Enski boltinn

Guardiola af­lýsti æfingu liðsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola ræðir málin við Erling Braut Haaland sem hefur ekki verið að finna markið eftir áramót.
Pep Guardiola ræðir málin við Erling Braut Haaland sem hefur ekki verið að finna markið eftir áramót. Getty/Visionhaus

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, greip til sérstakra aðgerða fyrir úrslitaleik liðsins í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Manchester City hefur nefnilega aflýst æfingu fyrir seinni leikinn sinn í Meistaradeildinni gegn Real Madrid.

Upphaflega áttu hinir ljósbláu að æfa klukkan þrjú að íslenskum tíma en í staðinn fengu Erling Braut Haaland og hinar stjörnurnar frí frá æfingu daginn fyrir viðureignina við spænska risann.

Það er auðvitað stutt á milli leikja hjá City þessa dagana og líkamlegt álag mikið á leikmönnum liðsins.

Guardiola telur þetta vera mikilvægan andlegan undirbúning fyrir hið erfiða verkefni sem er fram undan.

„Þetta helst í hendur. Hvernig þú spilar, ef þú spilar vel, þá ertu líka andlega sterkur,“ sagði Spánverjinn á blaðamannafundi fyrir stórleikinn gegn Real Madrid.

City stendur frammi fyrir gríðarlega erfiðu verkefni í þessum leik, þar sem þeir þurfa að vinna upp 0-3 tap úr leiknum í Madríd.

Því eru miklar líkur á að Haaland og félagar verði úr leik í Meistaradeildinni strax í sextán liða úrslitum sem væri mikið áfall fyrir enska stórliðið en heppnin var ekki með þeim að lenda á móti Real Madrid á þessu stigi keppninnar.

Leikurinn fer fram klukkan 20:00 á annað kvöld og verður í beinni útsendingu á SÝN Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×