Arfleifð Davíðs Jón Baldvin Hannibalsson skrifar 15. mars 2026 15:00 Það má flokkast undir hótfyndni að leiðir okkar Davíðs Oddssonar lágu óvænt saman – allt út af tengslum Íslands við Evrópu. Ég þekkti hann bara af afspurn. Bryndís talaði um listræn tilþrif í Bubba kóngi á Herranótt MR. Sjálfur hafði ég lúmskt gaman af gráglettni þeirra Matthildunga. Sumsé: Maðurinn var sagður skjótur til ákvarðana og að hann hefði húmorinn í lagi. Þar að auki hafði ég spurnir af því, að sem formaður framtíðarnefndar Sjálfstæðisflokksins hefði hann boðað aðild Íslands að Evrópusambandinu (í framtíðinni). Það var góðs viti, þótt flokkur hans hefði í stjórnarandstöðu, lýst andstöðu við EES-samninginn, rétt eins og Kvennalistinn. Vorið 1991 voru Alþingiskosningar. Ég hafði þá sem utanríkisráðherra vinstri stjórnarinnar (1988-91) lokið efnislega við EES-samninginn með hinum EFTA ríkjunum, um aðild okkar að innri markaði Evrópusambandsins. Kosningarnar snérust um fátt annað. Á dauða mínum gat ég átt von en ekki því að samstarfsmenn mínir, þeir Steingrímur og Ólafur Ragnar, hlypust undan merkjum og fyndu nú samningnum, sem við bárum sameiginlega ábyrgð á, allt til foráttu. Allt af misráðinni kjósendahræðslu Vinstri stjórnin hélt velli með eins þingmanns meirihluta. Ég vissi sem var, að EES-samningurinn markaði tímamót; hann yrði lyftistöng framfara – og fjölbreyttara atvinnulífs – á komandi árum, eins og reynslan hefur staðfest. Ég var staðráðinn í að gera allt sem í mínu valdi stæði til að tryggja samningnum framgang. Eftir kosningar vildu samstarfsflokkarnir halda stjórnarsamstarfinu áfram, eins og ekkert hefði í skorist. Buðu mér m.a.s. forsætisráðherrastólinn sem dúsu. Það tók mig dagsstund að ganga úr skugga um að þeir gætu ekki tryggt þingmeirihluta fyrir samningnum – þrátt fyrir fögur fyrirheit. Ég afþakkaði því pent hnossið – og snéri mér að formanni framtíðarnefndar Sjálfstæðiflokksins, sem var þá nýkjörinn formaður Flokksins. Væri hann tilbúinn til að skipta um stefnu fyrir stól? Það var fastmælum bundið í okkar fyrsta samtali. Það tók svo aftur dagsstund úti í Viðey að klára stjórnarsáttmálann, enda var ég með hann tilbúinn í vasanum. Þetta gekk svo hratt fyrir sig að við gleymdum alveg að spyrjast fyrir um umboð frá Bessastöðum! Samningurinn var samþykktur á Alþingi Íslendinga árið 1993 (á 89 ára afmæli Hannibals) með 33 atkvæðum gegn 23 – 7 sátu hjá (þ.á.m. Halldór Ásgrímsson og hans menn). Eftir stendur þetta: Viðeyjarstjórnar Davíðs Oddssonar verður að góðu getið í Íslandssögunni – vegna EES-samningsins – enda vilja nú (næstum) allir þá Lilju kveðið hafa. Síðan hafa margir misjafnlega-góðviljaðir menn gefið mér að sök að bera ábyrgð á (of löngum) valdaferli Davíðs og Eimreiðarhópsins, sem við öll vitum hvernig endaði – of mörg af sárri reynslu. Ég vísa öllum slíkum brigslyrðum til baka, til föðurhúsanna. Þetta var sjálfskaparvíti þeirra félaga, Steingríms og Ólafs Ragnars.Við erum að tala um einhver mestu mistök vinstri manna á liðinni öld, og er þó af nógu að taka. Steingrímur viðurkennir þetta hispurslaust í 3. bindi ævisögu sinnar (eftir Dag B. Eggertsson). Hann segir „að það hafi verið mistök af „sinni“ hálfu að setja andstöðu við Evrópubandalagið á oddinn.“ (bls.345) Hvílík mistök! Hefðu samstarfsflokkarnir ekki hlaupist brott frá ábyrgð sinni á EES, hefði vinstri stjórnin setið áfram við völd. Þetta var óvenju vel mönnuð ríkisstjórn sem hafði náð ótvíræðum árangri. Hún hefði notið góðærisins sem fylgdi í kjölfar EES. Að sama skapi hefði hinn nýkjörni formaður Sjálfstæðisflokksins orðið að láta sér leiðast í stjórnarandstöðu við sára málefnafátækt og daufar undirtektir. Vinstri öflin hefðu sameinast en Sjálfstæðisflokkurinn hefði sennilega klofnað fyrr en ella, m.a. vegna Evrópumála. Eftir að EES-samningurinn var í höfn var erindi Viðeyjarstjórnarinnar eiginlega lokið. Stór ágreiningsmál biðu lausnar. Ég er að tala um auðlindastefnu og auðlindagjöld, bremsu á einkavinavæðingar-faraldri frjálshyggjutrúboðsins og nauðsyn félagslegra lausna á húsnæðismarkaðnum, svo dæmi séu nefnd. Þetta kallaði á sameiningu vinstriaflanna í stóran jafnaðarmannaflokk með öfluga verkalýðshreyfingu að baki. Sumsé: Norrænamódelið gegn eftiröpun á amerískum kapítalisma. Áður en á þetta mætti reyna fann heilög Jóhanna hjá sér þörf til að kljúfa Alþýðuflokkinn rétt einu sinni enn, í nafni einhvers, sem hún kallaði „Þjóðvaka“. Mér var ljóst að þar með hefði ég enga samningsstöðu til sjórnarmyndunarviðræðna. Ég naut mín að vísu í kosningarbaráttunni 1995 sem aldrei fyrr, enda engu að tapa en allt að vinna. Þjóðvaki sá sér þann kost vænstan að snúa heim í þingflokk Alþýðuflokksins að kosningum loknum. En það var of seint til að nýtast í taflinu um stjórnarráðið. Það er svo viðeigandi fótnóta við þessa frásögn að ég gegndi skyldum mínum sem utanríkisráðherra þessa daga sem stjórnarmyndunarmakkið milli Sjálstæðisflokks og Framsóknar fór fram 1995. Í því fólst að vera gestgjafi utanríkisráðherra Kína, Qian Qichen, sem hér var í opinberri heimsókn. Hann varð hreint út sagt uppnuminn af íslenskri náttúru. Við vorum að leika okkur á snjósleðum upp á jökli, þegar mér barst til eyrna, að Björn Bjarnason hefði setið í leynilegum stjórnarmyndunarviðræðum með Halldóri Ásgrímssyni. Það var reyndar fyrir kosningarnar, áður en ríkisstjórnarsamstarfi okkar var slitið. Það var réttlætt með því að þar með hefðu Sjálfstæðismenn komið fram hefndum fyrir stjórnarslit ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar, sem urðu í beinni útsendingu í sjónvarpi haustið 1988. Það tók svo þjóðina meira en þrjú kjörtímabil að komast að því fullkeyptu, til hvers það stjórnarsamstarf leiddi: Þriðja stærsta þjóðargjaldþrot fjármálasögunnar – hvorki meira né minna. Sú saga er varðveitt á 3000 blaðsíðum í 9 bindum vitringanna þriggja í Rannsóknarskýrslu þeirra til Alþingis um orsakir og ábyrgð hrunsins. Það er enn of snemmt – og of viðkvæmt fyrir marga – að gera dæmið upp. Það bíður enn sagnfræðinga framtíðarinnar að kafa til botns í þeirri sögu, eftir að persónur og leikendur, sem þar gegndu aðalhlutverkum, verða öll horfin af sjónarsviðinu. (Höfundur var formaður Alþýðuflokksins – Jafnaðarmannaflokks Íslands – 1984 – 1996) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Baldvin Hannibalsson Andlát Davíðs Oddssonar Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun