Viðskipti innlent

Þúfan veltir þungu flat­böku­hlassi

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Vinahjónin Agnes, Jóel Darri, Rannveig og Páll geta brosað breitt því meir en nóg er að gera á Þúfunni sem þau eru þó enn á fullu við að standsetja.
Vinahjónin Agnes, Jóel Darri, Rannveig og Páll geta brosað breitt því meir en nóg er að gera á Þúfunni sem þau eru þó enn á fullu við að standsetja. Mynd/Aðsend

Þegar hinn rómaði flat­bökustaður La Colina í Borgar­nesi hætti sáu vin­konurnar Rann­veig Rögn Leifs­dóttir og Agnes Hjaltalín Andra­dóttir sér leik á borði og hafa opnað veitingastaðinn Þúfuna í húsinu við Hrafna­klett. Undir­tektirnar eru svo góðar að þangað streymir fólk þótt ekki hafi einu sinni gefist ráðrúm til að hengja upp skilti staðarins.

Pizzastaðurinn La Colina opnaði við Hrafna­klett í Borgar­nesi í mars 2016 og festi sig fljótt í sessi sem huggu­legur ef ekki nánast ómissandi viðkomustaður jafnt í hugum heima- og ferðafólks.

Rekstri La Colina var hætt í janúar en ofnarnir eru nú þegar aftur orðnir fun­heitir með til­komu Þúfunnar – Pizzeria & Espresso Bar sem vin­konurnar Rann­veig Rögn og Agnes Hjaltalín opnuðu ný­lega ásamt eigin­mönnum sínum, þeim Páli Einars­syni og Jóel Darra Ólafs­syni.

„Við, vina­hópurinn, vorum búin að vera að leita að ein­hverju skemmti­legu til að gera saman og langaði að fara út í ein­hvern svona rekstur,“ segir Rann­veig. „Einn okkar er mjög áhuga­samur og mikill pizzupælari þannig að hug­myndin fór bara að rúlla og endaði svona. Það var nú ekkert mikið flóknara en það,“ heldur hún áfram og bætir við að hópurinn leggi einnig upp með sam­félags­legar áherslur og að flétta menningar­starf­semi saman við veitinga­reksturinn.

Strax nóg að gera

„Við vorum búin að skoða alls konar mögu­leika og síðan þegar þetta tækifæri kom þá hentaði það bara fjandi vel. Maður þarf náttúr­lega alltaf meiri tíma til að gera og græja en þetta er bara búið að ganga of­boðs­lega vel,“ segir Rann­veig og ekki ber á öðru því staðurinn er ekki full­kláraður en samt meira en nóg að gera.

Hún segir að í upp­hafi hafi staðið til að gera hálf­gerða til­raun með ró­legri opnun í nýliðnu vetrar­fríi án þess að aug­lýsa neitt eða vekja sér­staka at­hygli á staðnum. „Planið var alltaf að loka síðan bara alveg í eina eða tvær vikur í mars og halda áfram að klára það sem er enn ógert. Síðan er bara búið að ganga of­boðs­lega vel og þegar straumurinn byrjaði ákváðum við að hafa bara lokað á mánu­dögum og þriðju­dögum í mars og reyna að klára þá,“ segir Rann­veig og hlær.

Flat­bökurnar á mat­seðlinum eru sex til að byrja með og eru allar þróaðar og unnar frá grunni á staðnum. „Við þróum þetta allt sjálf, gerum deigið og allt frá grunni. Mat­seðillinn núna er tíma­bundinn en við ákváðum að byrja ekki með of margar tegundir heldur byrja á ein­hverju sem við ráðum vel við.

Við erum að vinna í aðeins flóknari mat­seðli en fókusinn er alltaf á góðu hráefni frekar en of miklu úr­vali. Við viljum frekar halda því fersku og góðu sem við erum með.“

Skiltið ekki komið upp

Rann­veig segir heimafólk búið að vera of­boðs­lega dug­legt að mæta og sé „greini­lega spennt fyrir því að eitt­hvað nýtt sé að koma með meiri fjöl­breytni í flórunni hérna í heima­byggðinni. Síðan hefur alls konar fólk líka bara staldrað við. Fólk á ferða­lagi, út­lendingar og allur skarinn.“

Rann­veig segir ljóst að þarna fari bæði fólk sem hefur vanið komur sínar á La Colina sem og fólk sem eigi bara leið fram hjá. „Mér finnst þetta stundum bara alveg ótrú­legt. Við erum ekki einu sinni búin að ná að setja upp skilti hérna fyrir utan og höfum ekkert aug­lýst eða neitt.“

Rann­veig segir skilti staðarins og aug­lýsingar enn í vinnslu, eins og svo margt annað.

„Þannig að þetta er bara mjög fín byrjun. Það þurfti að gera margt og við höfum gert helling og enn er fullt eftir. Þetta mun bara koma til með að vera svolítið lifandi, bara í stöðugri þróun og breytast hægt og ró­lega.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×