Gefa Gunnari tilgang Valur Páll Eiríksson skrifar 17. mars 2026 10:31 Gunnar Nelson, UFC bardagakappi og þjálfari hjá Mjölni Vísir/Bjarni Líkt og hjá kollegum þeirra í Reykjavík MMA er mikil gróska í Mjölni hvað varðar bardagafólk sem vill leggja það fyrir sig að komast lengra í íþróttinni og keppa, bæði hér heima og erlendis.
Þrír MMA kappar eru nálægt því að taka skrefið í atvinnumennsku í íþróttinni. Allir kepptu þeir á glæsilegu bardagakvöldi Glacier Fight Night í Framheimilinu á dögunum. Logi Geirsson hefur verið að hasla sér völl í bardagasenunni undanfarin ár og varð nú síðast millivigtarmeistari í Framheimilinu. Mikael Leó Aclipen hefur mikla reynslu þrátt fyrir unga aldur og vann einnig sinn bardaga á umræddu bardagakvöldi sem og Viktor Gunnarsson sem vann titilbardaga á Glacier Fight Night „Þetta eru strákar sem eru allir að fara út í atvinnumennskuna. Hvort sem það verður í næsta bardaga þeirra eða á næsta ári. Mikael þurfti að taka sér smá pásu vegna meiðsla og er að koma aftur til baka núna. Sjáum hvað hann vill gera. En að mínu mati eru allir þessir drengir tilbúnir í að fara í atvinnumennskuna,“ segir Gunnar Nelson, atvinnumaður í greininni. Miklu betri en Gunnar var á sínum tíma Í Mjölni reyna þessir ungu menn að drekka í sig reynslu Gunnars sem hefur í fjórtán ár staðið á stærsta sviði blandaðra bardagaíþrótta hjá UFC og verið atvinnumaður síðan árið 2007. Seinni ár hefur Gunnar æ meira snúið sér að þjálfun og segir það gefa sér rosalega orku. „Þetta gefur manni rosalega orku. Hefur gefið mér tilgang líka. Ég hef mikinn áhuga á þjálfun og alltaf haft mikinn áhuga á því að ýta þessari íþrótt upp hér heima. Þegar ég er að fara af stað með minn feril er það eiginlega bara ekki í boði að æfa hér heima fyrir mig. Ég er því mikið úti,“ segir Gunnar og bætir við: „Markmiðið hjá mér var ekki bara að vera eins góður og ég gat orðið heldur líka að ýta þessari íþrótt upp hér heima. Núna erum við að sjá stráka, sem eru uppaldir hér, sem eru orðnir bara skuggalega góðir. Ef ég má segja það sjálfur þá finnst mér þeir vera miklu betri en ég var á þessum tíma.“
MMA Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira