Húrra dregur saman seglin Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. mars 2026 09:48 Tveimur af þremur verslunum Húrra Reykjavíkur hefur verið lokað, Hverfisgatan lifir áfram. Vísir/Lýður Valberg Eigendur tískufataverslunarinnar Húrra Reykjavíkur hafa ákveðið að loka útibúum búðarinnar í bæði Kringlunni og Smáralind til að einbeita sér að versluninni á Hverfisgötu. Stutt er síðan útibúi verslunarinnar í Leifsstöð var lokað.
Greint er frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum Húrra Reykjavíkur undir yfirskriftinni: „Sagan heldur áfram á Hverfisgötu.“ „Við höfum ákveðið að loka verslunum Húrra í Kringlunni og Smáralind til þess að einbeita okkur að heimavellinum á Hverfisgötu,“ segir í tilkynningunni. Í tilkynningunni segir að smásala hafi tekið miklum breytingum frá því Húrra var opnuð árið 2014. Rekstur sjálfstæðrar íslenskrar verslunar hafi aldrei verið auðveldur en alltaf þess virði. „Nú er komið að því að einfalda hlutina og fara aftur að rótunum. Húrra byrjaði sem hugmynd tveggja vina sem vildu bjóða upp á þann fatnað og skó sem þeim fannst vanta. Verslunin á Hverfisgötu verður áfram hjartað í Húrra og áherslan áfram á fallegar vörur í afslöppuðu umhverfi með persónulegri þjónustu,“ segir í tilkynningunni. Þá þakka þeir öllum þeim sem hafa stutt verslunina í gegnum árin, keypt sér flík og drukkið vínglas og öllu starfsfólkinu sem hefur unnið hjá þeim síðustu ellefu ár. „Þetta er ekki endirinn. Við erum að draga saman seglin og undirbúa Húrra fyrir næsta kafla. Við byrjuðum hér, og hér höldum við áfram. Sjáumst á Hverfisgötu,“ segir að lokum í tilkynningunni.
Verslun Tímamót Reykjavík Kringlan Smáralind Tíska og hönnun Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira