía Svavars … ég man þetta ekkert. Þetta er ellefu manna hljómsveit, maður. Fólk fékk forsmekkinn af þessu þegar við Frikki Dór mættum til Gísla Marteins fyrir nokkru.“ Fréttin hefur verið uppfærð til að upplýsa lesendur um það að fréttin hafi verið aprílgabb Vísis.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Aprílgabb Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira