Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 18:17 Trump lét blaðamenn bíða eftir sér í að minnsta kosti hálftíma eftir að fundurinn átti að hefjast. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti kom fram á blaðamannafundi í kvöld eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem hann hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið.
Niðurstaða hæstaréttar er meiriháttar áfall fyrir Trump en hann hefur beitt tollum, og hótunum um að beita ríki þeim, í gríð og erg frá því að hann tók aftur við sem forseti í fyrra. Þeir tollar sem byggja á neyðarlögum eru taldir ólöglegir. Sjá einnig: Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Streymi af fundinum má sjá hér að neðan. Trump hóf fundinn á að segja að niðurstaða Hæstaréttar væru mikil vonbrigði. Hann skammist sín fyrir hönd nokkurra dómara fyrir að þora ekki að gera það sem rétt reynist. Þá þakkaði hann þeim dómurum sem greiddu atkvæði honum í vil. Þess má geta að tveir dómarar sem Trump tilnefndi á sínu fyrra kjörtímabili greiddu atkvæði gegn honum í málinu. „Mig langar að þakka dómurunum Thomas, Alito og Kavanaugh fyrir styrk þeirra, gáfur og föðurlandsást. Ég er mjög stoltur af þeim.“ Fyrirskipar tíu prósenta toll Því næst sakaði hann hæstarétt um að hafa leyft erlendum hagsmunaaðilum að hafa áhrif á dóm sinn en rökstuddi þá ásökun ekki frekar. Hann sagðist í framhaldinu ætla að leita annarra leiða til að setja tolla á önnur lönd en að byggja á neyðarlögum, leið sem hæstiréttur dæmdi ólöglega. Til þess að vernda Bandaríkin segist Trump ætla að leggja á frekari tolla á grundvelli annarra lagaheimilda. Hann sagðist ætla að undirrita tilskipun, sem tekur þá og þegar gildi, sem felur í sér tíu prósenta toll á heimsbyggðina. Tilskipunin á sér að hans sögn stoð í 122. grein viðskiptalaga. Greinin felur í sér heimild til að leggja á allt að fimmtán prósenta tolla í allt að 150 daga. Trump sagði alla þegar álagða tolla halda gildi en óljóst er á hvaða lönd tollurinn sem hann tilkynnti um á fundinum verður lagður. Tollana, sem forsetinn hefur fyrirskipað undanfarið ár, segist hann hafa notað til að „gera Bandaríkin frábær á ný“, samanber slagorð forsetaframboða hans. Hann vísar til þess að nýlega hafi Dow Jones og S&P hlutabréfavísitölurnar farið yfir 50.000 stig í Dow og 70.000 stig í S&P. Fréttin hefur verið uppfærð.
Donald Trump Bandaríkin Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi í dag úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem Donald Trump forseti hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Þeir tollar sem byggja á neyðarlögum eru taldir ólöglegir. 20. febrúar 2026 15:08 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira
Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi í dag úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem Donald Trump forseti hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Þeir tollar sem byggja á neyðarlögum eru taldir ólöglegir. 20. febrúar 2026 15:08