Aðför að opinberum starfsmönnum – burðarásum samfélagsins Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar 26. mars 2026 14:00 Ríkisstjórnin hefur nú boðað frumvarp þar sem lagt er til að fella niður áminningarskyldu og veikja uppsagnarvernd opinberra starfsmanna. Þetta er sett fram sem tæknileg einföldun á „mannauðsstjórnun“ ríkisins, en í raun er hér um að ræða grundvallarbreytingu á réttindum stórs hóps launafólks. Tillögurnar eiga rætur að rekja til hagræðingartillagna sem kallað var eftir strax í upphafi kjörtímabilsins. Það kom í sjálfu sér ekki á óvart að slíkar hugmyndir kæmu fram – atvinnurekendur og hægri öfl hafa lengi sótt að réttindum opinberra starfsmanna, líkt og öðrum réttindum vinnandi fólks. Það sem vekur hins vegar sérstaka athygli er að þessar breytingar skuli koma frá ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar. Slíkt hefðu fáir séð fyrir – að ráðist væri í einhliða skerðingu réttinda án samráðs við verkalýðshreyfinguna. Þetta er ekki einangrað tilvik. Fyrr í vetur ákvað ríkisstjórnin að stytta tímabil atvinnuleysisbóta þrátt fyrir skýr andmæli verkalýðshreyfingarinnar. Nú blasir við að rof hefur myndast milli hennar og stjórnmálaflokka sem hafa átt þétta samvinnu við hana í rúmlega hundrað ár. Á sama tíma er ekki að sjá að stjórnarandstaðan á Alþingi ætli að veita þessum áformum raunverulegt viðnám. Í ljósi samsetningar þingsins er því hætt við að víðtækar skerðingar á réttindum vinnandi fólks fari í gegn með breiðum stuðningi. Samhliða þessu má greina kunnuglegt stef: að gera lítið úr almannaþjónustunni og þeim sem þar starfa. Að draga úr virðingu fyrir störfum í heilbrigðiskerfi, menntakerfi, löggæslu og annarri grunnþjónustu samfélagsins. Slík orðræða er ekki saklaus. Hún undirbýr jarðveg fyrir aðgerðir sem rýrir stöðu fólks sem vinnur þessi mikilvægu störf í okkar þágu og þar með er verið að veikja opinber grunnkerfi okkar allra. Þannig er mikilvægri opinberri þjónustu ýtt í átt til einkavæðingar með umtalsverðum kostnaði, beinum og óbeinum. Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggur ríka áherslu á að standa vörð um almannaþjónustuna og réttindi opinberra starfsmanna. Opinberir starfsmenn eru burðarás samfélagsins sem stjórnmálafólki ber að virða. Þeir halda uppi þjónustu sem við treystum á á hverjum degi – í veikindum, í menntun barna okkar, í öryggi og velferð. Það er óréttlátt að veikja stöðu þeirra og er jafnframt skaðlegt fyrir samfélagið í heild. Við í VG lýsum fullum stuðningi við samstöðu opinberra starfsmanna gegn aðför að stöðu þeirra. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að standa vörð um réttindi þeirra, og þar með um styrk og gæði samfélagsins sjálfs. Höfundur er formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rósa Björk Brynjólfsdóttir Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Sjá meira