Ég var rekinn Daði Már Kristófersson skrifar 27. mars 2026 09:01 Í gær var mér sagt upp störfum. Ekki með formlegu samtali, ekki með rökstuddri ákvörðun, heldur með heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu. Uppsagnarbréfið var undirritað af BSRB, Kennarasambandi Íslands og Félagi hjúkrunarfræðinga og sett fram sem andsvar við frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þetta „uppsagnarbréf“ stenst hins vegar ekki þær reglur sem gilda um uppsagnir hjá ríkinu, hvorki núgildandi né boðaðar. Það byggir því miður á rangfærslum sem verður að leiðrétta, sérstaklega þegar um er að ræða mál sem snertir þúsundir opinberra starfsmanna. Íslenska ríkið er borið uppi af framúrskarandi starfsfólki sem starfar í þágu almennings. Þjónustukönnun ríkisins hefur margstaðfest það. Ég hef sjálfur verið starfsmaður ríkisins, lengstan hluta míns starfsferils, sem akademískur starfsmaður og sem stjórnandi við Háskóla Íslands. Ég þekki því starfsumhverfi ríkisstarfsfólks nokkuð vel. Nokkrar rangfærslur Í fyrsta lagi er því haldið fram að mistök í starfi verði ekki lengur liðin. Það er einfaldlega rangt. Stefna ríkisins í mannauðsmálum byggir á reglulegri endurgjöf, starfsþróun og þjálfun. Það mun áfram eiga við. Í öðru lagi er gefið í skyn að hægt verði að segja fólki upp samdægurs líkt og gert var í mínu tilfelli. Það stenst ekki. Uppsagnarfrestur ríkisstarfsmanna er að jafnaði þrír mánuðir samkvæmt lögum og kjarasamningum. Í þriðja lagi hefur verið fullyrt að starfsfólk fái ekki tækifæri til að bæta sig. Raunin er sú að samkvæmt stefnu ríkisins í mannauðsmálum er lögð rík áhersla á leiðbeinandi samtöl og reglulega endurgjöf, þar sem starfsfólk fær raunhæf tækifæri til að gera betur. Það er faglegri nálgun en formlegt áminningarferli sem er stíft og einhliða og fylgir viðkomandi starfsmanni sem svartur skuggi starfsferillinn á enda. Í fjórða lagi er því haldið fram að enginn fái annað tækifæri. Það er einföldun sem stenst ekki. Meginreglan er sú að fólk á að fá annað tækifæri. Undantekningar eiga aðeins við um alvarleg brot, svo sem trúnaðarbrot eða EKKO-mál (einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni og ofbeldi). Þar er eðlilegt að vernda vinnustaðinn og þolendur og fjarlægja þá sem brjóta þannig af sér samstundis af vinnustað eins og tíðkast á almennum markaði. Núverandi kerfi hefur verndað gerendur og það á ekki að viðgangast. Í fimmta lagi er gefið í skyn að uppsagnir verði án undanfarandi málsmeðferðar. Það er auðvitað fjarri öllu lagi. Stjórnsýslulög tryggja áfram rannsóknarskyldu, andmælarétt og meðalhóf. Það breytist ekki. Í sjötta lagi er spurt hvaða réttindi verði afnumin næst. Svarið er einfalt: engin. Markmiðið er ekki að rýra réttindi heldur að bæta mannauðsstjórnun og styrkja starfsumhverfi starfsfólks ríkisins. Starfsfólk ríksins metið að verðleikum Ég er þeirrar skoðunar að íslenska ríkið og þjónusta þess sé í höndum hæfs og metnaða-fulls starfsfólks sem sinnir störfum sínum af fagmennsku og vandvirkni. Það væri undarlegt ef ríkið legði sig fram um að ala á ótta og gera starfsfólk óöruggt í störfum sínum. Það er varla til þess fallið að bæta þjónustu og laða að hæft starfsfólk til þess að sinna mikilvægum störfum. Ég hvet því öll sem vilja kynna sér þetta mál að lesa frumvarpið sem er hægt að nálgast á vef fjármála – og efnahagsráðuneytisins og althingi.is. Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Daði Már Kristófersson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Viðreisn Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar