Að vita meira í dag en í gær Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 17. mars 2026 07:30 Mikil háreysti er í kringum þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst um hvort halda skuli áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB). Stjórnarandstaðan er í miklu uppnámi og snýr út úr málinu á alla kanta. Það getur aldrei verið skaðlegt að fá frekari upplýsingar og vita meira. Þjóðin mun að lokum ráða því hver niðurstaðan verður. Þjóðin hefur deilt árum saman um kosti og galla þess að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Þá hefur verið deilt um hvort fyrri umsókn sé enn í gildi eða ekki og hvort yfirleitt sé um eitthvað að semja við Evrópusambandið. Upplýsingaóreiðan í kringum Ísland og ESB hefur því verið mikil. Það er því heillavænlegast að þjóðin ráði framhaldinu. Fyrsta skrefið er að spyrja hana að því hvort hefja eigi viðræður um aðild að sambandinu á ný. Ef meirihluti þjóðarinnar vill það hefjast viðræðurnar. Þegar niðurstöður þeirra liggja fyrir verða þær kynntar vandlega og síðan boðað til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu um samþykkt að synjun samnings. Þetta er lýðræðisleg ákvörðun. Stjórnarandstaðan reynir hins vegar hvað hún getur að villa um fyrir þjóðinni og gefur í skyn að fyrri atkvæðagreiðslan sé í raun fyrsta skref Íslands inn í sambandið. Það er hins vegar af á frá. Þjóðin mun hafa síðasta orðið í þeim efnum þegar og ef að samningum kemur. Í fyrri þjóðaratkvæðagreiðslunni er fólk ekki að greiða atkvæði með eða á móti aðild að Evrópusambandinu. Það er því engin hætta á ferðum. Ríkisstjórnin þarf hins vegar skýrt umboð þjóðarinnar til að taka á ný upp viðræður um aðild. Það rímar vel við það sem fyrri leiðtogar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og nú Miðflokks hafa áður sagt. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu einnig til þegar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ákvað að hefja aðildarviðræður árið 2009, að rétt væri að spyrja þjóðina fyrst hvort hún vildi að slíkar viðræður yrðu yfirleitt hafnar. Það er því falskur tónn í málflutningi stjórnarflokkanna nú þegar til stendur að spyrja þjóðina nákvæmlega um það. Það eru líka mikilvæg rök fyrir því að Íslendingar endurskoði stöðu sína eins og ástatt er í heimsmálum um þessar mundir. Staða heimsmála og öryggishagsmunir þjóða hafa breyst mikið frá því Ísland fór í aðildarviðræður árið 2009. Þess vegna er eðlilegt að leggja málið fyrir þjóðina nú. Við ættum að minnsta kosti að geta verið sammála um það. Kannanir sýna að meirihluti landsmanna (um 57prósent) vill fá að greiða atkvæði um framhald viðræðna. Algerlega óháð því hvort fólk styður aðild að sambandinu eða ekki. Að vita meira í dag en í gær er því bæði skynsamlegt og nauðsynlegt. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Alþingi Flokkur fólksins Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar