Óþægileg heimkoma af ÓL: Sátu fyrir henni og eltu upp að bílnum Sindri Sverrisson skrifar 6. mars 2026 07:00 Alysa Liu hefur talað um hve mikilvægt sér þyki að hafa gaman af lífinu og hún hafði svo sannarlega gaman af Ólympíugullinu sem hún vann á Ítalíu. Getty/Matthew Stockman Ólympíumeistarinn ungi Alysa Liu fékk að kynnast ákveðinni skuggahlið frægðarinnar heima í Bandaríkjunum eftir að hafa slegið í gegn og unnið gull á listskautum, á Ítalíu á dögunum.
Hin tvítuga Liu greindi frá því í Instagram Story að hópur æstra aðdáenda hefði setið fyrir henni á flugvelli, með myndavélar og gripi sem þeir vildu að hún áritaði, og ruðst inn á „hennar persónulega svæði“. Þá gekk einn aðdáandi svo langt að elta hana alveg upp að bílnum hennar og ljóst að skautadrottningunni þótti þetta ansi óþægilegt. „Vinsamlegast ekki gera mér þetta,“ skrifaði hún og bætti við hágrátandi lyndistákni. Alysa Liu birti þessi skrif á Instagram og varð greinilega ekki um sel á flugvellinum.Skjáskot/@alysaxliu Liu er frá Kaliforníu en var í New York fyrr í þessari viku þar sem hún kom meðal annars fram í Today Show og The Tonight Show með Jimmy Fallon. Hún varð stórstjarna í Bandaríkjunum með árangri sínum á Vetrarólympíuleikunum í síðasta mánuði því þar varð hún fyrsta Bandaríkjakonan í 24 ár til þess að vinna gull í einstaklingsgrein á listskautum, auk þess að hjálpa Bandaríkjunum að vinna liðakeppnina.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skautaíþróttir Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Dagskráin: Botnbarátta í Bestu og Barcelona-kappakstur í Formúlu 1 Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Elvari og félögum sópað í sumarfrí „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Russell byrjar á ráspól í Barcelona Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Sjá meira