Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Agnar Már Másson skrifar 14. mars 2026 20:41 Íranir biðla til fólks í Sameinuðu arabísku furstadæmunum að rýma hafnir, bryggjur og einnig „felustaði Bandaríkjamanna“. Bandaríkin gerðu árás á „krúnudjásnið“ Kharg í nótt og eru Íranir hinir reiðustu fyrir vikið. Samsett Mynd Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans.
Að sögn Reuters hafa hið minnsta tvö þúsund manns fallið í stríði Bandaríkjanna og Ísrael við Íran sem er nú komið á þriðju viku. Flest dauðsföllin eru í Íran en einhver í nágrannaríkjum. Í nótt sprengdu Bandaríkjamenn skotmörk á smáeyjunni Kharg í Íran, sem er aðalútflutningshöfn Írana fyrir hráolíu. Þaðan kemur um 90 prósent af olíu frá Íran. Bandaríkjaher sagðist í færslu á X aðeins hafa ráðist á hernaðarmannvirki á eyjunni. Kharg er lítil eyja í Persaflóa sem tilheyrir Íran. Hún er ein mikilvægasta miðstöð landsins fyrir olíuflutninga og er fyrir vikið kölluð „krúnudjásn“ landsins.AP Íranir heita nú hefndum þar sem þeir segjast nú hafa ákveðin mannvirki í Mið-Austurlöndum í sigtinu sem tengjast Bandaríkjunum. Írönsk drónaárás hefur þegar haft áhrif á olíuflutninga í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag, nánar til tekið í Fujairah, þar sem stór reykmökkur sást stíga upp þar sem Bandaríkjamenn höfðu gert árás. Reykmökkur stígur upp úr olíumannvirki í arabíska furstadæminu Fujairah eftir árás í dag,AP Sendiráð Bandaríkjanna í Bagdad, höfuðborg Íraks, hefur nú brýnt fyrir bandarískum ríkisborgurum að yfirgefa landið eftir að vígamannahópur sem nýtur stuðnings Írana lýsti yfir ábyrgð á árás á senidráðið. Árás á ísskápaverksmiðju Hið minnsta fimmtán féllu í loftárás sem gerð var á ísskápa- og ofnaverksmiðju í Isfahan í Mið-Íran í dag, samkvæmt hálfríkisreknu fréttaveitunni Fars. Ísraelsher og Bandaríkjaher hafa ekki tjáð sig um árásina. Talsmaður íranska hersins hvatti fólk í Sameinuðu arabísku furstadæmunum til að rýma hafnir, bryggjur og „felustaði Bandaríkjamanna“ og sagði að bandarískar hersveitir hefðu gert árásir á íranskar eyjar frá þessum svæðum. Íranskur maður hrópar er hann fylgist með líki hershöfðingjans Ali Shamkhani vera borið til grafar í Tehran.AP Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt því fram í samfélagsmiðlafærslu í dag að „mörg lönd“ hygðust senda orrustuskip til Mið-Austurlanda til þess að greiða fyrir olíuflutningum um Hormússund. Hann nefndi þar Kína, Frakkland, Suður-Kóreu, Breta og fleiri en ekkert þessara ríkja hefur staðfest þetta. Haft er eftir talsmanni bresku ríkisstjórnarinnar í frétt Reuters að samræður standi yfir um hvernig megi tryggja olíuflutning á svæðinu. Mojtaba Khamenei, sem er tekinn við sem æðstiklerkur eftir að Ísraelsher felldi föður hans í lok febrúar, hefur sagt að Hormússund eigi enn að vera lokað. Khamenei hefur ekki sést opinberlega frá því að stríðið hófst og hefur aðeins verið haft eftir honum úr skriflegum yfirlýsingum sem lesnar eru í ríkissjónvarpi Írans. Mynd af Mojtaba Khamenei fyrir framan föður hans, Ali Khamenei.AP/Vahid Salemi Um 800 manns fallið í Líbanon Ísraelsmenn hafa gert árásir á fjölda skotmarka sem þeir segja tengjast Hezbolla síðustu tvær vikur og gefið í eftir að Íranir og Hezbollah gerðu samræmdar og umfangsmiklar árásir á Ísrael á miðvikudag. Ísraelsher hefur beint þeim tilmælum til íbúa á stóru svæði sem nær til nokkurra borga og fjölda þorpa að flýja heimili sín og halda norður. Um 800 manns hafa fallið og meira en 850.000 manns hafa þurft að flýja heimili sín, að sögn AP. Viðbragðsaðilar rannsaka íbúðarhúsnæði í Sidon í Líbanon eftir árás Ísraelsmanna í dag. Maður stendur ofan á rústum húsa í Dahiyeh, fyrri utan í Beirút í Líbanon.AP
Íran Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Írak Líbanon Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira