Telur ríkisstjórn skemma efnahaginn vísvitandi fyrir ESB-atkvæði Kjartan Kjartansson skrifar 28. mars 2026 07:03 Jón Pétur Zimsen telur ríkisstjórn Þorgerðar Katrínar, Kristrúnar Frostadóttur og Ingu Sæland meðvitað stuðla að verra efnahagsástandi. vísir Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur flest benda til þess að ríkisstjórnin stuðli meðvitað að verra efnahagsástandi til þess að auka líkur á að kjósendur samþykki að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Stjórnin hafi hvata til þess að halda því áfram næstu árin.
Sönnunargögn fyrir þessari samsæriskenningu hrannast upp að mati Jóns Péturs Zimsen, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Í aðsendri grein á Vísi segir hann vaxandi umræðu um hana í samfélaginu og vitnar hann til orða framkvæmdastjóra Visku sjóða og framkvæmdastjóra hvalaskoðunarfyrirtækis eftir vaxtahækkun Seðlabankans í vikunni máli sínu til stuðnings. „Getur það verið að ríkisstjórnin sé meðvitað að stuðla að verra efnahagsástandi til þess að auka líkurnar á því að niðurstaða þjóðaratkvæðisins í lok ágúst verði henni að skapi? Að fólk verði svartsýnna á framtíðina og stökkvi á ESB-vagninn? Ekki síst í ljósi slæms efnahagsástands innan sambandsins? Það megi ekki verða betra hér?“ skrifar þingmaðurinn. Hvati til að halda ástandinu slæmu í fleiri ár Rekur þingmaðurinn vaxandi verðbólgu í upphafi árs einkum til ákvarðana ríkisstjórnarinnar um skattahækkanir sem hafi farið út í verðlag. Ríkisstjórnin sé algerlega kærulaus um þróunina. „Pólitíski hvatinn er fyrir hendi til þess að reyna að auka líkurnar á því að samþykkt verði að setja stefnuna á ESB í lok ágúst. Hann verður áfram til staðar verði það niðurstaðan enda á þá eftir að fá fólk til þess að samþykkja samning eftir einhver ár,“ skrifar Jón Pétur. Segist hann vona að það sé ekki rétt en virðist þó ekki vongóður um að ríkisstjórnin standi ekki í samsæri fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem á að fara fram 29. ágúst. „En flest og sífellt fleira bendir því miður til þess,“ skrifar þingmaðurinn. Jón Pétur vakti athygli fyrir tvær nokkuð framandlegar ræður á Alþingi í vikunni. Í þeirri fyrri virtist hann hæðast að Kristrúnu Frostadóttur með einhvers konar dæmisögu af framhaldsskólanemum. Í þeirri seinni minnti forseti þingsins hann á að þingmenn ættu að tjá sig með orðum en ekki leikmunum þegar hann mætti með barnabók í ræðustól sem var einhvers konar ádeila á ríkisstjórn og ráðherra hennar.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira