Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2026 15:02 Tony Gonzales hefur setið þrjú tveggja ára kjörtímabil í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og sækist eftir því fjórða. Nokkrir samflokksmenn hans hafa þó kallað eftir því að hann hætti eftir að hann var sakaður um að halda við aðstoðarkonu sína sem svipti sig lífi síðasta haust. AP/Blaine Young, San Antonio Express Tony Gonzales, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Texas í Bandaríkjunum, hefur viðurkennt að hafa haldið við fyrrverandi aðstoðarkonu sína sem svipti sig lífi með því að kveikja í sér. Hann segist þó ekki bera ábyrgð á dauða hennar. Óháðir rannsakendur þingsins lögðu til á dögunum að siðferðisnefnd fulltrúadeildarinnar tæki mál Gonzales til rannsóknar. Reglur þingsins banna þingmönnum að eiga í rómantískum samböndum við aðstoðarfólk sitt. Aðstoðarkonan heitna hét Regina Santos-Aviles. San Antonio Express sagði nýverið frá því að árið 2024, þegar Gonzales var í forvalsbaráttu í kjördæmi sínu, hafi hann sent Santos-Aviles skilaboð og beðið hana um að senda sér nektarmyndir. Það var hún ekki tilbúin til að gera en Gonzales þrýsti á hana og spurði hana einnig út í uppáhaldskynlífsstellingar hennar og skrifaði um að hafa mök við hana. Santos-Aviles sagði þingmanninum tvisvar sinnum að hann væri að ganga of langt en eftir að hann þrýsti meira á hana samþykkti hún að hitta hann tveimur dögum síðar. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Gonzales er giftur sex barna faðir en Santos-Aviles var einnig gift og átti átta ára dreng. Hún svipti sig lífi í september síðastliðnum, rúmu ári eftir að þau skiptust á áðurnefndum skilaboðum. Adrian Aviles, ekkill Reginu, útvegaði San Antonio Express skilaboð hennar og þingmannsins. Segir guð hafa fyrirgefið sér Gonzales hefur lengi þvertekið fyrir að hafa verið í sambandi með Santos-Aviles .Í útvarpsviðtali sem birt var í gær viðurkenndi þingmaðurinn þó loksins framhjáhaldið en segðist ekki bera ábyrgð á dauða aðstoðarkonu sinnar fyrrverandi. „Ég gerði mistök og sýndi dómgreindarleysi,“ sagði Gonzales meðal annars i viðtalinu. Hann sagðist síðan þá hafa náð sáttum við eiginkonu sína og sagðist hafa beðið guð um að fyrirgefa sér og það hefði guð gert. „Trú mín hefur aldrei verið eins sterk.“ Viðtalið við Gonzales má sjá hér að neðan. Þingmaðurinn stendur nú í mikilli forvalsbaráttu í kjördæmi sínu í Texas en eftir fyrstu lotu forvalsins, sem lauk í gær, stendur hann einn eftir gegn Brandon Herrera. Sá er hvað þekktastur sem „The AK guy“ á YouTube en þar fjallar hann mikið um byssur og þá sérstaklega Kalashnikovbyssur, eins og viðurnefni hans gefur til kynna. Gonzales sigraði Herrera naumlega í forvali fyrir tveimur árum síðan. Nú eru þingmenn innan Repúblikanaflokksins að kalla eftir því að Gonzales stigi til hliðar eða segi jafnvel af sér. Það sagðist Gonzales í síðustu viku ekki ætla að gera en þá neitaði hann einnig að játa að hafa haldið við Santos-Aviles. Í viðtalinu í gær sagði þingmaðurinn að samband hans og aðstoðarkonu hans hefði verið flóknara en fréttaflutningur gefur til kynna og gagnrýndi hann fréttaflutninginn, þó að hann hafi aldrei viljað svara spurningum um málið fyrr en nú. „Ég hafði algerlega ekkert að gera með hræðilegan dauða hennar,“ sagði Gonzales. Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira
Reglur þingsins banna þingmönnum að eiga í rómantískum samböndum við aðstoðarfólk sitt. Aðstoðarkonan heitna hét Regina Santos-Aviles. San Antonio Express sagði nýverið frá því að árið 2024, þegar Gonzales var í forvalsbaráttu í kjördæmi sínu, hafi hann sent Santos-Aviles skilaboð og beðið hana um að senda sér nektarmyndir. Það var hún ekki tilbúin til að gera en Gonzales þrýsti á hana og spurði hana einnig út í uppáhaldskynlífsstellingar hennar og skrifaði um að hafa mök við hana. Santos-Aviles sagði þingmanninum tvisvar sinnum að hann væri að ganga of langt en eftir að hann þrýsti meira á hana samþykkti hún að hitta hann tveimur dögum síðar. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Gonzales er giftur sex barna faðir en Santos-Aviles var einnig gift og átti átta ára dreng. Hún svipti sig lífi í september síðastliðnum, rúmu ári eftir að þau skiptust á áðurnefndum skilaboðum. Adrian Aviles, ekkill Reginu, útvegaði San Antonio Express skilaboð hennar og þingmannsins. Segir guð hafa fyrirgefið sér Gonzales hefur lengi þvertekið fyrir að hafa verið í sambandi með Santos-Aviles .Í útvarpsviðtali sem birt var í gær viðurkenndi þingmaðurinn þó loksins framhjáhaldið en segðist ekki bera ábyrgð á dauða aðstoðarkonu sinnar fyrrverandi. „Ég gerði mistök og sýndi dómgreindarleysi,“ sagði Gonzales meðal annars i viðtalinu. Hann sagðist síðan þá hafa náð sáttum við eiginkonu sína og sagðist hafa beðið guð um að fyrirgefa sér og það hefði guð gert. „Trú mín hefur aldrei verið eins sterk.“ Viðtalið við Gonzales má sjá hér að neðan. Þingmaðurinn stendur nú í mikilli forvalsbaráttu í kjördæmi sínu í Texas en eftir fyrstu lotu forvalsins, sem lauk í gær, stendur hann einn eftir gegn Brandon Herrera. Sá er hvað þekktastur sem „The AK guy“ á YouTube en þar fjallar hann mikið um byssur og þá sérstaklega Kalashnikovbyssur, eins og viðurnefni hans gefur til kynna. Gonzales sigraði Herrera naumlega í forvali fyrir tveimur árum síðan. Nú eru þingmenn innan Repúblikanaflokksins að kalla eftir því að Gonzales stigi til hliðar eða segi jafnvel af sér. Það sagðist Gonzales í síðustu viku ekki ætla að gera en þá neitaði hann einnig að játa að hafa haldið við Santos-Aviles. Í viðtalinu í gær sagði þingmaðurinn að samband hans og aðstoðarkonu hans hefði verið flóknara en fréttaflutningur gefur til kynna og gagnrýndi hann fréttaflutninginn, þó að hann hafi aldrei viljað svara spurningum um málið fyrr en nú. „Ég hafði algerlega ekkert að gera með hræðilegan dauða hennar,“ sagði Gonzales.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira