Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar 20. maí 2026 13:15 Nú eru sveitarstjórnarkosningarnar 2026 afstaðnar og komið að því að mynda nýjan meirihluta í Reykjavík. Hér er ákall í nokkrum liðum í tengslum við menntamál í borginni til þeirra sem eiga eftir að starfa í borgarstjórn. 1. Vandið ákvarðanatöku varðandi menntamál. Við erum enn að súpa seyðið af því þegar hugmyndafræðin „Skóli án aðgreiningar“ var innleidd án nægs undirbúnings og fjármagns til skólanna. Mín skoðun er sú að ef rétt hefði verið staðið að þeirri innleiðingu þá stæðum við ekki í þeim sporum sem við stöndum í dag. 2. Talið við fagfólkið sem þekkir ástandið í raunaðstæðum. Ég verð alltaf jafn undrandi á því þegar mikilvægar ákvarðanir eru teknar án þess að samtal hafi átt sér stað við fagfólk er málið varðar. 3. Takið faglegar ákvarðanir byggðar á þeim gögnum sem til eru. Nóg er til af gögnum til að rýna í en það vantar oft að þau séu nýtt á réttan hátt. Munið að rýna vel í öll gögn og leita skýringa ef spurningar vakna. Hafið í huga að mismunandi niðurstöður eftir skólum hafa sínar skýringar. Þetta er ekki eins og sumir halda að kennarar á Íslandi nenni ekki að vinna vinnuna sína og kenna börnum landsins. 4. Hættið að bera saman búrhvali og ketti. Nemendur eru alls konar og eiga að fá að vera það. Það þarf að koma til móts við þá á þeirra forsendum og til þess þarf að útvega kennurum réttu verkfærin. Samsetning nemendahópa er mismunandi eftir skólum og hverfum. Það vita þeir best sem hafa starfað í fleiri en einum skóla. Forréttindablinda má aldrei hafa áhrif á ákvarðanir okkar í málefnum barna. 5. Setjið verkefni sem réttilega tilheyra ríkinu á herðar þess. Allt of mörg börn þurfa sérhæfðari þjónustu en þá sem hægt er að veita innan almenns grunnskóla. Það þarf að byggja bjargir fyrir þessi börn. Grunnskólarnir eru í dag að fást við verkefni sem eiga sum heima innan heilbrigðiskerfisins og þarf að rétta þá skekkju. Ekkert barn á að þurfa að bíða lengi eftir greiningu eða úrræðum við hæfi því að hver dagur í lífi barns er mikilvægur. Það er ekki í lagi að börn á yngsta stigi þurfi að bíða í einhver ár eftir greiningu né að börnum með fjölþættan vanda sé hent á milli kerfa. 6. Gleymið því ekki að þekking og reynsla fagaðila innan menntageirans skiptir máli og við megum ekki missa meira fagfólk í önnur störf. Það að ungir kennarar sjái sig ekki eldast í starfi er mjög alvarleg staða. Þegar kennarar með reynslu hverfa á braut þá þyngist róðurinn fyrir þá sem eftir eru í faginu. Það eru ekki nein geimvísindi af hverju róðurinn er svona þungur í mörgum leikskólum borgarinnar og vandinn er víða mjög alvarlegur. Hlutfall faglærðra hefur áhrif á gæði skólastarfs og í leikskólum er grunnurinn lagður sem grunnskólarnir byggja síðan á svo við tölum ekki um önnur skólastig þar á eftir. 7. Munið að skólasamfélagið er fjöregg þjóðarinnar sem ber að hlúa vel að. Það er gömul tugga en sönn að ekkert samfélag er sterkara en veikasti hlekkur þess. Skólasamfélagið erum við öll og við þurfum að horfa á það heildrænt. 8. Verið hugrökk og horfið til framtíðar. Það gildir það sama um skólakerfið og foreldrahlutverkið, stundum þarf að taka erfiðar ákvarðanir til farsældar. Í lokin vil ég nefna að það kom mér verulega á óvart í framboðsþætti á RÚV degi fyrir kosningar, þar sem oddvitar allra flokka sem buðu sig fram í Reykjavík komu fram, að ekki var minnst einu orði á málefni grunnskólanna. Samt eru grunnskólarnir með stærri kostnaðarliður borgarinnar. Ég vona að ástæðan sé ekki sú að hann sé ekki talinn mikilvægur og því ekki minnst á hann. Ég biðla til ykkar kjörnu fulltrúar í Reykjavík að gera vel í menntamálum og óska þess að við fagfólkið í skólum borgarinnar eigum eftir að eiga farsælt samstarf við ykkur næstu fjögur árin. Höfum í huga að allar ákvarðanir sem teknar verða næstu fjögur árin munu hafa áhrif og að fiðrildaáhrifin geta bæði verið til góðs og ills. Saman getum við tekið skrefið til farsældar í menntamálum. Höfundur er grunnskólakennari í Reykjavík og sáttamiðlari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar