Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. mars 2026 09:42 Mercedes menn brosandi á verðlaunapalli en Charles Leclerc hjá Ferrari með fýlusvip. Joe Portlock/Getty Images George Russell hjá Mercedes fagnaði sigri og liðsfélagi hans Kimi Antonelli varð annar í fyrsta kappakstri tímabilsins í Formúlu 1. Ferrari var með forystuna en gerði dýr mistök.
Formúlu 1 tímabilið fór frábærlega af stað og það virðist nokkuð ljóst að Ferrari og Mercedes muni berjast um verðlaunapallinn oft á þessu tímabili. Heimamaðurinn í Ástralíu, Oscar Piastri hjá McLaren, lenti hins vegar í vandræðum og klessti sinn bíl áður en kappaksturinn hófst. Charles Leclerc og Lewis Hamilton hjá Ferrari komu fljúgandi út úr startholunum í fjórða og sjöunda sæti. Fljótlega var Leclerc orðinn fremstur en forystan átti eftir að skiptast höndum sjö sinnum á fyrstu níu hringjunum. Absolutely sending it into the lead! 😮💨We'd been expecting a fast Ferrari start, and Charles Leclerc certainly delivered one 💨#F1 #AusGP pic.twitter.com/3yZqgVDXW7— Formula 1 (@F1) March 8, 2026 Leclerc var fremstur með Russell og Hamilton í eftirdragi þegar bíllinn sem Isack Hadjar keyrir fyrir Red Bull bilaði á ellefta hring. Öryggisbíllinn kom þá út á braut. Ferrari liðið ákvað að taka áhættu með því að sleppa pittstoppi á meðan Mercedes skellti sér inn í bílskúr til að skipta um dekk. Áhættan borgaði sig ekki því þó Ferrari hafi náð góðu forskoti kom öryggisbíllinn aldrei aftur út á braut. Þegar Ferrari gerði loks dekkjaskipti á 26. og 29. hring tapaðist dýrmætur tími og forystan fór til Mercedes. George Russell varð þá aftur fremstur, með liðsfélagann Kimi Antonelli fyrir aftan. Þeir kláruðu kappaksturinn af kostgæfni og gáfu forystuna ekki eftir. We reckon George is happy with that result! 😆#F1 #AusGP pic.twitter.com/yZyDG4ZYB9— Formula 1 (@F1) March 8, 2026 Eftir fyrsta kappakstur tímabilsins eru þeir Russell og Antonelli því efstir í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra. The Constructors' points are in! 👊Let's take a look at how the teams stack up... ⬇️#F1 #AusGP pic.twitter.com/nZvmSGykSp— Formula 1 (@F1) March 8, 2026 Mercedes toppar sömuleiðis listann í keppninni um heimsmeistaratitil bílasmiða. Mercedes are off to an impressive start! 😮💨This how our Drivers' Standings look... ⬇️#F1 #AusGP pic.twitter.com/CbUP3fBPHo— Formula 1 (@F1) March 8, 2026
Akstursíþróttir Mest lesið Týnda treyjan var ekkert týnd heldur í einkasafni Madonnu Fótbolti Eru að borga Messi tíu milljarða á ári Fótbolti Bæði lögreglumenn og stuðningsmenn slösuðust í látunum eftir leik Fótbolti Tók dóttur sína með sér í sjónvarpsviðtalið og hún sló í gegn Sport „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Körfubolti Sjáðu markasýningu Viggós í dag Handbolti Stuðningsmaður tók VAR úr sambandi Fótbolti Villisvínin eyðilögðu fótboltavöllinn Fótbolti Sigurjón með 61 prósent markvörslu í norsku deildinni Handbolti Andrea byrjuð að slá met í Ástralíu: „Stærsti sigurinn“ að finna gleðina á ný Sport Fleiri fréttir Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira