Hafró fer yfir eigin lokapróf og fær glimrandi einkunn Kjartan Sveinsson skrifar 23. mars 2026 12:03 Landssamband smábátaeigenda hefur um árabil gagnrýnt ráðgjöf Hafró og hefur í því samhengi bent á að ráðgjöfin er oft í hrópandi mótsögn við upplifun sjómanna á miðunum. Nýleg skýrsla Deloitte leiðir í ljós að engir beinir árangursmælikvarðar eru til fyrir veiðiráðgjöf Hafró. Stofnunin bendir sjálf á sögulega þróun á útreiknaðri stofnstærð og afla sem óbeinan mælikvarða. Þetta eru hringrök: ráðgjöfin er metin út frá stöðu stofna – staða stofna er metin út frá ráðgjöf. Enginn ytri, óháður mælikvarði er til staðar. Er það nokkur furða að ráðgjöfin fái glimrandi einkunn þegar það nægir að fara yfir eigin lokapróf. Árangur ráðgjafar Í þessu samhengi er vert að skoða nokkur dæmi þar sem Hafró hefur brugðist bogalistin hvað stofnmælingu og ráðgjöf varðar: Ráðgjöfin fyrir djúpkarfa var 12.384 tonn árið 2020, þremur árum seinna var hún komin niður í 0 og djúpkarfi talinn í bráðri hættu. Humarveiðar hafa nú verið bannaðar um árabil en Hafró gaf þó út ráðgjöf löngu eftir að viðvörunarbjöllur fóru að hringja. Veiði á úthafsrækju hefur dregist saman um 90% frá 1994. Eftir að sandkoli var kvótasettur drógust veiðar á honum saman um 95%. Ráðgjöf í löngu hefur dregist saman um meira en 60% frá 2015 og 70% í keilu frá 2011. 2025 var lélegasta grásleppuvertíð frá upphafi þar sem ráðgjöf Hafró var í sögulegu lágmarki, en þess ber að geta að þær stofnstærðarmælingar sem Hafró styðst við á hrognkelsi er ekki viðkennd af Alþjóða hafrannsóknarráðinu. Að lokum skal það nefnt að smábátasjómenn hafa harðlega gagnrýnt ráðgjöf í þorski og bent á brotalamir í aðferðafræði Hafró í stofnstærðarmælingu. Á haustinu sem leið var t.d. óvenju erfitt fyrir togara á grunnslóð að ná þorski, sem aftur á móti mokveiddist á línu og handfæri. Fiskifræði sjómannsins segir okkur þá að þorskurinn er dreifður og í ætisleit, en þetta virðist ekki ná inn í reiknilíkön Hafró. Ráðgjöf Hafró er grundvöllurinn fyrir allri ákvarðanatöku um aflaheimildir sem ráðstafa þjóðarauðlind að verðmæti hundruð milljarða króna á hverju ári. Þá vaknar spurningin: hvernig getum við vitað að þessi ráðgjöf gefi rétta mynd af stofnstærðum þegar engin skilgreind viðmið eru til að meta hana? Veiðarfæri Hafró verður iðulega eins og köttur í kringum heitan graut þegar spurningin um umhverfisáhrif ólíkra veiðarfæra ber á góma. Erfitt hefur reynst að fá skýra afstöðu stofnunarinnar hvað veiðarfæri varðar þó svo að vísindin séu kýrskýr. Hafró veit sem skyldi að ástæða þess að íslenskir kaldsjávarkóralar séu komnir á válista sé vegna dreginna veiðarfæra. Eins er það óumdeilt að eldsneytisnotkun smábáta per veitt tonn er brot af notkun togara. Hvað ráðgjöfina varðar þá rígheldur Hafró í þá hugmynd að tonn úr sjó er sama og tonn úr sjó. Fjölmargar rannsóknir hafa þó sýnt fram á að töluvert magn af fiski fer undir grjóthoppara og skaddast eða deyr. Rannsóknir frá 1989, 2006 og 2023 sýna allar að 30-50% þorsks sleppur undan botnvörpu með því að fara undir grjóthoppara og skilar sér ekki sem afli. Hlutfallið er hæst hjá ungum og litlum fiski og nálgast 100% hjá minnsta þorskinum. Auk þess benda gögn til þess að helmingur þorsks sem sleppur beri áverka og lifi því ekki af. Út frá þessum niðurstöðum verður að ætla að tilkoma grjóthoppara í stað venjulegra bobbingalengja hafi orðið til þess að auka til muna afföll af smáþorski á togveiðum. Kannski er það hluti af svarinu við milljarða spurningunni: Hvers vegna hefur nýliðun verið slök undanfarna áratugi þrátt fyrir stóra hrygningarstofna? Hlutverk smábáta í gagnaöflun Í skýrslu Deloitte kemur fram að Hafró „á mikið tækifæri til aukins gagnadrifins samstarfs við útgerðir og auka þar með gæði og umfang þeirra gagna sem stofnunin hefur úr að spila við rannsóknir á stöðu botnsjávartegunda.” Þetta er nokkuð sem LS hefur, ásamt fleirum, bent á um árabil. Sem dæmi nefna skýrslusamráðsvettvangs sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um nýtingu helstu nytjafiska frá 2011 en starfshópurinn lagði meðal annars til „að stjórnvöld skipuleggi sérstakt verkefni þar sem „fiskifræði sjómannsins“ sé formlega skilgreind og rannsökuð.“ Þessi tillaga er í samræmi við hugmyndir um samstjórnun (e. co-management) sem teknar hafa verið upp í fiskveiðistjórnunarkerfum víða um heim. Yfirgripsmikil samantekt í Nature á 130 fiskveiðisvæðum í 44 löndum leiddi í ljós að samstjórnun væri farsæl leið til þess að stuðla að sjálfbærri nýtingu sameiginlegra auðlinda. Því miður skynja ég mjög takmarkaðan vilja til þess að innleiða hugmyndafræði samstjórnunar í íslenskri fiskveiðistjórnun. Ef til vill byggir þessi mótþrói á misskilningi. Samstjórnun þýðir í þessu samhengi ekki að sjómenn hafi fullt yfirráð og/eða neitunarvald yfir ráðgjöf Hafró eða að vísindalegum niðurstöðum sé hnekkt með skoðun sjómanna. Þvert á móti er markmiðið að: bæta gæði gagna með því að nýta þá viðveru og þekkingu sem sjómenn afla á sjó á hverjum degi; bæta samskipti þannig að gagnrýni á stofnmat hafi skýran farveg inn í kerfið frekar en í gegnum fjölmiðla eða pólitískar rásir; efla traust með því að sjómenn skilji betur á hvaða grundvelli ráðgjöf er gefin; og auka nákvæmni með því að fanga þekkingu sem hefðbundnar stofnmælingar ná ekki yfir. Í þessu samhengi má færa sterk rök fyrir því að nýta strandveiðitímabilið betur í gagnaöflun og bæta þannig heildarmynd af stöðu þorskstofnsins. Strandveiðiflotinn veiðir á grunnslóð nærri landi. Á hverju strandveiðitímabili safnast þannig gögn um dreifingu, magn og hegðun stofna í nærri öllum helstu veiðimiðum við strendur landsins. Þessi gögn eru í dag ekki nýtt með kerfisbundnum hætti í rannsóknum eða ráðgjöf Hafró. Með afladagbók, stærðarflokkun fiskmarkaða og AIS tækni er þó auðsótt að nýta þessi gögn með betri hætti. Við gætum kallað þetta handfærarall. Smábátaflotinn til þjónustu reiðubúinn Það er ríkur samstarfsvilji til staðar hjá smábátasjómönnum. Við gerum þó þá sjálfsögðu kröfu að stjórnvöld og Hafró mæti okkur með virðingu og á jafningjagrundvelli. Við erum öll að vinna að sama markmiði: að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu á sameign íslensku þjóðarinnar og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Höfundur er trillukarl og formaður Landssambands smábátaeigenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Hafrannsóknastofnun Kjartan Páll Sveinsson Mest lesið Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson Skoðun Halldór 23.05.2026 Halldór Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason Skoðun Hundrað milljarða loforð Dags Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum er ekki háð Evrópusambandsaðild Haraldur Ólafsson Skoðun Olía á eld átaka Hópur fólks í Íslenska náttúruverndarsjóðnum Skoðun Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum er ekki háð Evrópusambandsaðild Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hundrað milljarða loforð Dags Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fólkið fær að ráða för Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson skrifar Skoðun Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Þrefölda svipa verðtryggingar á Íslandi Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er aithingi.is hættulegt lýðræðinu? Kristján Logason skrifar Skoðun Rafbyssugríman er fallin Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju upplifa sumir kjósendur fjarlægð frá Samfylkingunni? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Ár í eldlínunni Einar Bárðarson skrifar Skoðun Íslenskir hermenn? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun „Er pláss fyrir sjálfstæða sjónvarpsmiðla á Íslandi?“ Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar Skoðun „Einsdæmi um réttindamissi“ Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Ekki loka á okkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Ykkur er óhætt að treysta okkur Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fallegu Dalirnir við þjóðveg 60 Þórunn Magnea Jónsdóttir skrifar Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er það glæpur að vilja stunda ábyrgar fiskveiðar? Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Sjá meira
Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason Skoðun
Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar
Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar
Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar
Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar
Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason Skoðun