Íþróttamaður ársins missti meðvitund á sjúkrahúsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2026 17:35 Eygló Fanndal Sturludóttir með verðlaun sín sem Íþróttamaður ársins 2025. Vísir/Hulda Margrét Meiðsladraugurinn ætlar því miður að halda áfram að elta lyftingakonuna Eyglóu Fanndal Sturludóttur sem er ríkjandi Íþróttamaður ársins en hún greinir frá nýjustu meiðslavandræðum sínum á samfélagsmiðlum.
Eygló varð fyrst Íslendinga til þess að verða Evrópumeistari í ólympískum lyftingum í opnum aldursflokki á Evrópumóti í Moldóvu í apríl 2025 en missti síðan af heimsmeistaramótinu um haustið vegna meiðsla. Eygló hefur unnið markvisst að því að koma til baka en varð fyrir öðru áfalli á dögunum. „Síðustu vikur hafa verið frekar erfiðar,“ byrjar Eygló pistil sinn en þar greinir hún frá því að hún hafi endað á sjúkrahúsi eftir æfingu. Við tóku mjög óhugnanlegar aðstæður fyrir þessa miklu íþróttakonu sem hún lýsir á dramatískan hátt í pistli sínum. Missti meðvitund og hneig niður „Á æfingu hlaut ég mjög sársaukafulla rifu á brjóskþófa og þurfti að fara á spítala. Ég gat hvorki staðið upp né gengið og skalf stjórnlaust. Þau reyndu að koma mér á fætur á spítalanum til að sjá hvort ég gæti gengið en það endaði með því að ég missti meðvitund og hneig niður á gólfið,“ skrifar Eygló. Var algjörlega niðurbrotin „Fyrstu nóttina var ég svo sannfærð um að ég hefði fengið brjósklos og var algjörlega niðurbrotin. Þegar niðurstöðurnar úr segulómuninni komu fann ég fyrir gríðarlegum létti að heyra að þetta væri rifa en ekki brjósklos. Jafnvel þótt það þýði að nokkrar vikur bætist við endurhæfinguna mína, þá eru þetta samt jákvæðar fréttir í stóra samhenginu,“ skrifar Eygló. Á sjúkrahúsi í nokkra daga „Ég þurfti að vera á spítalanum í nokkra daga til að ná tökum á sársaukanum og komast aftur á fætur. Ég þurfti að nota göngugrind fyrstu dagana, sem er eitthvað sem ég hélt að ég þyrfti aldrei að gera. Það var líka súrrealísk upplifun að vera allt í einu sjúklingur á sama spítala og ég hef eytt svo miklum tíma á sem læknanemi,“ skrifar Eygló en hún horfir aftur fram á veginn. „Ég er komin á fætur aftur og er hægt og rólega að meðtaka allt sem gerðist. Vonandi fæ ég grænt ljós á að byrja að æfa aftur bráðlega – og þegar það gerist, þá tek ég einn dag í einu,“ skrifar Eygló. Þau gripu mig svo sannarlega Eygló þakkar fyrir stuðning fjölskyldu sinnar en er líka þakklát fyrir liðið sitt og Afreksmiðstöð Íslands. „Þau gripu mig svo sannarlega þegar þetta gerðist og sáu um allt – ég vissi frá byrjun að ég væri í bestu höndum,“ skrifar Eygló. Saknar þess að lyfta „Það sem ég á erfiðast með núna er einfaldlega hversu mikið ég sakna þess að lyfta. Það var og er enn mesta gleði lífs míns og það eina sem mig langar að gera á hverjum einasta degi. Það er það sem ég minnti mig stöðugt á í gegnum allt þetta og það sem ég reyni að nota sem hvatningu fram á við þegar hlutirnir virðast sérstaklega erfiðir. Ég get bara ekki beðið eftir þeim degi þegar ég kemst aftur undir stöngina,“ skrifar Eygló eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Eygló Fanndal Sturludóttir (@eyglo_fanndal)
Lyftingar Íþróttamaður ársins Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Haaland eldri hraunar yfir dómarana Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Dagskráin í dag: Líflegur dagur í Bestu deildinni Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Hissa á útspili Haalands Hélt haus eftir hrun og vann vinkonu sína í úrslitum Wimbledon FH leiðir í bikarnum og ungir ÍR-ingar fögnuðu titli Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Sjá meira