Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Lovísa Arnardóttir skrifar 7. mars 2026 08:12 Masoud Pezeshkian, forseti Íran, brást við orðum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í dag. Vísir/EPA Masoud Pezeshkian, forseti Íran, segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf „draum sem þeir ættu að taka með sér í gröfina“. Íranir og Ísraelar héldu loftárásum sínum áfram í nótt og í morgun.
Birt var í morgun ávarp í írönsku sjónvarpi þar sem Pezeshkian baðst einnig afsökunar á árásum Íran á lönd í heimshlutanum. Í umfjöllun Guardian segir að hann hafi gefið í skyn að árásirnar væru vegna misskilnings innan hersins. „Ég tel nauðsynlegt að biðja nágrannalöndin sem ráðist var á afsökunar,“ sagði hann í ávarpi sínu. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær á samfélagsmiðli sínum Truth Social að ekkert samkomulag yrði gert við klerkastjórnina í Íran. Alger og skilyrðislaus uppgjöf sé það eina sem komi til greina. Eftir að búið sé að velja nýja(n) ásættanlega(n) leiðtoga landsins, sem hann segist vilja fá að velja, geti uppbygging Íran hafist. „Við ætlum okkur ekki að ráðast inn í nágrannalönd,“ sagði Pezeshkian einnig í ávarpi sínu og kallaði eftir svæðisbundnu samstarfi til að „koma á friði og ró“. Pezekshian bætti við ávarp sitt að forystan hafi gefið út tilskipun til hersins um að héðan í frá skyldi ekki ráðast á nágrannalönd nema þau ráðist á ykkur fyrst. „Þeir sem íhuga að notfæra sér þetta augnablik til að ráðast á Íran mega ekki verða leppar heimsvaldastefnunnar,“ segir forsetinn og bætir við að stuðningur við Ísrael eða Bandaríkin sé „ekki leið til heiðurs og frelsis.“ Utanríkisráðherrar Arababandalagsins munu halda neyðarfund á sunnudag til að ræða íranskar árásir á nokkur aðildarríki bandalagsins, segir á vef Guardian. Fundurinn var boðaður að beiðni Kúveit, Sádi-Arabíu, Katar, Óman, Jórdaníu og Egyptalands að sögn Hossam Zaki, aðstoðarframkvæmdastjóra Arababandalagsins. Ahmed Aboul Gheit, framkvæmdastjóri Arababandalagsins, hefur fordæmt írönsku árásirnar og sagt þær „algerlega forkastanlegar“ og „ekki aðeins augljóst brot á alþjóðalögum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna, heldur einnig árás á meginreglur um góð samskipti milli nágranna“. Hann bætti við að árásirnar „skapi fordæmalaust fjandskaparástand milli Írans og arabískra nágranna sinna“. Áttatíu orrustuþotur Ísraels Ávarp Pezeshkian var sýnt á sama tíma og Ísrael og Bandaríkin héldu áfram loftárásum sínum á Íran og Íranar héldu áfram loftárásum á arabaríkin við Persaflóa. Endurteknar árásir voru gerðar á laugardagsmorgun á Barein, Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmin. Ísraelski herinn sagði í yfirlýsingu snemma í morgun að 80 orrustuþotur hefðu ráðist á hernaðarmannvirki Írans. Þar hafi verið að vinna „lykilhernaðarinnviði írönsku stjórnarinnar“ í Teheran og Mið-Íran. Í færslu hersins á samfélagsmiðlinum X kom fram að meðal skotmarka hefði verið Imam Hossein hernaðarháskólinn, sem tilheyrir Íslamska byltingarverðinum. ⭕️Over 80 IAF fighter jets struck key Iranian regime military infrastructure in Tehran and central Iran.Targets included:• IRGC Imam Hossein military university—used for IRGC officer training and assembly compound • Ballistic missile storage facilities• Underground… pic.twitter.com/n9oz3mjxF1— Israel Defense Forces (@IDF) March 7, 2026 Ísraelski herinn sagði einnig í færslu á X að hann hefði beint spjótum sínum að geymslum fyrir langdrægar eldflaugar og neðanjarðarstjórnstöðvum fyrir eldflaugar, auk skotpalla í vestur- og miðhluta Írans sem hann fullyrti að hefðu verið beint að Ísrael. „Þessar árásir draga úr getu írönsku stjórnarinnar til að skjóta á ísraelska borgara,“ sagði einnig. Í umfjöllun BBC segir að mikinn reyk hafi lagt frá einum fjölfarnasta flugvellinum í Teheran í morgun, Mehrabad-flugvelli. Flogið frá Doha en ekki Dúbaí Eins og fjallað hefur verið um í vikunni hafa átökin haft víðtæk áhrif á flugumferð um allan heim. Flugfélagið Emirates tilkynnti í morgun að það hefði fellt niður allt flug til og frá Dúbaí. Í morgun var svo greint frá því að flugfélagið Qatar Qatar Airways hefði í fyrsta sinn frá því að stríðið hófst flogið frá Doha í dag og til London. Flugfélagið sagði í tilkynningu að þau ætluðu einnig að fljúga til Parísar, Madrídar, Rómar og Frankfurt.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Bandaríkin Íran Katar Sameinuðu arabísku furstadæmin Kúveit Óman Jórdanía Egyptaland Tengdar fréttir Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handboltamaðurinn Sveinbjörn Pétursson og eiginkona hans eru ekki á heimleið til Íslands frá Ísrael. Þau eru ekki í stöðu til að ferðast í flug sem þeim var boðið frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu, en myndu stökkva upp í næstu vél frá Ísrael. Þau eru þó að eigin sögn örugg, enda með neðanjarðarbyrgi til að skýla sér bæði heima fyrir og á æfingum. 6. mars 2026 13:45 „Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Á fjórða tug Íslendinga hefur komið sér frá hættusvæðum vegna átakanna í Miðausturlöndum eftir ýmsum leiðum. Yfirmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir að unnið sé dag og nótt við að aðstoða þá rúmlega 180 Íslendinga sem hafi tilkynnt viðveru á svæðinu. 5. mars 2026 21:03 Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Ungar íslenskar konur sem fastar eru í Dúbaí sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi sem íslenska borgaraþjónustan hefur boðið borgurum á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum þar sem brottfararstaður er í 12 til 24 klukkustunda akstursfjarlægð. Þær vonast frekar til þess að geta náð flugi á laugardag og haldið sínu striki í heimsreisu. 4. mars 2026 20:41 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handboltamaðurinn Sveinbjörn Pétursson og eiginkona hans eru ekki á heimleið til Íslands frá Ísrael. Þau eru ekki í stöðu til að ferðast í flug sem þeim var boðið frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu, en myndu stökkva upp í næstu vél frá Ísrael. Þau eru þó að eigin sögn örugg, enda með neðanjarðarbyrgi til að skýla sér bæði heima fyrir og á æfingum. 6. mars 2026 13:45
„Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Á fjórða tug Íslendinga hefur komið sér frá hættusvæðum vegna átakanna í Miðausturlöndum eftir ýmsum leiðum. Yfirmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir að unnið sé dag og nótt við að aðstoða þá rúmlega 180 Íslendinga sem hafi tilkynnt viðveru á svæðinu. 5. mars 2026 21:03
Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Ungar íslenskar konur sem fastar eru í Dúbaí sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi sem íslenska borgaraþjónustan hefur boðið borgurum á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum þar sem brottfararstaður er í 12 til 24 klukkustunda akstursfjarlægð. Þær vonast frekar til þess að geta náð flugi á laugardag og haldið sínu striki í heimsreisu. 4. mars 2026 20:41