Jóhanna Vigdís greindist með MS Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 28. febrúar 2026 11:59 Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Hansa, greindist með MS árið 2023 en er hvergi af baki dottin. Vísir/Vilhelm Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona og söngkona með meiru greindist með MS-sjúkdóminn árið 2023 og segist ekki eiga afturkvæmt á sviðið. Hún segir sjúkdóminn af þeirri gerð sem læðist aftan að manni. Hún er með skertan mátt í hægri hlið líkamans og haltrar en segist heppin og einblína á það jákvæða.
Hún ræddi greininguna og ýmislegt fleira í Bakaríinu á Bylgjunni í morgun. Hún sagðist þar vera með þá gerð MS-sjúkdómsins sem uppgötvast ekki „fyrr en skaði er skeður“. Hún sé máttlítil á hægri hlið líkamans og geti því ekki tekið hvaða hlutverk sem er. „Maður fær fyrst sjokk og er bara í tráma í smátíma. Þegar maður fær svona fréttir þá er bara tvennt í stöðunni. Það er annað hvort að halda áfram eða gefast upp. Það er bara þetta tvennt. Hafandi sagt það koma alveg tímar þar sem maður er við það að gefast upp,“ segir hún. Leikur Pollýönnuleikinn Hún segist ekki hafa sagt mörgum frá greiningunni nema sínum nánustu en að það sé léttir að ræða það, enda hafi vinir og vandamenn þurft að bera það af sér að hún sé dauðvona. „Ég get alveg talið mig heppna. Ég get alveg farið í Pollýönnuleikinn og sagt: Ég get þetta þó og ég get þetta þó. Því að það er miklu meira pródúktíft heldur en að vera fókuseruð á það sem maður getur ekki,“ segir Hansa. Jóhanna Vigdís er með það sem kallast primary progressive multiple sclerosis sem veldur hægfara hrörnun á getu í stað kasta. Henni hafi ekki versnað fyrirfinnanlega frá greiningunni í ágúst 2023. „Það sem virkar fyrir mig er að ég hreyfi mig rosalega mikið. Ég finn hvað maður þarf að gera það. Ég syndi og syndi og teygi og allt þetta,“ segir hún. Tískuinnblástur frá Agli Ólafs Hún gengur stundum með staf en það segist hún hafa sótti til Egils Ólafssonar leikara með meiru. „Ég sá Egil Ólafs um daginn með ægilega flottan staf sem var svona míkrófónn. Mér fannst hann svo æðislega töff að ég varð að fá mér svona. Þannig að ég lét handgera fyrir mig staf á Ítalíu, þetta er svartur stafur með hauskúpu. Ógeðslega flottur,“ segir hún. Jóhanna Vigdís er hvergi af baki dottin þrátt fyrir veikindin og situr nú í stjórn Leikfélags Reykjavíkur.
Leikhús Heilsa Bakaríið Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira