„Af hverju ætti hann að vera að setja treyjuna yfir munninn?“ Sindri Sverrisson skrifar 18. febrúar 2026 15:27 Gianluca Prestianni talaði til Vinicius Junior sem á endanum fór beint til dómarans. Getty/Angel Martinez Í Meistaradeildarmörkunum á Sýn Sport í gærkvöld var að sjálfsögðu farið vel yfir stærsta hitamál kvöldsins, þegar hlé varð á leik Benfica og Real Madrid vegna meints kynþáttaníðs í garð Vinicius Junior.
Gianluca Prestianni er sakaður um að hafa kallað Vinicius „apa“ í leiknum. Hann setti treyjuna yfir munninn áður en hann sagði eitthvað við Vinicius sem fór strax til dómara leiksins og lét hann vita. „Hann segir greinilega eitthvað við hann og af hverju ætti Vinicius að vera að ljúga þessu?“ spurði Ríkharð Óskar Guðnason í Meistaradeildarmörkunum. „Af hverju ætti drengurinn að vera að setja treyjuna yfir munninn ef hann er að bjóða góðan daginn?“ spurði Arnar Gunnlaugsson en umræðuna og atvikið má sjá hér að neðan. Klippa: Meistaradeildarmörkin: Ólíðandi hegðun í garð Vinicus „Það er allt sem bendir til þess að hann hafi því miður sagt eitthvað sem á hvergi heima. Það er ógeðslega þreytandi að vera enn að sjá svona í íþróttum í dag, eða hvar sem litið er,“ sagði Albert Brynjar Ingason. „Vini lendir oft í þessu á Spáni og þetta er óviðunandi. Vonandi fær hann viðeigandi refsingu,“ sagði Arnar. UEFA hefur tilkynnt að málið verði rannsakað en ekki er talið að niðurstaða fáist áður en liðin mætast að nýju á Spáni næsta miðvikudagskvöld, þar sem Benfica reynir að vinna upp 1-0 forskot Real eftir sigurmark Vinicius í gær. Kylian Mbappé, sem stóð nærri þegar Prestianni talaði til Vinicius, hefur látið hafa eftir sér að Prestianni eigi ekki skilið að spila á Bernabéu eftir viku. Sjálfur hefur Argentínumaðurinn haldið fram sakleysi sínu og Benfica staðið með honum. FIFA President Gianni Infantino: “I was shocked and saddened to see the incident of alleged racism towards Vinícius Júnior in the UEFA Champions League match between SL Benfica and Real Madrid CF. There is absolutely no room for racism in our sport and in society – we need…— FIFA Media (@fifamedia) February 18, 2026 Þá hefur Gianni Infantino, forseti FIFA, sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann kveðst í áfalli yfir því meinta kynþáttaníði sem um ræðir. Ekkert svigrúm sé fyrir kynþáttaníð neins staðar og nauðsynlegt sé að þeir sem verði uppvísir að slíku verði látnir svara til saka. Meistaradeildarmörkin eru aftur á dagskrá í kvöld, þegar fjórir leikir fara fram, og hefst bein útsending klukkan 19:30 á Sýn Sport.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Real Madrid CF Portúgalski boltinn Spænski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Dansinn hjá Vinicius, draumaleikur Doué og fimmfaldur fögnuður Mikið fjör og mikið drama einkenndi leiki gærdagsins í Meistaradeildinni. Mörkin úr öllum fjórum leikjunum má finna hér fyrir neðan. 18. febrúar 2026 12:00 Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Handbolti Fleiri fréttir Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Stúkan: FH í miklum vandræðum Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Dansinn hjá Vinicius, draumaleikur Doué og fimmfaldur fögnuður Mikið fjör og mikið drama einkenndi leiki gærdagsins í Meistaradeildinni. Mörkin úr öllum fjórum leikjunum má finna hér fyrir neðan. 18. febrúar 2026 12:00