Verjast fregna af viðræðum dagsins Samúel Karl Ólason skrifar 18. febrúar 2026 16:36 Frá því þegar viðræðurnar hófust í gær. Þá var fundurinn töluvert lengri en fundurinn í dag. AP/Þjóðaröryggisráð Úkraínu Þríhliða viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna um endalok innrásarstríðs Rússa í Úkraínu lauk í dag án eiginlegrar niðurstöðu. Viðræðurnar stóðu yfir í tvo daga í Genf í Sviss, en fundurinn í dag stóð yfir í aðeins tvær klukkustundir.
Eftir fundinn sagði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, að viðræðurnar hefðu verið erfiðar en áður hafði hann sakað Rússa um að reyna að draga þær á langinn, eins og ráðamenn í Evrópu hafa einnig gert Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sagði fyrr í dag of snemmt að segja til um hvernig viðræðurnar hefðu farið. Fjölmiðlar í Rússlandi segja Vladimír Medínskí, leiðtoga sendinefndar Rússa og aðstoðarmann Pútíns, hafa gantast með sagnfræðifyrirlestra eftir fundinn. Hann mun þó einnig hafa sagt að viðræðurnar hafi verið erfiðar en faglegar. Að öðru leyti hafa báðar fylkingar varist fregna af viðræðunum. Til stendur að halda frekari viðræður á næstunni. Úkraínumenn voru ekki sáttir þegar opinberað var að Medínskí myndi leiða sendinefndina en hann þykir mikill harðlínumaður og hefur áður haldið langa reiðilestra yfir úkraínskum erindrekum þar sem hann hefur, eins og Pútín hefur áður gert, farið langt aftur í tímann til að reyna að færa rök fyrir því að Rússar eigi eignarrétt á Úkraínu. Þetta var í þriðja sinn sem viðræður sem þessar eiga sér stað en væntingar voru ekki miklar í aðdraganda þeirra. Stranda á landskika í Dónetsk Viðræður hafa að miklu leyti strandað á kröfum Rússa um að úkraínskir hermenn hörfi frá því svæði sem þeir halda enn í Dónetsk-héraði í austurhluta Úkraínu. Þetta er mjög víggirt svæði og hefur Rússum gengið mjög illa að taka það með hervaldi. Svæðið var á árum áður hernumið af Rússum og úkraínskum aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu en Úkraínumenn náðu því aftur og hafa síðan þá byggt upp miklar varnir þar. Úkraínumenn óttast að það að hörfa frá svæðinu myndi veita Rússum stökkpall lengra inn í Úkraínu, ákveði þeir seinna meir að gera aðra innrás í Úkraínu. Selenskí hefur gefið til kynna að hann gæti samþykkt myndun einhvers konar hlutlauss svæðis þar sem bæði Úkraínumenn og Rússar myndu hörfa frá jafn umfangsmiklu svæði. Það yrði þó aldrei samþykkt án þess að Úkraínumenn fengju mjög sterkar öryggistryggingar. Það er að segja að önnur ríki, og þá helst Bandaríkin, skuldbindi sig til að koma Úkraínu til aðstoðar ef Rússar myndu gera aðra innrás. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa þó, eins og fram kemur í grein New York Times, gefið til kynna að slíkar tryggingar yrðu ekki veittar fyrr en eftir að Úkraínumenn gefi eftir landsvæði. Sjá einnig: Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Kröfur Rússa hafa ávallt verið meiri en þær að vilja Donbas-svæðið svokallaða, sem samanstendur af Dónetsk og Lúhansk-héruðum. Rússar hafa innlimað fimm héruð Úkraínu inn í rússneska ríkissambandið, samkvæmt breytingum sem gerðar voru á stjórnarskrá Rússlands á undanförnum árum. Um er að ræða Krímskaga, Kherson, Sapórisjía, Dónetsk og Lúhansk. Af þessum héruðum stjórna Rússar eingöngu Krímskaga og Lúhansk að fullu. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, vísaði svo í vikunni til enn stærri hluta Úkraínu sem „sögulegs“ rússnesks landsvæðis og sagði að Rússar myndu á endanum koma höndum yfir öll slík svæði í Úkraínu. Í ávarpi sem ráðherrann hélt vísaði hann til Krímskaga, Donbas og til svæðis sem er af Rússum kallað „Novorossia“. Það er nafn yfir allan suðurhluta Úkraínu sem notað var á tímum rússneska keisaraveldisins. Það svæði nær yfir alla strandlengju Úkraínu og mun stærri hluta landsins en Rússar gera þegar tilkall til.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Vladimír Pútín Donald Trump Sviss Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar þungar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Sjá meira