Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar 2. október 2026 13:00 Launafólk á við sterk öfl að etja. Sérhagsmunaöfl heimsins eru vel skipulögð og eiga sér marga málsvara. Þau hafa fjármagn, sérfræðinga, aðgang að fjölmiðlum og oft greiða leið að stjórnvöldum. Á móti þarf launafólk að eiga öfluga, einbeitta og vel upplýsta verkalýðshreyfingu sem getur brugðist hratt við, sett mál á dagskrá og mótað umræðuna. Styrkleiki okkar er í fjöldanum og skipulaginu. Við erum vinnumarkaðurinn – við stjórnum ferðinni Eitt allra mikilvægasta hlutverk ASÍ er að sinna hagsmunagæslu í þágu launafólks. Sagan er full af dæmum um vel heppnaða hagsmunagæslu sem hefur verið grunnurinn að lífsgæðum og velferð vinnandi fólks. En það eru líka ótal tækifæri sem hafa farið forgörðum. Um allan heim er þrengt að réttindum og kjörum launafólks og efnahagspólítik samtímans er á meira eða minna keyrð á forsendum þeirra allra ríkustu. Íslensk verkalýðshreyfing, sem er ein sú sterkasta í heimi, hefur alla burði til að verja kjör síns fólks og sækja fram. Við eigum að vera óhrædd við að gera það. Frumkvæði í stað viðbragðs Öflug hagsmunagæsla er ekki rekin með viðbragði. Hún snýst ekki aðeins um að bregðast við þegar frumvörp eru komin fram eða ákvarðanir hafa þegar verið teknar. Verkalýðshreyfingin á að vera skrefinu á undan og greina hvaða breytingar eru í vændum á vinnumarkaði, hvaða hagsmunir eru undir og hvaða afleiðingar ákvarðanir geta haft fyrir launafólk. ASÍ á að geta sett fram eigin tillögur, mótað umræðuna áður en línurnar hafa verið lagðar og tryggt að sjónarmið launafólks séu hluti af umræðunni frá upphafi en ekki viðbót í lokin. Þar skiptir líka máli að sambandið nýti betur þann mikilvæga þekkingarbrunn sem er til staðar innan hreyfingarinnar. Aðildarfélögin þekkja raunveruleikann á vinnustöðunum, sjá breytingarnar oft fyrst og vita hvar skórinn kreppir. Hlutverk ASÍ á að vera að safna þeirri þekkingu saman, greina hana og umbreyta henni í sameiginlegan slagkraft. Launafólk fái sitt réttmæta pláss Ég tel að ASÍ eigi að vera verkfærakista aðildarfélaga sinna og undirbyggja þá stefnu sem sambandið mótar sér. Það gerir sambandið með öflugri greiningavinnu, viðburðahaldi og miðlun. ASÍ á að styðja félögin þegar þau mæta áróðursmaskínum SA og Viðskiptaráðs, aðstoða þau við að undirbyggja kröfur sínar í kjaraviðræðum og tryggja að stjórnvöld heyri alltaf að minnsta kosti jafnmikið frá launafólki eins og frá sérhagsmunaöflunum. Þetta er kjarnahlutverk ASÍ og það þarf að stórefla. Höfundur gefur kost á sér til embættis forseta ASÍ á 47. þingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein ASÍ Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Launafólk á við sterk öfl að etja. Sérhagsmunaöfl heimsins eru vel skipulögð og eiga sér marga málsvara. Þau hafa fjármagn, sérfræðinga, aðgang að fjölmiðlum og oft greiða leið að stjórnvöldum. Á móti þarf launafólk að eiga öfluga, einbeitta og vel upplýsta verkalýðshreyfingu sem getur brugðist hratt við, sett mál á dagskrá og mótað umræðuna. Styrkleiki okkar er í fjöldanum og skipulaginu. Við erum vinnumarkaðurinn – við stjórnum ferðinni Eitt allra mikilvægasta hlutverk ASÍ er að sinna hagsmunagæslu í þágu launafólks. Sagan er full af dæmum um vel heppnaða hagsmunagæslu sem hefur verið grunnurinn að lífsgæðum og velferð vinnandi fólks. En það eru líka ótal tækifæri sem hafa farið forgörðum. Um allan heim er þrengt að réttindum og kjörum launafólks og efnahagspólítik samtímans er á meira eða minna keyrð á forsendum þeirra allra ríkustu. Íslensk verkalýðshreyfing, sem er ein sú sterkasta í heimi, hefur alla burði til að verja kjör síns fólks og sækja fram. Við eigum að vera óhrædd við að gera það. Frumkvæði í stað viðbragðs Öflug hagsmunagæsla er ekki rekin með viðbragði. Hún snýst ekki aðeins um að bregðast við þegar frumvörp eru komin fram eða ákvarðanir hafa þegar verið teknar. Verkalýðshreyfingin á að vera skrefinu á undan og greina hvaða breytingar eru í vændum á vinnumarkaði, hvaða hagsmunir eru undir og hvaða afleiðingar ákvarðanir geta haft fyrir launafólk. ASÍ á að geta sett fram eigin tillögur, mótað umræðuna áður en línurnar hafa verið lagðar og tryggt að sjónarmið launafólks séu hluti af umræðunni frá upphafi en ekki viðbót í lokin. Þar skiptir líka máli að sambandið nýti betur þann mikilvæga þekkingarbrunn sem er til staðar innan hreyfingarinnar. Aðildarfélögin þekkja raunveruleikann á vinnustöðunum, sjá breytingarnar oft fyrst og vita hvar skórinn kreppir. Hlutverk ASÍ á að vera að safna þeirri þekkingu saman, greina hana og umbreyta henni í sameiginlegan slagkraft. Launafólk fái sitt réttmæta pláss Ég tel að ASÍ eigi að vera verkfærakista aðildarfélaga sinna og undirbyggja þá stefnu sem sambandið mótar sér. Það gerir sambandið með öflugri greiningavinnu, viðburðahaldi og miðlun. ASÍ á að styðja félögin þegar þau mæta áróðursmaskínum SA og Viðskiptaráðs, aðstoða þau við að undirbyggja kröfur sínar í kjaraviðræðum og tryggja að stjórnvöld heyri alltaf að minnsta kosti jafnmikið frá launafólki eins og frá sérhagsmunaöflunum. Þetta er kjarnahlutverk ASÍ og það þarf að stórefla. Höfundur gefur kost á sér til embættis forseta ASÍ á 47. þingi.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun