Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. mars 2026 18:47 Ísleifur segir Laufey ekki hafa haft neinar séróskir baksviðs en að teymið hennar hafi verið spennt fyrir íslenskri pulsu. Skipuleggjendur risatónleika Laufeyjar útveguðu pylsustand baksviðs fyrir söngkonuna og teymið hennar en margir af erlendum samstarfsmönnum hennar voru afar spenntir fyrir því að smakka íslenska pulsu.
Þetta kom fram í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni við Ísleif Þórhallsson skipuleggjanda tónleikanna hjá Senu Live. Það var nóg að gera hjá fyrirtækinu sem skipulagði jafnframt uppistand í Laugardalshöll með finnska uppistandaranum Ismo. Engar séróskir frá Laufey Ísleifur segir í Reykjavík síðdegis að skipulag risatónleikanna á laugardagskvöld og sunnudagskvöld hafi gengið vel. Um er að ræða fjórða skiptið sem Sena Live nýtir sér Kórinn undir tónleikahald en fyrst mætti Justin Timberlake þangað, síðan Bieber og loks Bocelli. Var hún með einhverjar séróskir sem stórstjarna í aðdraganda tónleikanna? „Nei nei, en fyrir okkur var ekki mikill munur að gera þessa tónleika og tónleika með Justin Timberlake eða Justin Bieber. Það eru allir með einhverjar óskir baksviðs um hvað á að vera í herberginu og hvað á að vera í matinn, það er bara túrinn og allt hennar fólk, það koma náttúrulega sextíu manns til landsins og okkur finnst gaman að verða við því öllu og tryggja að öllum líði vel.“ Þarf ég að toga þetta út úr þér? „Ég mun aldrei segja hvað neinn listamaður biður um en þetta var ekkert sérstakt eða furðulegt. Það var svona allskonar íslenskt, túrinn kom til landsins og við spurðum: Viljið þið eitthvað sérstakt? Allir spenntir að koma til Íslands. „Við erum búin að heyra í marga mánuði að það séu einhverjar pulsur sem maður verður að prófa.“ Bæjarins bestu? „Já, Bæjarins bestu. Og það er komið á einhvern stall með Bláa lóninu virðist vera að þú verðir að prófa pylsurnar, þannig við komum þeim skemmtilega á óvart með því að vera með stand baksviðs,“ segir Ísleifur hlæjandi. „Ég hringdi í Bæjarins bestu og þau voru baksviðs föstudag, laugardag og sunnudag, þannig það var mjög næs sörpræs fyrir þau.“
Tónlist Tónleikar á Íslandi Reykjavík síðdegis Laufey Lín Tengdar fréttir Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? „Hver er munurinn á djasstónlistarmanni og extrastórri pizzu? Pizzan mettar fjögurra manna fjölskyldu, en það gerir djasstónlistarmaðurinn ekki.“ 16. mars 2026 10:10 Mest lesið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Fleiri fréttir Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Sjá meira
Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? „Hver er munurinn á djasstónlistarmanni og extrastórri pizzu? Pizzan mettar fjögurra manna fjölskyldu, en það gerir djasstónlistarmaðurinn ekki.“ 16. mars 2026 10:10