Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Sif Sigmarsdóttir skrifar 26. mars 2026 07:01 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma.
Hvern lengir ekki eftir þeim tíma þegar orðið Hormús hljómaði eins og eftirréttur unninn úr affalls-afurð leikskólastarfs en ekki yfirvofandi heimskreppa? Fáir virðast skilja hvað Trump gengur til með handahófskenndu stríðsbrölti sínu í Íran. Það aftrar þó ekki áhrifamönnum á Vesturlöndum frá því að sýna óskiljanlegum athöfnum hans skilning. Í stað þess að standa í lappirnar og benda á að keisarinn gleymdi ekki bara að bera brúnkukremið á hálsinn á sér og eyrun, tipla bljúgir valdamenn á tánum kringum Trump með krosslagða fingur og von í hjarta um að næsta fórnarlamb þess elds og brennisteins sem rignir yfir heimsbyggðina verði einhver annar en þeir. Eða, eins og sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga, Ólafur Ragnar Grímsson, orðaði það í sjónvarpsþættinum Silfrinu þegar Trump hótaði að hernema Grænland: „Fæst orð bera minnsta ábyrgð“ og „allt kann sá sem bíða kann“. Sagt er að fæst orð beri minnsta ábyrgð.Vísir/Vilhelm Réttsýni kemst ekki á blað yfir heitustu tískufylgihluti ársins 2026. Fleðulæti eru hins vegar orðin pólitískt kænskubragð. Sé horft um öxl sést hins vegar glöggt að slík aðferðafræði gagnast lítt gegn Trump. Bæði kvalari og bjargvættur Í maí á síðasta ári gerði Donald Trump sérstakan viðskiptasamning við Breta. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði daginn „frábæran“ og samninginn „sögulegan“ um leið og hann smjaðraði fyrir forsetanum. Hann lét þess þó ógetið að samningurinn bætti aðeins hluta þess skaða sem nýir innflutningstollar Trump höfðu valdið Bretum. Skopmyndateiknari dagblaðsins The Times fangaði gjörninginn næsta dag í myndasögu sem sýnir Trump hrinda Starmer út í sundlaug. Þar sem Starmer liggur við drukknun kastar Trump til hans björgunarhring. Starmer klöngrast upp úr lauginni og þakkar Trump lífgjöfina með faðmlagi. Maður sem sparkar í geitungabú Trump lætur í veðri vaka að lokun Hormús-sunds sé sönnun þess að Íran sé ógn sem þurfi að uppræta. Trump er eins og maður sem sparkar í geitungabú og álítur það réttlætingu á sparkinu að geitungur skjótist í kjölfarið út úr því og stingi hann í fótinn. Í árásarhug?GETTY Bandaríkjaforseti segir nú þau lönd, sem nýti sér siglingaleiðina um Hormús-sund, þurfi sjálf að sinna þar öryggisgæslu. Trump sé hins vegar náðarsamlegast opinn fyrir því að hjálpa þessum löndum með „vandræði sín í Hormús-sundi“ sé hann beðinn um það. Fráleitt er til þess að hugsa að þjóðarleiðtogar þakki Trump fyrir að bæta skaða sem hann olli sjálfur. Það væri þó ekki í fyrsta sinn. Kjarnorkusamkomulagið sem sprengt var upp Í júní á síðasta ári sprengdi bandaríski herinn upp þrjár kjarnorkurannsóknastöðvar í Íran. Á leiðtogafundi NATO nokkrum dögum síðar kepptust þjóðarleiðtogar við að þakka Donald Trump fyrir að stöðva áform Írana um að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Enginn þeirra vakti hins vegar máls á því að það var Donald Trump sjálfur sem hafði á fyrra kjörtímabili sínu „sprengt upp“ fjölþjóðlegt kjarnorkusamkomulag við Íran, sem haldið hafði kjarnorkuvánni í skefjum með friðsamlegum hætti. Þægðin skilar aðeins háðung Þeir sem gera sér grillur um að aðgerðaáætlunin „fæst orð bera minnsta ábyrgð“ sé líkleg til árangurs vaða í villu og svíma. Spyrjið bara Keir Starmer. Bresk útgáfa af grínþættinum Saturday Night Life, sem sýndur hefur verið í Bandaríkjunum um áratuga skeið, var frumsýnd um síðustu helgi. Undanlátssemi Keir Starmer við Donald Trump var viðfangsefni fyrsta skopatriðis þáttarins. Í stiklunni telur Starmer árangurslaust í sig kjark til að hringja í Trump og tilkynna honum að hann vilji ekki senda bresk herskip í Hormús-sund. Sir Keir makes a difficult phone call. #SNLUK #SNL #SaturdayNightLive pic.twitter.com/GRpKaka3Rj— Sky TV (@skytv) March 22, 2026 Daginn eftir þáttinn áttu hinir raunverulegu Trump og Starmer símafund um ástandið í Hormús-sundi. Áralöng þægð skilaði Starmer litlu öðru en háðung. Rétt fyrir fundinn deildi Trump skopatriðinu af Starmer úr Saturday Night Life á samfélagsmiðli sínum. Hefur okkur öll að fíflum Svo lengi sem Trump vefur valdamönnum – sjálfskipuðum og kjörnum – um fingur sér hefur hann okkur öll að fíflum. Við spriklum nú í sundlauginni sem Trump hrinti okkur út í. Láti hann svo lítið að kasta til okkar björgunarhring ætlast hann til að við þökkum honum fyrir.
Samhengið með Sif Donald Trump Bandaríkin Ólafur Ragnar Grímsson Star Wars Bíó og sjónvarp Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Efnahagsmál NATO Bretland Grín og gaman Tengdar fréttir Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02 Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“. 12. mars 2026 07:00 Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá. 5. mars 2026 07:01 Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið. 26. febrúar 2026 07:03 Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. 19. febrúar 2026 07:00 Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01 Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01 Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00 Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01 Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00 Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins. 9. janúar 2026 07:02 Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Þegar þetta er skrifað stend ég frammi fyrir félagslega flóknu úrlausnarefni. 18. desember 2025 07:01 Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Í fyrra fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Við upphaf talningar blasti við að Íhaldsflokkurinn hafði beðið afhroð. Það aftraði þó ekki flokksjálkum frá því að halda öðru fram í kosningasjónvarpinu. 11. desember 2025 07:01 Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Ég var á leiðinni í göngutúr í vikunni og vantaði hlaðvarp til að hlusta á. Ég bað ChatGPT um meðmæli. Gervigreindarforritið var ekki lengi að grafa upp hlekki á fimm áhugaverð hlaðvörp um efni sem ég hafði tilgreint, birta um þau útdrátt og tilvitnanir í viðmælendur. 4. desember 2025 07:01 Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Árið 2015 greindi breski rithöfundurinn Matt Haig aðdáendum frá umfjöllunarefni næstu bókar sinnar á Twitter. Viðbrögðin urðu önnur en hann ætlaði. 27. nóvember 2025 07:02 Nýsloppin við vinstra vókið þegar það hægra mætti „Allar konur breytast að endingu í móður sína – það er þeirra harmleikur,“ ritaði Oscar Wilde. 20. nóvember 2025 07:01 Lögmálið um lítil typpi Djúpvitur kona gaf mér eftirfarandi heilræði í kjölfar þess að ég greindi henni frá tilvistarlegri áskorun sem ég stend frammi fyrir: „Þú átt ekki að vera að elta lítil typpi,“ sagði hún. 13. nóvember 2025 07:01 Mest lesið Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið Hvað veistu um… IKEA? Lífið Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter Bíó og sjónvarp Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Lífið Elskar að klæða sig upp fyrir jafnvel ekkert Tíska og hönnun Myndaveisla: Þjóðlegir Kvenskælingar dönsuðu og sungu Lífið Kúltúrhjón selja sjarmerandi eign í 101 Lífið Eyjólfur mætti með fjölskylduna á Skrúfudaginn Lífið Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Lífið samstarf Fleiri fréttir Eyjólfur mætti með fjölskylduna á Skrúfudaginn Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Hvað veistu um… IKEA? Myndaveisla: Þjóðlegir Kvenskælingar dönsuðu og sungu Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Kúltúrhjón selja sjarmerandi eign í 101 Rihanna stóð á milli Péturs og þriggja milljóna Lítil prinsessa á leiðinni hjá Sóleyju Smáradóttur Nýjasti spennutryllir Hildar Knúts gerður að kvikmynd Eignaðist fyrstu milljónina fimmtán ára og keypti íbúð átján ára Gunnar Smári lagstur í sjúkrarúm Maríu Lilju Siggi og Alma orðin foreldrar Sassa selur í Skerjafirði Lily Allen orðin að listaverki „Af hverju ertu ekki búinn að hringja í mig?“ Kynusli, ærslagangur og nasistar í kjallaranum Sveppi og Sigurður tignarlegir aftur á bak Einfalt ráð til að venja barn strax af bleyju Þungunarrof megi vera auðvelt val Eitt frumlegasta hús Reykjavíkur á sölu „Heimurinn bara kollvarpaðist“ Tónlistarpar á von á sumarbarni Sjóðheitt listapar selur smart einbýli Skálmöld gæddi sér á hráefni sögulegs „ógeðsdrykkjar“ Annie Mist gaf prinsinum nafn Geislandi gellur í þrumustuði á Edition „Kynslóðin sem ól okkur upp er meira og minna meðvirk” Getur varla horft á sjálfan sig eftir eineltið Stjörnulífið: „Bráðum fær hann að afmeyja mig“ Sjá meira
Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02
Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“. 12. mars 2026 07:00
Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá. 5. mars 2026 07:01
Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið. 26. febrúar 2026 07:03
Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. 19. febrúar 2026 07:00
Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01
Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01
Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00
Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01
Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00
Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins. 9. janúar 2026 07:02
Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Þegar þetta er skrifað stend ég frammi fyrir félagslega flóknu úrlausnarefni. 18. desember 2025 07:01
Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Í fyrra fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Við upphaf talningar blasti við að Íhaldsflokkurinn hafði beðið afhroð. Það aftraði þó ekki flokksjálkum frá því að halda öðru fram í kosningasjónvarpinu. 11. desember 2025 07:01
Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Ég var á leiðinni í göngutúr í vikunni og vantaði hlaðvarp til að hlusta á. Ég bað ChatGPT um meðmæli. Gervigreindarforritið var ekki lengi að grafa upp hlekki á fimm áhugaverð hlaðvörp um efni sem ég hafði tilgreint, birta um þau útdrátt og tilvitnanir í viðmælendur. 4. desember 2025 07:01
Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Árið 2015 greindi breski rithöfundurinn Matt Haig aðdáendum frá umfjöllunarefni næstu bókar sinnar á Twitter. Viðbrögðin urðu önnur en hann ætlaði. 27. nóvember 2025 07:02
Nýsloppin við vinstra vókið þegar það hægra mætti „Allar konur breytast að endingu í móður sína – það er þeirra harmleikur,“ ritaði Oscar Wilde. 20. nóvember 2025 07:01
Lögmálið um lítil typpi Djúpvitur kona gaf mér eftirfarandi heilræði í kjölfar þess að ég greindi henni frá tilvistarlegri áskorun sem ég stend frammi fyrir: „Þú átt ekki að vera að elta lítil typpi,“ sagði hún. 13. nóvember 2025 07:01