Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið var um hvort hefja skyldi á ný viðræður um aðild Íslands að ESB. 52,84 prósent sögðu nei en 47,16 prósent sögðu já.

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst
0 atkvæði
0,0%
+0,0%
0 atkvæði
0,0%
NEI

Fréttamynd

Enn ó­ljóst hvað verður um um­sóknina

Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra segir eðlilegt að málið verði rætt áfram í utanríkismálanefnd og forsætisráðherra segir að skoða þurfi hvernig eðlilegast sé að loka ferlinu. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna boða þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Evrópu­sam­bandið þurfi að vera meira að­laðandi

Þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl segist harma það að Íslendingar hafi hafnað í atkvæðagreiðslu að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann telur þetta til marks um að Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert á­kveðið á fundinum: „Það væru frá­leit við­brögð við þessari niður­stöðu“

Utanríkisráðherra segir að ekkert hafi verið á ákveðið á fundi utanríkismálanefndar, sem boðað var til í morgun. Til umræðu var hvort draga ætti umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka og bókun 35. Formaður Miðflokksins segir að það væri með ólíkindum ef bókunin yrði keyrð í gegnum þingið í kjölfar afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar, segir að sjálfur hefði hann ekki flýtt þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Hann segir ESB líklega enn vilja Ísland inn og telur ólíklegt að þau láti Ísland finna fyrir því fyrir að hafna sambandinu í gær. 

Innlent
Fréttamynd

Mesta kjör­sókn í sögu lýð­veldisins

Kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær var 82,6 prósent. Það er mesta þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu í sögu lýðveldisins. Aðeins í atkvæðagreiðslunni um lýðveldisstofnunina sjálfa var þátttakan meiri en þá kusu rúm 98 prósent þjóðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Stór­kost­legur ó­sigur“ bæði Sam­fylkingar og Við­reisnar

Niðurstaða þjóðaratkvæðisins hefur verið til umfjöllunar á evrópskum miðlum í dag. Heilt yfir eru miðlar sammála um helstu deiluatriði kosningabaráttunnar þar sem já-hliðin tali um kjör almennings á meðan nei-hliðin tefli fram fullveldisrökum og sjávarútvegsmálum. Einhverjir miðlar segja að Ísland hafi með þessu „loka dyrunum“ og aðrir segja niðurstöðuna vonbrigði eða jafnvel bakslag fyrir ESB.

Innlent
Fréttamynd

Nei-hliðin vann á ást­ríðunni

Stjórnmálafræðingur segir að niðurstöðu kosninganna megi skýra af því að já-hliðin hafi einblínt um of á tæknilegar útfærslur á meðan ástríða hafi fengið að ríkja nei-megin. Þjóðernisíhaldssemi var áberandi í kosningabaráttunni og útilokað þykir að niðurstaðan leiði til afsagnar ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Lands­byggðin okkar stendur sterk”

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði ríkisstjórnina í góðu sambandi við landsbyggðina. Landsbyggðin standi sterk en niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar geti þýtt að staða fólks á höfuðborgarsvæðinu sé verri en þeirra á landsbyggðinni. Sterkara ákall hafi verið á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi viðræður en á landsbyggð. 

Innlent
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin virði niður­stöðuna og taki málið af dag­skrá

Formenn ríkisstjórnarflokkanna segjast stoltar af því að hafa lagt málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin hafi fengið sitt að segja og ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og ætli ekki að halda viðræðum áfram. Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða niðurstöðuna og framhaldið. 

Innlent
Fréttamynd

Niður­staðan sé tölu­vert á­fall fyrir ríkis­stjórnina

Formenn stjórnarandstöðu segja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar mikið áfall fyrir ríkisstjórnina. Þau árétta að Evrópusamstarf sé Íslandi enn mikilvægt en skilaboð þjóðarinnar séu skýr til ríkisstjórnar um að einbeita sér að þeim verkefnum sem þau voru kjörin til að leysa, eins og að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þau hafi ætlað að gera það með Evrópusambandinu en meirihluti þjóðar hafi ekki trúað á þá lausn. 

Innlent
Fréttamynd

Sprengi­sandur: Kosningarnar gerðar upp

Kosningarnar verða gerðar upp í Sprengisandi sem er á sínum stað klukkan tíu. Páll Magnússon, nýr stjórnandi þáttarins, tekur á móti formönnum flokka og aðrir ráðamenn en valkyrjurnar ætla ekki að láta sjá sig. 

Innlent
Fréttamynd

Margra ára veg­ferð í vændum sigri já-ið

Verði já-ið ofan á í kvöld er margra ára vegferð í farvatninu að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Kjörsókn endurspegli áhuga fólks á málinu en erfitt sé þegar mjótt er á munum. 

Innlent
Fréttamynd

„Skammist sín og bíti að­eins í sápu“

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að allir hljóti að finnast umræðan í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið óvægin. Hún segir tal um að konur eins og hún hafi verið til sölu í umræðunni vera ógeðfellt.

Innlent