Formúla 1

Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftir­sjár

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Mercedes menn brosandi á verðlaunapalli en Charles Leclerc hjá Ferrari með fýlusvip.
Mercedes menn brosandi á verðlaunapalli en Charles Leclerc hjá Ferrari með fýlusvip. Joe Portlock/Getty Images

George Russell hjá Mercedes fagnaði sigri og liðsfélagi hans Kimi Antonelli varð annar í fyrsta kappakstri tímabilsins í Formúlu 1. Ferrari var með forystuna en gerði dýr mistök. 

Formúlu 1 tímabilið fór frábærlega af stað og það virðist nokkuð ljóst að Ferrari og Mercedes muni berjast um verðlaunapallinn oft á þessu tímabili. 

Heimamaðurinn í Ástralíu, Oscar Piastri hjá McLaren, lenti hins vegar í vandræðum og klessti sinn bíl áður en kappaksturinn hófst. 

Charles Leclerc og Lewis Hamilton hjá Ferrari komu fljúgandi út úr startholunum í fjórða og sjöunda sæti. 

Fljótlega var Leclerc orðinn fremstur en forystan átti eftir að skiptast höndum sjö sinnum á fyrstu níu hringjunum. 

Leclerc var fremstur með Russell og Hamilton í eftirdragi þegar bíllinn sem Isack Hadjar keyrir fyrir Red Bull bilaði á ellefta hring.

Öryggisbíllinn kom þá út á braut. Ferrari liðið ákvað að taka áhættu með því að sleppa pittstoppi á meðan Mercedes skellti sér inn í bílskúr til að skipta um dekk.

Áhættan borgaði sig ekki því þó Ferrari hafi náð góðu forskoti kom öryggisbíllinn aldrei aftur út á braut. Þegar Ferrari gerði loks dekkjaskipti á 26. og 29. hring tapaðist dýrmætur tími og forystan fór til Mercedes.

George Russell varð þá aftur fremstur, með liðsfélagann Kimi Antonelli fyrir aftan. Þeir kláruðu kappaksturinn af kostgæfni og gáfu forystuna ekki eftir.

Eftir fyrsta kappakstur tímabilsins eru þeir Russell og Antonelli því efstir í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra.

Mercedes toppar sömuleiðis listann í keppninni um heimsmeistaratitil bílasmiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×