Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. febrúar 2026 08:52 Múslimar biðja við al-Aqsa moskuna. Getty/Anadolu/Mostafa Alkharouf Sérfræðingar segja stjórnvöld í Ísrael hafa rofið samkomulag sem gilt hefur í um sex áratugi um bænir á svæðinu í Jerúsalem þar sem finna má bæði al-Aqsa moskuna og Musterishæðina, sem er heilög bæði gyðingum og múslimum.
Hingað til hefur múslimum einum verið heimilt að tilbiðja á svæðinu en lögregla og ísraelska öryggisstofnunin Shin Bet eru sagðar hafa staðið fyrir handtöku imam al-Aqsa moskunnar og starfsmanna í vikunni og bannað múslimum aðgengi. Þá hefur verið greint frá því að ráðist hafi verið í aðgerðir á svæðinu að kvöldi fyrsta dags Ramadan, föstumánuðar múslima. Spenna í kringum al-Aqsa er sögð hafa aukist verulega eftir að öfga hægri öfl komust til valda í Ísrael. Itamar Ben-Gvir, öryggismálaráðherra Ísrael, hefur til að mynda talað um að draga ísraelskan fána að húni á svæðinu og byggja þar bænahús fyrir gyðinga. Hann hefur einnig stutt breytingar á samkomulaginu sem ríkt hefur frá 1967, sem hafa meðal annars snúið að því að heimila gyðingum að biðja og syngja á svæðinu. Amjad Iraqi, sérfræðingur í málefnum Ísraels og Palestínu, segir í samtali við Guardian að Ísraelar séu orðnir svo vanir því síðustu misseri að komast upp með hvað sem er, að þeim finnist þeir ekki lengur bundnir af áliti eða afstöðu alþjóðasamfélagsins. Föstuhátíðin í fyrra hafi gengið stórátakalaust fyrir sig en í ár sé hún hættutímabil, þar sem ýmsir atburðir hafi átt sér stað sem gætu ýtt undir ögrun og aðgerðir af hálfu þeirra í Ísrael sem vilja eigna sér Musterishæðina.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira