Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Árni Sæberg skrifar 20. febrúar 2026 13:32 Valdimar Víðisson er bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar. Vísir/Egill Hafnarfjarðarbær hefur greitt þremur fyrrverandi starfsmönnum alls vel rúmlega fimm milljónir króna í sáttagreiðslur á yfirstandandi kjörtímabili. Þá hafa verið gerðir sextán starfslokasaminga sem eru umfram þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Þetta kemur fram í minnisblaði mannauðsstjóra Hafnarfjarðarbæjar til bæjarráðs, sem lagt var fram á fundi bæjarráðs í gær. Vilja ræða mál Óskars Steins Á fundinum óskuðu fulltrúar Samfylkingarinnar eftir því að mál Óskars Steins Ómarssonar yrði tekið á dagskrá en í desember síðastliðnum komst Umboðsmaður Alþingis að þeirri niðurstöðu að bænum hefði verið óheimilt að afturkalla ráðningu hans í stöðu deildarstjóra tómstundamiðstöðvar Hraunvallaskóla. Auk þess að kalla eftir því að málið yrði tekið á dagskrá ítrekuðu fulltrúarnir fyrirspurn um samninga vegna starfsloka, sem var lögð fram á fundi bæjarráðs þann 22. janúar og ítrekuð þann 5. febrúar. Upphæðin trúnaðarmál Fyrirspurnin sem um ræðir var eftirfarandi: Hafa verið gerðir sérsamningar um greiðslu bóta vegna starfsmannamála á yfirstandandi kjörtímabili? Hafa verið gerðir starfslokasamningar við einstaka starfsmenn á kjörtímabilinu eða sérstakir samningar umfram umsamin starfskjör við starfslok? Óskað er sundurliðunar. Í svarinu segir að í þremur tilfellum hafa verið greiddar bætur vegna starfsmannamála á umræddu tímabili, sem séu eftirfarandi: Réttarsátt sem skiptist í kr. 3.794.755- vegna vangreiddra launa og kr. 200.000- í miskabætur vegna uppsagnar (greitt nóvember 2024). Sáttagreiðsla vegna uppsagnar samtals kr. 1.424.820- (greitt maí 2025). Sáttagreiðsla í kjölfar álits umboðsmanns og er upphæð trúnaðarmál samkvæmt samningnum (greitt janúar 2026). Ljóst er að síðastnefnda greiðslan er sú sem greidd var Óskari Steini. Allt að árs uppsagnarfrestur Þá spurðu fulltrúar Samfylkingarinnar hvort gerðir hafi verið gerðir starfslokasamningar við einstaka starfsmenn á kjörtímabilinu eða sérstakir samningar umfram umsamin starfskjör við starfslok. Í svarinu segir að gerðir hafi verið sextán samningar um starfslok á umræddu tímabili sem eru umfram 3 mánaða uppsagnarfrest. Í fimm tilvikum hafi einn mánuður verið greiddur aukalega. Ellefu samningar séu lengri en þó aldrei umfram áunninn veikindarétt samkvæmt kjarasamningum. Átta samningar um starfslok séu vegna langtímaveikinda og þeir séu frá fjórum til sjö mánuðum umfram uppsagnarfrest en aldrei lengri en veikindaréttur. Þrír samningar séu vegna annarra mála, úttekta og rannsókna og þeir séu frá þremur til níu mánuðum umfram uppsagnarfrest en aldrei lengri en veikindaréttur.
Hafnarfjörður Dómsmál Mannauðsmál Kjaramál Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Sjá meira