Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Kjartan Kjartansson skrifar 18. febrúar 2026 11:14 Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, á fundi ráðherra hjá Alþjóðaorkumálastofuninni í París í dag. Vísir/EPA Bandaríkjastjórn hótar því að yfirgefa Alþjóðaorkumálastofunina ef hún fellur ekki frá tali um orkuskipti. Kolefnishlutleysi muni aldrei nást.
Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, ítrekaði hótanir um að Bandaríkin segi skilið við Alþjóðaorkumálastofunina vendi hún ekki kvæði sínu í kross um orkuskipti á ráðstefnu í París í gær. „Ef stór hluti af stofnunum sem halda utan um gögn helga sig þessum draumórum vinstrimanna þá brenglar það bara erindi þeirra,“ hefur dagblaðið Politico eftir Wright. Sakaði hann Alþjóðaorkumálastofnina um að haga sér eins og „loftslagshagsmunasamtök“. Þess í stað ætti hún að einbeita sér að „orkuöryggi“ eins og bandarísk stjórnvöld skilgreina það. Hafa þegar tekið tillit til jarðefnaáherslu Bandaríkjamanna Alþjóðaorkumálastofnunin tekur meðal annars saman gögn um orkubúskap heimsins og framgang orkuskipta til þess að bregðast við hnattrænni hlýnun. Loftslagsbreytingar eru fyrst og fremst knúnar áfram af bruna jarðefnaeldsneytis til orkuframleiðslu. „Við þurfum ekki á sviðsmynd um kolefnishlutleysi að halda, það er fáránlegt, hún verður aldrei að veruleika,“ sagði bandaríski orkumálaráðherrann. Mannkynið þarf að hætta losun gróðurhúsalofttegunda alfarið til þess að stöðva hnattræna hlýnun. Hún nemur þegar meira en gráðu borið saman við viðmiðunartímabil fyrir iðnbyltingu. Verði ekki dregið úr núverandi losun gæti hlýnunin náð yfir þremur gráðum fyrir lok aldarinnar með gríðarlegum afleiðingum fyrir samfélög manna og vistkerfi jarðar. Politico segir að Alþjóðaorkumálastofunin hafi nú þegar brugðist við áherslu Bandaríkjastjórnar á jarðefnaeldsneyti. Í nýjustu skýrslum hennar hafi hún aftur tekið upp sviðsmyndir um þróun orkusamsetningar ríkja heims sem byggjast á óbreyttu ástandi. Í stað þess að reikna með því að olíunotkun nái hámarki á næsta áratug gerir hún nú ráð fyrir að eftirspurnin aukist fram að miðri öldinni.
Bandaríkin Orkumál Orkuskipti Jarðefnaeldsneyti Sameinuðu þjóðirnar Donald Trump Loftslagsmál Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira