Rúmlega 267 þúsund hafa skilað skattframtalinu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 16. mars 2026 12:43 Skilin eru komin upp í 74,3% á þessum tímapunkti sem er tveimur prósentum meira en á sama tíma í fyrra. samsett Rúmlega 267 þúsund manns hafa skilað skattframtalinu þetta árið en landsmenn hafa verið eilítið duglegri við skilin en í fyrra. Skatturinn heldur úti sérstakri símavakt sem fólk getur leitað til ef það er í vandræðum.
Opnað var fyrir skattframtal einstaklinga vegna tekna ársins 2025 þann 27. febrúar. Helga Lilja Aðalsteinsdóttir, deildarstjóri einstaklingsdeildar hjá skattinum, segir að vel hafi gengið í ár. „Klukkan sjö í morgun höfðu rétt rúmlega 267 þúsund einstaklingar skilað, þar af skiluðu tæp átta þúsund yfir helgina og eins og venjulega þá skiluðu langflestir síðustu tvo daga innan skilafrests og voru tæplega 70 þúsund sem skiluðu á fimmtudag og föstudag í síðustu viku. Heimtur voru nokkuð góðar þetta árið.“ Hversu margir eiga eftir að skila? „Skilin eru komin upp í 74,3%.“ En hvað gerist ef einstaklingur skilar ekki framtalinu? „Það eru ekki beinlínis viðurlög en berist framtal ekki þá áætlum við skatta þeirra fyrir síðasta ár og við afgreiðum öll framtöl sem berast innan framtalsfrests og reynum eftir fremsta megni að afgreiða þau sem berast fljótlega eftir þann frest. Það er enn þá opið fyrir framtalsskil þannig að við beinum því til fólks sem eftir á að skila að gera það sem allra fyrst.” Svara um 17 þúsund símtölum Ef við gefum okkur að það sé þarna einhver hluti sem er ekki bara að gleyma sér heldur er í bölvuðum vandræðum með skattframtalið og þarfnast aðstoðar. Hvert er hægt að snúa sér? „Þeir geta leitað til okkar, við veitum aðstoð áfram bæði í síma og með tölvupósti og ef þetta eru mikið þyngri eða flóknari mál þá er gott að leita til fagaðila.” Hún segir að fjölmargir nýti sér aðstoð skattsins. „Við erum með sérstaka símavakt og sérstakt símanúmer sem er opið meðan á framtalsfresti stendur og erum að svara svona um það bil 17 þúsund símtölum beint í það símanúmer.”
Skattar, tollar og gjöld Fjármál heimilisins Mest lesið Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Sjá meira